Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.09.2011, Síða 118

Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.09.2011, Síða 118
Sólveig Anna Bóasdóttir, Háskóla Islands: Ritdómur Pétur Pétursson: Trúmaður á tímamótum. Ævisaga Haralds Níelssonar. 2011. Hið íslenska bókmenntafélag. 372 s. Þótt liðin séu liðlega 80 ár frá andláti Haralds Níelssonar (1868-1928), guðfræðiprófessors og rektors Háskóla Islands, munu þeir þó efalaust fjölmargir hér á landi sem enn kannast við nafn hans. Astæðan er trúlega fyrst og fremst áhrifamikil og umdeild tengsl hans við sögu og þróun sálar- rannsókna og spíritisma og síðast en ekki síst, frjálslynda guðfræðistefnu kringum aldamótin 1900. Fram undir aldamótin 1900 ríkti sterk aðgreining embættismanna, bænda og vinnufólks hér á landi sem fátt virtist geta hnikað. Hið samfélagslega taumhald sem hélt íslensku samfélagi í nær algerri kyrrstöðu kynslóð fram af kynslóð byggði annars vegar á boðum og bönnum hins forna bændasamfélags, en hins vegar á trúarlegum boðum hinnar evangelísku lúthersku kirkju. Aldamótakynslóðin leitaðist við að hrista af sér hlekki þessa taumhalds og þar varð Haraldur nokkurs konar holdgervingur nýs og bjartsýns anda. í nýrri bók Péturs Péturssonar guðfræðiprófessors, Trúmaður á tíma- mótum. Ævisaga Haralds Níelssonar, er gerð ítarleg grein fyrir lífshlaupi þessa merka manns og hann sagður einn sérstæðasti leiðtogi kynslóðarinnar sem kennd er við aldamótin 1900. í bókinni er leitað skilnings á því hvað hafi mótað Harald sem leiðtoga, hvers vegna hann hafi gerst spíritisti og hvaða hlutverki spíritisminn gegndi í lífi hans og starfi. Leiðin sem farin er að þessu marki er ekki sú að draga upp helgimynd af Haraldi heldur er leitast við að seilast á bak við hina alkunnu og upphöfnu mynd sem margir þekkja og draga þess í stað upp raunsanna og blæbrigðaríka mynd. Forsenda þess að það sé hægt er aðgangur höfundar að einkaskjalasafni Haralds, bréfum, dagbókum, handritum og myndum sem áður hafa ekki komið fyrir almenningssjónir (s. 7-8). 116
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126

x

Ritröð Guðfræðistofnunar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ritröð Guðfræðistofnunar
https://timarit.is/publication/1152

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.