Morgunblaðið - 31.12.2015, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. DESEMBER 2015
Bókaðu núna á baendaferdir.is
Sími 570 2790
bokun@baendaferdir.is
Síðumúla 2, 108 Reykjavík
Alpafegurðin umvefur Salzburg í Austurríki sem er sannkölluð
tónlistarparadís og er einna þekktust sem fæðingarborg tón-
skáldsins Amadeus Mozarts. Komið verður m.a. að Arnarhreiðri
Hitlers, til Königsee og á leið okkar til gömlu borgarinnar
Regensburg í Bæjaralandi verður farið í siglingu á Dóná.
Verð: 174.700 kr. á mann í tvíbýli.
Mjög mikið innifalið!
Sp
ör
eh
f.
Fararstjóri: Sigrún Valbergsdóttir
30. apríl - 7. maí
Salzburg & Regensburg
Vor 5
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Töluverðar skemmdir urðu á sjó-
varnargörðum, vegum og öðrum
mannvirkjum í Fjarðabyggð í óveðr-
inu í fyrrinótt. Gömul sjóhús, sem
standa í fjöruborðinu við grunnskól-
ann í miðbæ Eskifjarðar, urðu fyrir
skemmdum.
„Ég tel að annað sjóhúsið sé ónýtt
og hitt er mikið skemmt. Báðar
bryggjurnar við sjóhúsin eru farn-
ar,“ sagði Jens Garðar Helgason,
formaður bæjarráðs Fjarðabyggðar.
Bryggjan við Randulfssjóhús, sem
er frá 1890, skemmdist einnig mikið.
Þá eyðilagðist hleðsla undir húsinu.
Gat kom á skrokk uppsjávar-
veiðiskipsins Aðalsteins Jónssonar
SU þar sem það nuddaðist við
bryggju á Eskifirði. Gatið var ofan
sjólínu og var soðið í það í gær.
Sjór flæddi upp að fiskimjölsverk-
smiðjunni á Eskifirði og var 40-50
sentimetra djúpur sjór utan við
verksmiðjuhúsið, að sögn Hauks
Jónssonar, verksmiðjustjóra.
„Ég hef aldrei séð svona mikinn
sjó þarna áður,“ sagði Haukur. Með
einni fyllunni kom bryggjustaur sem
brotnað hafði úr gamalli bryggju og
lamdi gat á stóra verksmiðjuhurð
sem lét undan við höggið. Sjór
komst þá inn í verksmiðjuna. Þar er
lensibúnaður og því hægt að dæla
sjónum út. Engar skemmdir urðu á
tækjum. Verið var að kanna í gær
hvort eitthvað af mjöli hefði blotnað.
Þrjár hurðir sem snúa í austur á
geymsluhúsum verksmiðjunnar
fuku einnig upp. Bryggjustaurar og
timbur úr bryggjunum lágu eins og
hráviði um alla verksmiðjulóðina.
Sjór gekk alveg upp að húsunum á
Mjóeyri, sem er austan við þéttbýlið
á Eskifirði. Hjónin Sævar Guð-
jónsson og Berglind Steina Ingv-
arsdóttir reka þar ferðaþjónustu.
Eyrin fór að miklu leyti á kaf og
sjórinn braut eina þrjá metra inn í
landið og upp að gistihúsunum.
Grjóti var sturtað í fjöruna framan
við húsin til að verja þau áður en síð-
degisflóðið kæmi í gær. Jens Garðar
sagði að það væri forgangsverkefni
að efla sjóvarnir í Fjarðabyggð í
ljósi fenginnar reynslu. Óveðrið olli
litlu tjóni í Neskaupstað.
Sjór gekk yfir bryggjurnar
Sjórinn gekk yfir sjóvarnargarð
við smábátahöfnina á Fáskrúðsfirði
og bar mikið af grjóti, timbri, þangi
og öðru drasli upp á bryggjur. Öfl-
ugasta vindhviðan á Ljósalandi í Fá-
skrúðsfirði var 52 m/s á 10. tímanum
í gærmorgun.
