Morgunblaðið - 31.12.2015, Blaðsíða 56
56
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. DESEMBER 2015
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Leikhúsin búa til sinn eig-in veruleika og táknþeirra grímurnar eru
tvær, glaðværð og sorg. Þær
þyrftu að vera mun fleiri til að
segja alla söguna.
Hvert mannsbarn með sitt
eina andlit birtist þó í gegnum
lífið með þau mörg. Barns-
andlitið blíða og mjúka og and-
litið sem lífið hefur rúnum rist
marka rammann. En þetta and-
lit sem tíminn lagar í hendi sér
er aldrei eins heldur tekur sí-
fellt mið af því hvernig innri
manninum líður. Hið eina
„rétta andlit“ er sjaldgæft, hafi
það fundist.
Guðinn Janus dúkkar jafnan
upp á þessum degi með sín tvö
andlit. Annað vísar aftur en hitt
fram. Þótt spegillinn neiti að
staðfesta það er maðurinn ekk-
ert ólíkur Janusi að þessu leyti.
Hann horfir líka sífellt bæði til
fortíðar og framtíðar. Vonirnar
og stundum áhyggjurnar horfa
til framtíðar en hvort tveggja
tekur ríkulegt mið af fortíðinni.
Um þessar mundir og ekki síst
á gamlársdegi sjálfum líkja
margir eftir Janusi, þótt sá
forni guð hafi ekki gert sér slík-
an dagamun.
Í fljótu bragði sýnist flókn-
ara að horfa til framtíðar en
fortíðar. Fortíðin er jú stað-
reynd, hún liggur fyrir og hef-
ur að nokkru verið færð til bók-
ar. Samt er sífelldur
ágreiningur og illdeilur um for-
tíðina. Einn telur augljóst að
annar hafi fortíðina fyrir
rangri sök, jafnvel viljandi. Ný-
liðin fortíð er sérlega erfið við-
ureignar. Sem er sérkennilegt
þar sem „staðreyndirnar“ ættu
að lifa í minni flestra lengur en
í eitt ár. En það er öðru nær.
Þekkt er þegar útvarpsstöðvar
bjóða fólki að velja persónu
ársins þá eru það þeir sem hafa
verið í fréttum síðustu vik-
urnar sem lenda oftast ofarlega
á blaði. Atburðarásahönnuðir
telja sig einatt þurfa að hanna
atburðarás aftur í tímann, sem
er raunar auðveldari leikur en
að gera það fram í tímann, sem
þykir þó fínna.
Ríkir menn, með særða sam-
visku, keyptu sér menn til
eftiráhönnunar atburða eftir
bankafall og varð ágengt í
fyrstu enda tóku umræðutröll-
in þeim vel. En afbökuð um-
ræða með ónýtar stoðir endist
illa. Umfjöllun um nýliðna for-
tíð er forleikur að spá um fram-
tíðina. Það er að því leyti auð-
veldara að eiga við hana, að
enginn á höfundarrétt að
henni.
Lengi hefur verið fullyrt að
„sagan endurtaki“ sig. Það er
fjarri því að vera algilt. En
óneitanlega má giska á að til-
vonandi „saga“ um afmarkað
efni muni um margt, jafnvel
flest, þróast með áþekkum
hætti, svipi sviði hennar og að-
draganda til þekktrar sögu.
Þeir, sem fróðastir eru, ættu
því, að öðru jöfnu að vera í betri
færum að fara í spámannsstell-
ingar. En spakvitrir og spá-
mannslegir hafa þó oftar skotið
fram hjá en hitt.
Stjórnmálalegir nýliðar láta
stundum eins og fundinn hafi
verið nýr og betri grunnur fyrir
stjórnmál, svo kölluð „umræðu-
stjórnmál“ sem muni leysa
„átakastjórnmál“ af hólmi.
Frasar af þessu tagi, gera svo
sem engum neitt til, en eru ekki
nýjabrum.
Fyrir réttum 50 árum, á
gamlársdag 1965, flutti for-
sætisráðherrann, Bjarni Bene-
diktsson, sitt áramótaávarp.
