Morgunblaðið - 31.12.2015, Síða 32
32 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. DESEMBER 2015
SVIÐSLJÓS
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Komur skemmtiferðaskipa til
Reykjavíkur á þessu ári voru alls
108, borið saman við 90 árið 2014.
Aukningin á milli ára er 20% en
fjöldi farþega stóð hins vegar í stað,
var um 100 þúsund. Ræðst það af
því að færri stór skip komu í sumar
en áður, á meðan minni skipum,
svokölluðum leiðangursskipum, hef-
ur fjölgað.
Í 15 höfnum innan samtakanna
Cruise Iceland, sem frá árinu 2005
hafa unnið sameiginlega að mark-
aðssetningu á Íslandi sem við-
komustað skemmtferðaskipa, voru
436 skipakomur á árinu. Um borð í
öllum þessum skipum voru um 290
þúsund farþegar. Skipakomurnar
voru 305 í höfnum landsins 2014
þannig að aukningin á milli ára er
um 43% á landsvísu.
Meiri tekjur skapast
Ágúst Ágústsson, markaðsstjóri
Faxaflóahafna, segir þennan mark-
að sveiflukenndan og taka breyt-
ingum jafnvel ár frá ári. Á þessu ári
hafi 30 skip skipt um farþega í
Reykjavík, eða margfalt fleiri en áð-
ur, og þá alls 27 minni skip lagst að
bryggju, svonefnd leiðangursskip
(e. expedition cruises), með 100-300
farþega hvert skip. Eitt þeirra var
Ocean Diamond, sem íslenskt fyrir-
tæki tók á leigu og sigldi með far-
þega hringinn í kringum landið. Alls
voru 9 slíkar hringferðir farnar og
tókust framar vonum. Verður
Ocean Diamond áfram í siglingum
kringum landið a.m.k. næstu tvö
sumur.
Þá segir Ágúst ánægjulega viðbót
felast í því að 23 skip höfðu viðkomu
í Reykjavík yfir nótt og stoppuðu
hér í tvo daga.
„Við höfum verið að vinna í að fá
fleiri svona skipakomur, þannig að
meiri tekjur skapist í landi. Skipin
taka hér kost og olíu og þetta er
einnig að skapa tekjur fyrir flug-
félög og hótel,“ segir Ágúst en á
síðasta ári er talið að komur
skemmtiferðaskipa til landsins hafi
skilað um sex milljörðum króna í
þjóðarbúið. Má búast við að sú upp-
hæð verði eitthvað hærri í ár.
Ágúst segir ekki mörg skipafélög
standa í útgerð þessara skipa. Nú
sé komin aukin samkeppni frá Kína
og sömuleiðis sókn í ferðir til Kúbu
eftir að Bandaríkin afléttu þar við-
skiptabanni. Þetta geti verið skýr-
ing á því að færri stór skip komu til
landsins í ár og farþegafjöldinn í
Reykjavík stóð í stað. „Það er eilífð-
arverkefni að halda merki Íslands á
lofti í þessu. Það hefur ekki alltaf
verið vöxtur. Næsta ár lítur ágæt-
lega út en árið 2017 enn betur, þó
eru stóru skipin að koma aftur til
okkar,“ segir Ágúst en árið 2016
hafa 109 skip boðað komu sína, með
alls um 104 þúsund farþega. Nú
þegar hafa 88 skip boðað sig árið
2017 og farþegafjöldinn á þeim um
98 þúsund. Ágúst segir minni skipin
vanta inní þá tölu, enda bóki þau sig
með skemmri fyrirvara.
Tímabilið hefur lengst
Sú breyting hefur einnig orðið í
þessum bransa að tímabilið hefur
lengst. Nú koma fyrstu skipin að
jafnaði í mars og þau síðustu í lok
október. Þannig verður það bæði
2016 og 2017, að sögn Ágústs.
Frá því að hann hóf störf hjá
Reykjavíkurhöfn árið 1992 hefur
margt breyst. Það ár komu 26
skemmtiferðaskip til Reykjavíkur
með tæplega 12 þúsund farþega. Að
meðaltali voru 452 farþegar um
borð en sú tala var komin upp í
1.152 farþega árið 2014. Lækkaði
meðaltalið í 927 farþega á þessu ári.
„Það hefur margt breyst á þess-
um tíma, sem hefur verið mjög
skemmtilegur,“ segir Ágúst, sem
lætur af störfum hjá Faxaflóa-
höfnum eftir áramótin sökum ald-
urs. „Fyrst þegar ég byrjaði snerist
starfið einnig mikið um að fá hingað
erlend fiskiskip en með tímanum
hefur þetta þróast út í skemmti-
ferðaskipin. Þó að þetta hafi gengið
vel til þessa þá þarf að halda áfram
að horfa vel fram í tímann. Næsta
stóra verkefnið hjá Faxaflóahöfnum
er að bæta aðstöðuna í landi fyrir
farþegana. Ef vöxturinn heldur
svona áfram þá þarf að skapa meira
skjól fyrir farþegana þegar þeir
koma í land eða bíða eftir því að
komast um borð.
