Morgunblaðið - 31.12.2015, Side 48
48 STJÓRNMÁL
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. DESEMBER 2015
Á
rið 2015 reyndist Íslendingum að flestu leyti vel.
Þegar litið er yfir liðið ár, eins og tíðkast jafnan
um áramót, verður okkur þó hugsað til þeirra sem
tekist hafa á við erfiðleika og vonum að úr rætist,
eins og kostur er, á nýju ári.
Nýtt ár felur í sér ný tækifæri og nýja von. Þá er líka mik-
ilvægt að við séum meðvituð um hið góða, það sem hefur þróast
í rétta átt, því að það er besta hvatningin til að gera enn betur í
framtíðinni og hjálpa þeim sem hjálpina þurfa, hér á landi og
annars staðar.
Árangurinn er besta hvatningin
Árið 2015 hefur sannarlega veitt okkur hvatningu til áfram-
haldandi árangurs á komandi árum.
Árangur næst með því að fylgja skynsamlegri stefnu og taka
réttar ákvarðanir. Þess vegna er svo mikilvægt að við metum
hvaða stefna hefur reynst vel og hvaða ákvarðanir hafa orðið til
heilla. Þannig getum við gert meira af því sem vel reynist og
minna af hinu. En til þess að það sé hægt þarf að viðurkenna
árangurinn í stað þess að láta umræðuna alla snúast um þau
verkefni sem enn á eftir að leysa og gera þau að ástæðu til að
hverfa frá því sem virkar.
Vinna ríkisstjórnarinnar undanfarið ár, og reyndar allt þetta
kjörtímabil hefur sannarlega skilað árangri. Atvinnuleysi er nú
mun minna en í öðrum Evrópulöndum, skuldir heimilanna hafa
lækkað um tugi prósenta og hlutfall skulda af ráðstöf-
unartekjum er nú töluvert lægra en í mörgum nágrannalönd-
um okkar. Verðbólga hefur haldist stöðug og hefur verið minni
en nokkru sinni áður á þessari öld. Þrátt fyrir mestu launa-
hækkanir um árabil sýna spár að takast muni betur að halda
aftur af verðbólgunni á næstu árum en áður hafði verið áætlað.
Aukin velferð og aukinn jöfnuður
Kaupmáttur, það er að segja velmegun, landsmanna hefur
aukist hraðar á undanförnum 30 mánuðum en dæmi eru um á
síðari árum í þróuðu samfélagi. Ráðstöfunartekjur heimilanna
hafa auk þess aukist vegna skattalækkana og afnáms vöru-
gjalda og munu hækka enn meira nú um áramót þegar tollar af
fjölmörgum vörutegundum verða felldir niður. Enn merkilegra
má teljast að á sama tíma og verðmætasköpun eykst hratt með
einum mesta hagvexti á Vesturlöndum hefur tekist að verja og
auka jöfnuð á Íslandi. Þannig hafa til dæmis laun verkafólks
hækkað hlutfallslega meira en laun stjórnenda og annarra
tekjuhærri hópa og lífeyrisgreiðslur almannatrygginga og ör-
orkubætur hækkað hraðar en laun almennt. Hlutfall fátæktar
hefur ekki verið lægra en nú á Íslandi og tekjuskipting er
hvergi jafnari.
Það er ekki þar með sagt að vandi allra sé leystur. En besta
leiðin til að fást við þau úrlausnarefni sem enn bíða okkar er að
halda áfram með þeim aðferðum sem hafa virkað. Það væri frá-
leitt að gefast upp af því að fullkomnun hefur ekki verið náð og
reyna í staðinn aðferðir eða hugmyndafræði sem lofa full-
komnu samfélagi. Það eru aðferðir sem hafa oft verið reyndar
undir ýmsum nöfnum og í ólíkum búningum en alltaf skilað aft-
urför, sérstaklega fyrir þá sem lofað var að verja.
Árangurinn dregur fram undantekningarnar
Þegar árangur næst á mörgum sviðum beinist athyglin að
undantekningunum. Þær vekja meiri athygli en ella einmitt
vegna þess að þær skera sig úr en það þýðir um leið að þær eru
orðnar viðráðanlegri en áður. Látum það verða okkur hvatn-
ingu til að gera enn betur. Látum árangurinn, hið góða, leiða
okkur áfram fremur en neikvæðni og svartsýni.
Að óttast hið góða
Eins undarlegt og það er virðist afmarkaður en hávær hópur
fólks eiga erfitt með að sætta sig við góðar fréttir. Jákvæð þró-
un vekur hjá honum gremju, hún er litin hornauga og tor-
tryggð á allan mögulegan hátt. Þetta er sá hópur fólks sem get-
ur ekki sætt sig við að jákvæðir hlutir gerist ef þeir gerast ekki
í krafti hinnar einu „réttu“ hugmyndafræði.
