Morgunblaðið - 31.12.2015, Qupperneq 38
38 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. DESEMBER 2015
Vagnhöfða 11 - 110 Reykjavík - www.ofnasmidja.is - sími 577 5177
hafðu það notalegt
vottun reynsla
ára
ábyrgð
gæði
miðstöðvarofnar
auðvitað tíma, bæði í vinnslu afurð-
anna og markaðssetningu.
Auk heimavinnslunnar eru þau
með heimagistingu og leigðu tvö her-
bergi út í sumar. Þau fá mikið af
bændafólki frá öðrum þjóðlöndum
sem vilja gista á sveitabæ. Með þessu
fólki sem gistir fá þau sér alltaf morg-
unmat og þá er margt spjallað og víða
komið við. Þessir gestir vilja fara í
fjós, sjá sauðburð og jafnvel fara í
réttir. Ari segir að þau hafi upplifað
mikið þakklæti og kynnst mjög miklu
í sambandi við kúabúskap o.fl. sem
tengist landbúnaði í öðrum löndum í
gegnum þessa erlendu ferðamenn.
„Árið 2015 hefur verið mjög gott
framleiðsluár hjá okkur en við ætlum
að reyna að auka töluvert við fram-
leiðsluna. Það er lífsspursmál fyrir
okkur að við náum góðu ári 2016,“
segir Ari og er bjartsýnn á fram-
haldið.
„Mér líst ekkert svo illa á drögin á
nýja búvörusamningunum, en bænd-
ur eru hagsmunahópur og þeir þurfa
að tala meira saman sín á milli. Þeir
þurfa að bera saman bækur sínar og
hittast meira m.a. til þess að ræða
skuldamálin. Margir eru með miklar
skuldir og við kúabændur erum kýr
bankanna, ef má orða það svo, því
bankarnir græða á skuldugu bænd-
unum.“
Íslenska kýrin verðmæt
Ari og Freydís eru sammála um að
íslenska kýrin sé ákveðið verðmæti
fyrir þjóðina. Því hafa þau kynnst í
gegnum útlendingana sem hafa sótt
þau heim. Þau hafa bæði mjög gaman
af fjölbreytninni í kúalitunum, en
auðvitað er íslenska kýrin mjög lítil
sé miðað við önnur kúakyn.
Þau segjast alltaf vera að læra eitt-
hvað nýtt og þau eru ánægð að vera
saman heima og vera í fjósinu sem er
mjög ánægjulegur vinnustaður í huga
þeirra. Þau bregða sér þó aðeins af
bæ og eru þá með afleysingu sem þau
treysta 100%.
„Kusur eru æði, “segir Freydís og
hlær, en þau hjónin sjá ekki eftir því
að hafa haslað sér völl í kúabúskapn-
um og þau hlakka til að takast á við
mörg krefjandi verkefni á nýja árinu.
Fjósið er ánægjulegur vinnustaður
Kýr eru skemmtilegar, hafa mikinn karakter og eru ólíkar segir bóndi á Miðhvammi í Aðaldal
Íslenska kýrin er ákveðið verðmæti fyrir þjóðina og vekur athygli erlendra gesta
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
Ungir bændur Ari Heiðmann Jósavinsson og Freydís Anna Ingvarsdóttir, bændur í Miðhvammi. Fjósið er í baksýn.
Fjörkálfur Alltaf gerist eitthvað skemmtilegt í fjósinu. Kálfurinn á rúllunni
er fjörkálfur sem er í uppáhaldi hjá bændunum í Miðhvammi.
VIÐTAL
Atli Vigfússon
Laxamýri
„Mér finnst kýr æðislegar og ég sé
rómantíkina í því að vera í kringum
þær. Þær eru skemmtilegar og hafa
mikinn karakter. Allar eru þær mjög
ólíkar og það er hægt að lýsa hverri
og einni fyrir sig sem sérstakri per-
sónu. Ég hef gaman af þessu starfi.“
Þetta segir Freydís Anna Ingvars-
dóttir, bóndi og sjúkraliði í Mið-
hvammi í Aðaldal, en hún og maður
hennar Ari Heiðmann Jósavinsson
keyptu jörðina fyrir tæpum fjórum
árum. Þau hófu kúabúskap o.fl. en á
staðnum var fyrir stórt fjós sem þau
gátu byrjað í og hafa á þessum fáu ár-
um stækkað mikið við sig. Nú eru
gripirnir orðnir 120 talsins, þar af yfir
40 mjólkandi kýr og það stefnir í að
enn fjölgi.
„Við vinnum vel saman í fjósinu og
þá ganga hlutirnir vel fyrir sig,“ segir
Freydís en með búskapnum er hún í
50% starfi á dvalarheimilinu Hvammi
á Húsavík og keyrir á milli. „Við
bjuggum áður á Akureyri og sáum í
því ákveðin tækifæri að flytjast hing-
að í Aðaldal og hefja búskap. Ég hafði
ekki áður verið í sveit en mér líður vel
hérna og það er gott fólk í nágrenn-
inu,“ segir Freydís sem er ánægð
með að ala börnin upp í þessu um-
hverfi.