Það sem nú heitir „fjórflokkur“
kallaði Bjarni „höfuðflokka“ í
ávarpi sínu og benti á, að þótt
þeir hefðu aldrei starfað allir
samtímis í stjórn þá hefðu þeir
allir einhverntíma frá stofnun
lýðveldis komið að stjórn
landsins. Bjarni vitnaði í
sænskan fræðimann, „sem
skrifað hefur bók um stjórn og
stjórnmál á Norðurlöndum (og)
dregið af þessu þá ályktun, að
flokkaágreiningur í íslenzkum
stjórnmálum sé ekki úr hófi al-
varlegur. Sú skoðun er fróðleg
fyrir þá, sem fárast yfir, að
flokkabarátta sé að koma hér
öllu úr skorðum.“
Í ávarpinu víkur Bjarni
Benediktsson að því, að ein-
staka góðviljaðir menn telji
þannig horfa um verðbólgu að
þeir æski samstjórnar allra
flokka „ef það mætti ráða nið-
urlögum meinvættarins. Segja
má að slík stjórnarmyndun
sýndi alvarlegan ásetning um
að láta til skarar skríða. En
hætt er við, að hér sé auðveld-
ara um að tala en í að komast,
því að hingað til hefur aldrei
tekizt að mynda hér samstjórn
allra flokka.“ En Bjarni bætir
við: „Því fer þó fjarri, að með
þessu sé sagt, að samstjórn
allra flokka geti aldrei átt við.
Úr því skera aðstæður og atvik
hverju sinni. En um svo óvenju-
leg úrræði fæst naumast sam-
komulag, nema neyðarástand
blasi við og líklegt sé, að því
verði létt af með ráðstöfunum,
sem menn telji, að hafi tilætluð
áhrif í fyrirsjáanlegri framtíð.“
Þannig ástand blasti við
haustið 2008. Skammsýnir
menn áttuðu sig ekki og aðrir
litu á andstreymi þjóðarinnar
sem einstakt tækifæri til að ná
fram óskyldum málum gagn-
vart laskaðri þjóð. Þeir völdu
því sundrungu í stað sam-
heldni, hvenær sem val stóð á
milli slíkra kosta. Þess vegna
fór það kjörtímabil fyrir lítið,
þegar brýnast var að sam-
heldni væri áttavitinn sem siglt
væri eftir. Verður að vona að
þess háttar leiðsögn komi ekki
aftur til á Íslandi, í bráð né
lengd.
Við áramót
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen
2. 1. | Guðmundur R. Lúðvíksson
Gunnar leitaði að Guði á
fótboltavellinum!
Sagt er að Guð búi innra með
manni og kannski Gunnar
ætti frekar að leita þar frem-
ur en í háloftunum eða á fót-
boltavöllum?
3.1. | Jón Steinar Gunnlaugsson
Þagað í hel?
Ef allt væri með felldu bæri
íslenska ríkinu að höfða mál
gegn forseta Hæstaréttar til
embættismissis. En hann er
látinn í friði.
5.1. | Þorkell Sigurlaugsson
Landspítalinn –
stærsta velferðarmálið
Það er hagur allra Íslendinga
að við stöndum saman um
nauðsynlegar endurbætur og
viðbyggingu Landspítalans
við Hringbraut.
6.1. | Steingrímur Ari Arason
Hækkun í haga
Við nánari athugun kemur í
ljós að hagfræðingarnir í
Borgartúninu hafa ekki tekið
tillit til kostnaðarlækkunar-
innar í ársbyrjun 2014 sem
fylgdi læknasamningnum.
7.1. | Guðrún Hafsteinsdóttir
Áramót eru tímamót
Fagmennska hefur ávallt ein-
kennt íslenska iðnaðarmenn.
Til að halda því góða orðspori
verða vinnubrögð að vera ög-
uð og skilvirk
9.1. | Kristín Heimisdóttir
Stöndum vörð um
Karíus og Baktus
Ætla yfirvöld borgarinnar að
halda áfram að koma emb-
ættismönnum sínum í þá
vandræðalegu stöðu að
fylgja reglum, sem ganga í
raun gegn hagsmunum barna?
