Morgunblaðið - 31.12.2015, Page 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. DESEMBER 2015
Reynt hefur verið að fækka ein-
breiðum brúm á hringveginum þeg-
ar vegabútar eru breikkaðir eða
endurnýjaðir. Enn eru þó 39 ein-
breiðar brýr eftir á hringveginum.
Japanskur fjölskyldufaðir á fimm-
tugsaldri fórst í bílslysi við ein-
breiða brú í Öræfum á öðrum degi
jóla.
Af þeim 39 einbreiðu brúm sem
eftir eru á hringveginum eru lang-
flestar á suðausturhorninu, að sögn
G. Péturs Matthíassonar, upplýs-
ingafulltrúa Vegagerðarinnar.
Skeiðarársandur og Öræfin eru þau
svæði sem brýrnar eru einna flest-
ar. Á austursvæði Vegagerðarinnar
er 31 einbreið brú en sex á suð-
ursvæðinu.
Nú eru um fjórir kílómetrar af
einbreiðum brúm á hringveginum
en hann telur allur á bilinu 1.300-
1.400 kílómetra. „Við tökum þetta
eftir þeim verkefnum sem eru í
gangi. Stundum er þá tekin einbreið
brú og ræsi sett í staðinn. Ef það er
verið að breikka og styrkja ein-
hvern vegarkafla, endurnýja veg
eða stærri viðhaldsverkefni þá er
þeim skipt út,“ segir hann.
Í heildina hefur einbreiðum brúm
í vegakerfinu öllu fækkað um hér
um bil tíu á ári.
Enn eru 39
brýr ein-
breiðar
Flestar á suð-
austur-horninu
Á áramótum 2015 og 2016 slæst Ís-
land í hóp þeirra landa sem tekið
hafa upp þann sið að bjóða fólki að
koma saman og telja niður síðustu
mínúturnar og sekúndurnar til ára-
móta. Hefst niðurtalning á hjúp
tónlistarhússins Hörpu í kvöld þeg-
ar mínúta er til áramóta, og verður
því talið úr 60 sekúndum niður í
nýtt ár.
„Það hefur aldrei verið neinn við-
urkenndur samkomustaður,“ sagði
Sindri Már Hjartarson, markaðs-
fulltrúi Hörpu, í samtali við mbl.is
um þessa nýjung. „Við þekkjum
þetta víða um heim; í London, Tók-
ýó og New York, þar sem fólk kem-
ur saman og telur niður í nýtt ár.“
Sindri sagði að fjöldi ferðamanna
væri mikill í Reykjavík, en þeir hafi
fram til þessa hvergi getað komið
saman og talið niður.
Þegar byrjar að rökkva í dag
verður hjúpnum breytt þannig að á
honum stendur 2015. Þegar nið-
urtalningunni verður lokið og nýtt
ár gengið í garð breytist áletrunin í
2016.
Talið niður í nýtt ár á Hörpuhjúp
Gleðilegt nýtt ár
Þökkum viðskiptin á liðnu ári
Útsala
Opnum 4. janúar
Skoðið flottu fötin á
friendtex.is
Ath. Breytum opnunartíma 12. janúar
40% - 50% - 60% - 70%
Bonito ehf. • Friendtex • Praxis
Faxafen 10 • 108 Reykjavík • sími 568 2870 • www.friendtex.is •www.praxis.is
Opið mánudag - föstudag 11:00-17:00, lokað laugardaga
...Þegar þú vilt þægindi
Gleðilegt
nýtt ár
Takk fyrir árið
sem er að líða
Laugavegi 82, á horni Barónsstígs
sími 551 4473
www.lifstykkjabudin.is Skeifan 8 | 108 Reykjavík | sími 517 6460 | www.belladonna.is
Gleðilegt nýtt ár,
þökkum viðskiptin
á árinu sem er að líða
Byrjum nýtt ár á flottri
ÚTSÖLU
Flott föt fyrir
flottar konur
Stærðir 38-58
Útsalan er hafin
Gleðilegt nýtt
ár, þökkum
viðskiptin á
árinu sem er
að líða
Bæjarlind 1-3
201 Kópavogur
sími 571 5464
Stærðir 38-54
Bæjarlind 6 | Sími 554 7030 | Við erum á Facebook
laugardag 2. janúar kl. 10-16
Opið í dag kl. 10–12
Útsalan
hafin
50% afsláttur
Gleðilegt ár
GLEÐILEGT NÝTT ÁR
ÞÖKKUM VIÐSKIPTIN Á
ÁRINU SEM ER AÐ LÍÐA
ÚTSALAN HEFST 4. JANÚAR kl. 13
Laugavegi 63 • S: 551 4422
Útsalan
hefst mánudaginn 4. janúar
v/Laugalæk • sími 553 3755