Ari segir að þau hafi ekki sést svo
mikið á Akureyri þegar þau bjuggu
þar. Þau hafi verið í sitt hvorri
vinnunni og börnin hafi verið í pössun
hjá öðrum. Fjölskyldan hittist miklu
meira nú og það sé mjög gefandi.
Hann segist líka hafa séð ákveðið
tækifæri í því að vera matvælafram-
leiðandi og þrátt fyrir miklar skuldir
þá finnst þeim að þau hafi það betra
heldur en þau höfðu það í þéttbýlinu.
Með margt í takinu
Ari og Freydís eru ekki bara með
nautgripi því þau eiga einnig 50 kind-
ur og hafa byrjað í heimavinnslu af-
urða. Þau eru með leyfi fyrir bæði
kindakjöti og nautgripakjöti í
tengslum við Matarskemmuna á
Laugum í Reykjadal, en þar er við-
urkennd aðstaða til matvælavinnslu.
Það er ekkert í mjög stórum stíl en
þau segjast gjarnan myndu vilja selja
meira af kjöti sjálf en til þess þarf
Á nýársnótt verða margir hlutir
undarlegir, samkvæmt þjóðsög-
um Jóns Árnasonar. Það er eitt
að kýr mæla þá mannamál.
Einu sinni lá maður úti í fjósi
á nýársnótt til þess að heyra
hvað kýrnar töluðu.
Hann heyrir þá að ein kýrin
segir: „Mál er að mæla.“ Þá seg-
ir önnur: „Maður er í fjósi.“
„Hann skulum við æra,“ segir
þriðja kýrin.
„Áður en kemur ljósið,“ segir
hin fjórða. Frá þessu gat mað-
urinn sagt morguninn eftir, en
ekki fleiru því kýrnar höfðu ært
hann.
Mál að mæla
NÝÁRSNÓTTIN
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Ónákvæmni gætti í umfjöllun Morg-
unblaðsins í gær um laun banka-
stjóra Lands-
bankans.
Þar kom fram
að heildarlaun
hans hefðu með
úrskurði kjara-
ráðs verið
ákvörðuð
1.158.614 kr. eftir
1.3. 2010. Síðan
var sagt að launin
hefðu hækkað í
1.384.307 kr. með úrskurði 29.6.
2013, afturvirkt til 1.6. 2012 og að
kjararáð hefði svo hækkað launin í
þriðja sinn 17. þessa mánaðar í
1.949.691 kr., afturvirkt til 1. desem-
ber sl. Við þessa framsetningu var
eingöngu horft til sérstakra úr-
skurða kjararáðs um laun banka-
stjórans. Fulltrúi kjararáðs baðst
undan viðtali og formaður ráðsins
svaraði ekki beiðni um viðtal í fyrra-
dag, þegar fréttin var unnin.
Í fréttinni var ekki tekið sérstak-
lega fram að kjararáð hefur undan-
farin ár tekið ákvörðun um almenna
hækkun launa þeirra embættis-
manna, sem ákvörðunarvald ráðsins
nær til. Þær hækkanir voru í tímaröð
4,9% hinn 1.6. 2011, 3,5% hinn 1.3.
2012 og 3,25% hinn 1.3. 2013.
Kjararáð ákvað sem fyrr segir í
júní 2013 að laun bankastjórans
skyldu vera 1.384.307 kr.
Launin hækkuðu um 3,2%
Hinn 1.12. 2014 hækkuðu öll laun
sem heyra undir kjararáð um 3,2%
og þar með urðu laun bankastjóra
1.431.365 kr., afturvirkt til 1.2. 2014.
Í nóvember sl. hækkaði kjararáð aft-
ur laun allra sem undir það heyra
með almennri hækkun um 9,3%, aft-
urvirkt til 1.3. 2015.
Þar með urðu heildarlaun banka-
stjóra 1.564.482 kr. Hækkun heildar-
launa með síðasta sérúrskurði kjara-
ráðs, úr 1.564.482 kr. í 1.949.691 kr.
nemur því um 25% en ekki 41%.
Þetta gerðist með tveimur hækkun-
um, þ.e. almennri hækkun í nóvem-
ber á þessu ári og með síðasta sér-
úrskurði í desember. Á hinn bóginn
hafa laun bankastjórans hækkað um
41% frá síðasta sérstaka úrskurði
ráðsins um laun hans í júní 2013.
Steinþór Pálsson var ráðinn banka-
stjóri bankans í maí 2010.
Hafa hækkað
í fleiri skrefum
Bankastjóri fékk almennar hækkanir
Steinþór Pálsson