10.1. | Svana Helen Björnsdóttir
Siðvit
Foreldrar eru börnum sínum
fyrirmynd, einnig veltur á að
stjórnvöld séu fyrirmynd um
sanngirni, orðheldni, réttlæti,
góða hegðun og siði.
12.1. | Hjörleifur Guttormsson
Ögurstund nálgast í
loftslagsmálum
Forystumenn hérlendir hafa
mikla æfingu í að tala
tungum tveim þegar kemur
að loftslagsmálum.
13.1. | Pálmi Jónsson
Íþróttamaður ársins 2014
Val á liði ársins var einnig
undarlegt. Ekkert lið komst
með tærnar þar sem landslið
okkar í hópfimleikum kvenna
hafði hælana.
14.1. | Arnar Styr Björnsson
Falskar forsendur
Evrópusambandsins
Evrópusambandið byggist á
þeirri hugmyndafræði að
þjóðríkið sé úrelt fyrirbæri og
jafnvel hættulegt.
15.1. | Stefán S. Guðjónsson
Tímabundin vörugjöld
í hálfa öld stórsigur til
aukins verslunarfrelsis
Til grundvallar vörugjöldum á
þvottavélar, ísskápa og fleiri
heimilistæki lá til dæmis sú
skoðun að um væri að ræða
„lúxusvarning“.
16.1. | Ólafur Helgi Kjartansson
Hinn kaldi hrammur snævarins
Vonina gáfu menn ekki upp.
Upp úr stendur hversu van-
búnir við Íslendingar vorum
til þess að takast á við þá
ógn sem fylgir snjónum.
17.1. | Magnús E. Kristjánsson
Sóknargjöld eru félagsgjöld
Það sem mörgum okkar
finnst hinsvegar óeðlilegt og
ósanngjarnt er að sókn-
argjöld voru skert meira en
sem nam þeirri lækkun sem
var á útgjöldum stofnana ríkisins.
19.1. | Gréta Björg Egilsdóttir
Afglöp í starfi eða
pólitískur þrýstingur?
Þegar nýtt deiliskipulag fyrir
Reykjavíkurflugvöll var aug-
lýst í desember 2013 og jan-
úar 2014 bárust skipulags-
fulltrúa Reykjavíkur alls 43
athugasemdir.
20.1. | Guðvarður Jónsson
Læknadeilunni lokið
Fái kjaradeilur að þróast með
þessum hætti verður heil-
brigðisþjónustan aðeins virk
fyrir yfirstéttir þjóðfélagsins.
21.1. | Bjarni Benediktsson
Í minningu Ólafs Thors
Það verður best gert með því
að halda verkum Ólafs á lofti,
fylgja fordæmi hans og reyna
eftir bestu getu að temja sér
þá mannkosti og vinnubrögð
sem gerðu hann að einum merkasta
stjórnmálamanni Íslandssögunnar.
22.1. | Ásmundur Einar Daðason
Fjármálastofnanir, sektir
og samfélagsábyrgð
Ríkisstjórnin stendur fast á
þeirri stefnu að fjármála-
stofnanir og þrotabú föllnu
bankanna eigi að skila til sam-
félagsins eðlilegu framlagi.
23.1. | Katrín Jakobsdóttir
Þróum lýðræðið, aukum
áhrif almennings
Það er knýjandi nauðsyn að
reynsla síðustu ára verði nýtt
með skipulegum hætti og
þátttaka almennings í opin-
berri stefnumótun verði aukin.
24.1. | Helgi Sigurðsson
Geirfinnsmál fyrr og nú
Annar þeirra sem fóru með
frumrannsókn Geirfinns-
málsins var að lokum leystur
frá störfum og dæmdur fyrir
refsiverða háttsemi vegna
rannsóknarstarfa.
26.1. | Arnar Eggert Thoroddsen
Björk og þögnin ærandi
Er virkilega ekki vettvangur
fyrir menningarrýna að stíga
fram og taka púlsinn á svona
viðburði eins og öðrum?