Albert Kemp, fréttaritari Morg-
unblaðsins, hafði heyrt að á háflóð-
inu í fyrrinótt hefði einungis vantað
um 30 sentimetra á að sjór flæddi yf-
ir bryggjurnar. Aldan átti því greiða
leið yfir bryggjurnar. Tjón varð á
flotbryggju. Sjór gekk upp á sjáv-
argötu sem liggur neðan við Búða-
veg og einnig upp á þjóðveginn inn í
bæinn. Skarð kom í þjóðveginn utan
við jarðgöngin.
Horn á þaki á húsinu Melbrún var
að losna og tókst að fergja það með
lyftarabómu. Þá fóru plötur af stafn-
inum á félagsheimilinu sem var búið
að klæða og einangra. Dráttarvél
var látin halda við gaflinn. Járn losn-
aði á fleiri húsum og unnu björg-
unarsveitarmenn að því að binda það
niður.
Þjóðvegurinn mikið skemmdur
„Það gekk mikið á,“ sagði Hákon
Hansson, dýralæknir á Breiðdalsvík,
um óveðrið. „Það urðu verulegar
skemmdir, sérstaklega við sjávarsíð-
una. Sjór gekk yfir nes þar sem
höfnin er, áhaldahús Breiðdals-
hrepps og fleira. Þar er allt í rúst
liggur mér við að segja.“ Hann sagði
að eitthvað hefði gefið sig í flot-
bryggjunni. Björgunarsveit og
starfsmenn sveitarfélagsins unnu að
því að tryggja hana í gær. Hákon
sagði að bátar hefðu verið í hættu
þegar mest gekk á.
Skemmdir urðu á Staðarborg,
gömlu félagsheimili. Þar rifnaði
klæðning af vegg og fauk út um allt.
Þjóðvegurinn yfir Meleyri
skemmdist. Klæðningin var mikið
skemmd og ljóst að hann þarfnast
verulegrar viðgerðar. Vegurinn var
ófær um tíma vegna þess hvað mikið
grjót barst upp á veginn.
Ljósmynd/Hákon Hansson
Breiðdalsvík Miklar skemmdir urðu á þjóðvegi 1 á Meleyri inn af botni Breiðdalsvíkur.
Morgunblaðið/Albert Kemp
Fáskrúðsfjörður Sjórinn gekk yfir sjóvarnargarðinn og bar mikið af grjóti og þangi á land.
Miklar skemmdir á mannvirkjum
Vegir, sjóvarnargarðar, hús og bryggjur skemmdust í ofsaveðrinu sem gekk yfir Austurland í
fyrrinótt Sjór gekk á land og var 40-50 sentimetra djúpur við fiskimjölsverksmiðju á Eskifirði
Ljósmynd/Jens Garðar Helgason
Eskifjörður Svanssjóhús (t.v.) er líklega ónýtt. Bryggjur fyrir framan það og húsið til hægri gjöreyðilögðust.
Ljósmynd/Jens Garðar Helgason
Eskifjörður Bryggjur brotnuðu.
Sigmundur Davíð Gunn-
laugsson forsætisráðherra ósk-
aði eftir því í gær að kallaður
yrði saman sem fyrst hópur
ráðuneytisstjóra, fulltrúa al-
mannavarnardeildar Ríkislög-
reglustjóra, Viðlagatryggingar
og fleiri til að fara yfir þá stöðu
sem skapast hefur á Austur-
landi vegna ofsaveðurs sem þar
hefur gengið yfir. Hópnum er
ætlað að meta hvernig bregð-
ast megi við, meðal annars í
samráði við heimamenn.
„Enn á ný höfum við orðið
vitni að dugnaði og hugrekki
björgunarsveita og annarra
sem komið hafa að málum og
fyrir það erum við þakklát,“ var
haft eftir Sigmundi Davíð í til-
kynningu forsætisráðuneyt-
isins.
Fulltrúar Viðlagatryggingar
fóru á vettvang til að meta að-
stæður í kjölfar óveðursins á
Austurlandi. Flóð og skriður
höfðu valdið talsverðu tjóni á
vátryggðum eignum, bæði hjá
einstaklingum og sveitarfé-
laginu Fjarðabyggð.
Viðbragðs-
hópur
FORSÆTISRÁÐHERRA