Mikil aukning í minni höfnum
Auk starfa sinna hjá Faxaflóa-
höfnum hefur Ágúst einnig unnið
fyrir samtökin Cruise Iceland, og
verið stjórnarformaður þeirra alveg
síðan þau voru stofnuð fyrir tíu ár-
um. Einnig sat hann lengi í stjórn
Cruise Europe og gaf út og ritstýrði
fréttabréfi þeirra samtaka í 15 ár.
„Það getur verið þröngt svið að
markaðssetja Reykjavík eingöngu,
við höfum einnig hag af því að
markaðssetja Ísland í heild sinni.
Það er ánægjulegt að sjá hve skipin
eru farin að stoppa á mörgum stöð-
um um allt land,“ segir hann en
skipakomur eftir höfnum sjást nán-
ar á meðfylgjandi súluriti. Þar varð
aukning á nær öllum stöðum frá síð-
asta ári en Ágúst bendir sérstak-
lega á staði eins og Siglufjörð,
Seyðisfjörð, Ísafjörð, Grímsey og
Húsavík, þar sem aukningin hafi
verið hvað mest. Þá hafi Stykkis-
hólmur komið sterkur inn á mark-
aðinn á þessu ári.
Líflegt við gömlu höfnina
Ágúst segir fleiri þætti starfsins
hafa breyst síðustu 20 árin eða svo,
ekki aðeins varðandi skemmti-
ferðaskipin. Nefnir hann þar sér-
staklega gömlu höfnina við Slippinn
og grænu verbúðirnar. „Þegar ég
byrjaði fyrir rúmum 20 árum voru
verbúðirnar í fullri notkun og hvala-
skoðun varla byrjuð. Núna er starf-
semin þarna orðin virkilega lífleg,
hafnsækin ferðaþjónusta er orðin að
stórri atvinnugrein,“ segir Ágúst og
bendir á að um 117 þúsund farþegar
fóru í hvalaskoðun frá Reykjavík
árið 2014, og eru þá ótaldir þeir
ferðamenn sem fóru á sjóstöng, í
lundaskoðunarferðir og norður-
ljósaferðir.
„Það hefur verið gaman að fylgj-
ast með þessari þróun og verður
vonandi áfram þegar ég kemst á
eftirlaun og fylgist með mannlíf-
inu við höfnina,“ segir Ágúst
að endingu, léttur í bragði,
en hann segist hafa nóg við
að vera þegar starfsdegi-
num lýkur. „Maður dundar
í sumarbústaðn-
um, ég fer á
skak á bátn-
um mínum
og spila
tennis, sem
mér finnst
mest gam-
an.“
Skemmtiskipin dreifa sér víðar
Komum skemmtiferðaskipa í hafnir landsins fjölgaði um 43% á þessu ári 436 skipakomur í 15
höfnum Fleiri skip skipta um farþega hér og stoppa yfir nótt Bókanir líta vel út 2016 og 2017
Komur skemmtiferðaskipa til hafna Cruise Iceland
Heimild: Cruise Iceland.
120
100
80
60
40
20
0
Re
yk
jav
ík
Ha
fna
rfj
örð
ur
Ísa
fjö
rðu
r
Gr
ím
sey
Esk
ifjö
rðu
r
Gr
un
da
rfj
örð
ur
Sig
luf
jör
ðu
r
Alls 305 skipakomur árið 2014, en 436 árið 2015. Aukningin er43% á milli ára.
Hú
sav
ík
Djú
piv
og
ur
Ve
stu
rby
gg
ð
(Pa
tre
ksf
jör
ðu
r)
Ak
ure
yri
Se
yð
isf
jör
ðu
r
Hö
fn
Ve
stm
an
na
eyj
ar
Sty
kk
ish
ólm
ur
2014 2015
Ágúst Ágústsson hóf störf hjá
Reykjavíkurhöfn árið 1992
sem hagfræðingur á fjárhags-
deild. Um tveimur árum síðar
hóf hann afskipti af markaðs-
málum hafnarinnar og þá
jafnt fyrir fiskiskip sem
skemmtiferðaskip. Faxaflóa-
hafnir tóku til starfa 2004
eftir samningu hafna í eigu
sveitarfélaga við norð-
anverðan Faxaflóa. Með aukn-
um fjölda ferðamanna á
seinni árum hefur starfið að
mestu snúist um markaðs-
setningu fyrir skemmti-
ferðaskip.
Ágúst mun fylgja arftaka
sínum, Ernu Kristjánsdóttur,
úr hlaði og starfa með henni
fram í mars á komandi ári.
Erna mun taka við sem
markaðs- og gæða-
stjóri Faxaflóahafna en
fyrirtækið er að inn-
leiða nýja gæðastaðla
til að starfa eftir.
Arftakanum
fylgt úr hlaði
ÁGÚST AÐ HÆTTA
Ágúst Ágústsson
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Skemmtiferðaskip Stærsta skipið sem kom til Reykjavíkur og fleiri hafna sl. sumar var Msc Splendida, nærri 138 þúsund brúttótonn að stærð.
Hrein jógúrt
Ástæða þess
að þú átt að velja
lífræna jógúrt!
• Engin aukefni
• Meira af Omega-3
fitusýrum
• Meira er af CLA fitusýrum
sem byggja upp vöðva
og bein
• Ekkert undanrennuduft
• Ánmanngerðra
transfitusýra
biobu.is - Lífrænar mjólkurvörur