Lýsandi dæmi um þetta birtist fyrir fáeinum vikum þegar
hópi fólks gramdist mjög að Hagstofa Íslands skyldi benda á
að engin markverð breyting hefði orðið á hlutfalli Íslendinga, á
mismunandi aldursbili, sem fluttu frá landinu árið 2015. Raun-
ar reyndist hlutfall brottfluttra undir 40 ára aldri lágt í sam-
anburði við liðin ár og áratugi.
Áður hafði hinu gagnstæða verið haldið fram og mikið úr því
gert. – Loksins var búið að finna eitthvað sem kallast gat nei-
kvæð þróun, haldreipi í straumi jákvæðrar þróunar samfélags-
ins. Reyndar var alltaf ljóst að mun fleiri hefðu flutt til landsins
en frá því árið 2015 en haldreipið fólst í þeirri kenningu að
óvenju margir ungir íslenskir ríkisborgarar væru að flytja frá
landinu.
Þegar Hagstofan birti svo tölfræði sem sýndi hið rétta, tölur
sem ættu að hafa verið flestum fagnaðarefni, brást neikvæði
hópurinn hinn versti við og gengu sumir jafnvel svo langt að
ráðast á Hagstofuna fyrir það eitt að birta tölfræðilegar stað-
reyndir. Stofnunin var sökuð um að hafa falsað tölurnar og það
hlyti hún að hafa gert vegna pólitísks þrýstings. Svo langt voru
sumir til í að ganga til að verja hina neikvæðu heimsmynd sína
að þeir voru tilbúnir til að beita embættismenn ógnunum, -
embættismenn hjá stofnun sem birtir tölfræði. Þar skyldu
menn búast við árásum ef birtar yrðu tölur sem ekki féllu að
hinni dökku heimsmynd.
Stígum öll úr skugganum
Við þurfum, sem samfélag að komast úr skugga neikvæðni
og niðurrifs í öllum sínum myndum. Við þurfum að læra að
meta þau gæði sem við búum við og þann árangur sem við höf-
um náð og láta það verða okkur hvatningu til að gera enn bet-
ur. Þeir sem stundum eru kallaðir hinn þögli meirihluti verða
að þora að láta ljós sitt skína og óttast ekki hramm nátttröll-
anna. Þau þrífast bara í myrkri. Upplýsta umræðu þola þau
ekki.
Óttumst ekki myrkrið því það er bjart framundan. Það þýðir
ekki að við getum leyft okkur að vera værukær og líta á hluti
sem sjálfgefna. Þvert á móti þurfum við að gera okkur ljóst að
árangur okkar, staða okkar nú og framtíðarhorfur eru ekki
sjálfgefnar. Árangurinn varð til með menningu, hugarfari og
atorkusemi liðinna kynslóða og arftaka þeirra. Við þurfum líka
að vera meðvituð um mikilvægi þeirra gömlu sanninda að
ganga skuli hægt um gleðinnar dyr. Nú þurfa landsmenn að
standa saman við að verja árangurinn og taka skynsamlegar
ákvarðanir með langtímaávinning að leiðarljósi.
Við erum vel búin undir framtíðina
Sá árangur sem þegar hefur náðst við að vinna á skulda-
vanda íslenskra heimila, fyrirtækja og ríkissjóðs mun bæta
stöðu samfélagsins til langs tíma. Aðgerðir vegna uppgjörs
slitabúa bankanna og losunar fjármagnshafta, stærstu efna-
hagsaðgerðar Íslandssögunnar, hafa þegar skilað miklum ár-
angri og vakið athygli víða um heim. Sá árangur mun birtast
enn frekar á nýja árinu og komandi árum og áratugum, og gera
okkur vel í stakk búin til að takast á við áskoranir framtíð-
arinnar, hvort sem þær felast í uppbyggingu heilbrigðiskerf-
isins, bættum innviðum um allt land eða áframhaldandi aukinni
velmegun allra hópa samfélagsins.
Þessar aðgerðir og ótal margar fleiri hafa gert íslenskt sam-
félag vel í stakk búið til að nýta tækifæri ársins 2016 og þeirra
sem á eftir koma. En árangurinn veltur á því að við stöndum
saman um að forðast hætturnar og nýta úrræðin. Árangurinn
veltur líka á því að við höldum okkur við þær leiðir sem virka.
Samfélög búa yfir miklu afli sem nýta má vel eða illa. Forðumst
hinar myrku hliðar þess afls og nýtum björtu hliðarnar til hins
ýtrasta. Þær eru sterkari og skila meiri árangri fyrir alla.
Það er bjart yfir íslensku samfélagi. Vinnum saman í þeirri
birtu á nýju ári.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra og formaður Framsóknarflokksins
Trúin á hið góða
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Við þurfum, sem samfélag að komast úr
skugga neikvæðni og niðurrifs í öllum sínum
myndum. Við þurfum að læra að meta þau
gæði sem við búum við og þann árangur
sem við höfum náð og láta það verða
okkur hvatningu til að gera enn betur.