Morgunblaðið - 31.12.2015, Page 47
FRÉTTIR 47Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. DESEMBER 2015
STÍGÐU SKREFIÐ!
// DALE CARNEGIE FYRIR UNGT FÓLK
// 10–12 ÁRA
Námskeið hefjast 18. janúar
og 29. mars, kennt einu sinni í viku
í átta vikur frá kl. 17:00–20:00
// 13–15 ÁRA
Námskeið hefjast 12. janúar
og 2. febrúar - örfá sæti laus
kennt einu sinni í viku í átta vikur
frá kl. 17:00–21:00
// 16–20 ÁRA
Námskeið hefjast 13. janúar
og 17. febrúar - örfá sæti laus
kennt einu sinni í viku í átta vikur
frá kl. 18:00–22:00
// 21–25 ÁRA
14. janúar - uppselt
Annað námskeið hefst 10. febrúar
kennt einu sinni í viku í átta vikur
frá kl. 18:00–22:00
// KYNNINGARTÍMAR
Sjáðu fleiri kynningartíma
á www.dale.is/ungtfolk
Sími 555 7080
Leggðu mat á hæfileika barnsins
með styrkleikaprófinu
á www.dale.is/styrkleikar_unga
// REYKJAVÍK, 10–15 ÁRA
Mánudaginn 4. janúar
Ármúla 11, 3. hæð
frá kl. 19:00–20:00
// REYKJAVÍK, 16–25 ÁRA
Mánudaginn 4. janúar
Ármúla 11, 3. hæð
frá kl. 20:00–21:00
NÁMSKEIÐ
Í REYKJAVÍK
SKRÁÐU ÞIG
OG VERTU MEÐ OKKUR
KYNNINGARTÍMAR
ÓKEYPIS AÐGANGUR
VILTU MEIRA
SJÁLFSTRAUST
EIGA AUÐVELDARA MEÐ
AÐ KYNNAST FÓLKI
LÍÐA
BETUR
VERA
ÞÚ?
Fram til þessa hafa hundar aðeins
fengið ókeypis far með eigandanum
í norskum strætisvögnum og lest-
um um helgar. En frá 1. febrúar
mun eigandinn ekki heldur þurfa
að borga barnamiða fyrir gæludýr-
ið sitt á virkum dögum. Það fær
frítt far, að sögn Aftenposten.
„Þetta eru frábærar fréttir,“
sagði Halat Sophie Bjerkestrand
sem á tvo ítalska mjóhunda, Lille og
Luigi. „Hundarnir fara um allt með
mér, í vinnuna og verslanir.“ Hún
hefur þurft að greiða tvo barna-
miða fyrir dýrin á virkum dögum.
Þetta hefur kostað hana sem svarar
tugþúsundum íslenskra króna á ári
af því að hún fer nokkrum sinnum í
viku með hundana í klukkustundar
göngutúr í skóginum. En miðinn
gildir aðeins í eina klukkustund.
Greiðsla fyrir hunda hefur verið í
gildi í 50 ár og hundaeigendum þótt
ósanngjarnt að það ætti aðeins við
um hunda, ekki önnur gæludýr.
kjon@mbl.is
Frítt fyrir
dýr í strætó
og vagna
Norskir hundavin-
ir fagna ákaft
Þolinmæði Fallegur og miðalaus
hundur í norskum strætisvagni.
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Ríkisstjórinn í Missouri í Bandaríkj-
unum, Jay Nixon, sagði í gær að búið
væri að skipuleggja umfangsmiklar
varnir vegna yfirvofandi stórflóða í
ánni Mississippi. USA-Today hafði
eftir honum að hætta væri á að flóðið
myndi sprengja 19 flóðgarða og
vatnið flæða yfir stór íbúðarsvæði í
Missouri og grannríkinu Illinois.
Talið er að allt 18 dauðsföll í Mis-
souri og Illinois síðustu daga hafi
orðið vegna flóðanna, oftast vegna
þess að fólk ók út á svæði undir
vatni.
Mississippi með þveránni Mis-
souri er eitt af þrem lengstu fljótum
heims. Gert er ráð fyrir að flóðhæðin
verði jafnmikil eða hærri en árið
1993 en þá var gamalt met slegið.
Þjóðvarðlið Missouri muni tryggja
öryggi á flóðasvæðum og annast um-
ferðarstjórn þar sem vegum hefur
verið lokað.
„Við eigum nú í geysimikilli bar-
áttu við flóð í stórum hluta ríkisins
okkar,“ sagði Nixon. Reynt væri að
koma í veg fyrir það sums staðar að
flóðið breiddist út en það hefði þegar
náð til nokkurra borga og fólk víða
verið flutt á brott. Búist er við að
flóðvatnið nái til milljónaborgarinn-
ar St. Louis og grenndarsvæða í dag.
Sama dag er búist við miklum flóð-
um í ánum Ohio og Arkansas sem
tengjast Mississippi. Til Memphis
muni flóðið síðan ná 3. janúar.
Stórflóð í Mississippi
AFP
Vörn Sjálfboðaliðar hlaða upp sandpokum við ána Des Peres í St. Louis.
Byrjað að flytja fólk burt frá hættusvæðum við fljótið
Úkraína og Rúss-
land hafa með
milligöngu Þjóð-
verja og Frakka
samþykkt að
framlengja
vopnahlé sem
kennt er við
Minsk, að sögn
Petro Porosénkós
Úkraínuforseta.
En samskipti
Rússa og Úkraínumanna eru samt
afar stirð. Hinir fyrrnefndu sögðust
fyrr í mánuðinum ætla að frysta frí-
verslunarsamning við Úkraínu-
menn. Þeir mótmæltu þannig frí-
verslunarsamningi sem stjórnvöld í
Kænugarði áforma að gera við Evr-
ópusambandið. Segja Rússar að þá
muni tollfrjálsar vörur frá ESB
flæða inn á rússneskan markað.
Úkraínumenn íhuga nú að svara
Rússum með takmörkuðu innflutn-
ingsbanni. kjon@mbl.is
Framlengja
vopnahlés-
samninginn
Petro
Porosénkó