27.1. | Jóhannes Karl Sveinsson
og Þorsteinn Þorsteinsson
Endurreisn bankakerfisins
Málið snýst um
mat á eignum
sem fluttar
voru með rík-
isvaldi til nýju
bankanna. Samkvæmt lögum þurfti að
verðmeta eignirnar og svo þurfti nýi eig-
andinn að borga. Íslenska ríkið átti ekki
þessar eignir og greiddi ekki fyrir þær.
28.1. | Víglundur Þorsteinsson
Um undirmál og lögbrot
Í lögskýringu skipta öllu orðin
„einstakra útlána, ekki fer á
milli mála að lánin voru lækkuð
og færð þannig í nýja banka.
29.1. | Stefán E. Matthíasson
Sjúkrahótel skynsamleg
forgangsröðun?
Það þykir sem sagt ekki tiltöku-
mál að þeir sem þurfa á þessari
þjónustu að halda búi við óvið-
unandi bráðabirgðalausn í allt
að áratug til viðbótar.
30.1. | Hannes H. Gissurarson
Reiðilestur í stað rannsóknar
Aðferðin í þessari bók er einföld. Hún er
að hrúga saman ýmsum hugmyndum,
sem höfundum er í nöp við,
og kalla einu nafni orsök, en
lýsa síðan bankahruninu sem
afleiðingu þessara hug-
mynda.
31.1. | Kjartan Magnússon
Ósannindi Dags B. Eggertssonar
um sameiningarklúðrið
Sjálfstæðisflokkurinn studdi
aldrei umræddar breytingar
eins og Dagur B. Eggertsson
heldur ranglega fram, heldur
lagðist einarðlega gegn þeim.
3.2. | Erna Bjarnadóttir
Stöndum vörð
um íslenskan landbúnað
Þó má draga þær ályktanir
að tollvernd hafi í raun dreg-
ist saman þegar litið er til
aukinna tollkvóta og lækk-
unar tolla á vörum frá ESB.
4.2. | Ragnheiður Davíðsdóttir
Ísland stenst ekki samanburð
Á alþjóðadegi krabbameins
er sorglegt að þurfa að
minna á að Ísland stendur
langt að baki öðrum þjóðum
hvað varðar kostnaðarþátt-
töku almennings í heilbrigðiskerfinu.
5.2. | Ólína Þorvarðardóttir
Hverjir eiga að borga? Auðlinda-
gjald eða náttúrupassi?
Þeir eiga að borga sem nýta
og græða. Ferðaþjónustan er
undirstöðuatvinnugrein og
getur vel greitt auðlindagjald
fyrir að nýta náttúruperlur.
6.2. | Hrannar Hafberg
Leiðrétting um störf
aðstoðarmanna dómara
Lengi vel störfuðu löglærðir
fulltrúar hjá stofnunum og
embættum sem fóru með
dómsvald og þeir jafnan
nefndir dómarafulltrúar.
7.2. | Leifur Magnússon
Verk- og vindeyðandi viðtal
Reykjavíkurborg studdi fram-
an af tillögu um alhliða sam-
göngumiðstöð, og ég þekki
þokkalega til þeirrar um-
ræðu.
9.2. | Bragi V. Bergmann
Ósæmileg skrif um
íslenska knattspyrnu
Íslenskir knattspyrnudóm-
arar eru vandaðir og strang-
heiðarlegir einstaklingar sem
einhverra hluta vegna velja
sér þetta „starf.
10.2. | Gestur Ólafsson
Að eignast eigin íbúð
Opinberir aðilar, bæði ríki og
sveitarfélög, hafa ýmsar leið-
ir til að auðvelda fólki að
eignast íbúðarhúsnæði ef
einhver vilji er fyrir hendi.
11.2. | Hreggviður Jónsson
Rekstur hins opinbera
á krossgötum
Skuldastaða hins opinbera er
enn slæm, vaxtabyrði mikil
og framundan eru breytingar
í aldurssamsetningu þjóð-
arinnar.
12.2. | Friðrik Pálsson
Ágætu Valsmenn –
Sýnið sáttavilja og reisn
Skipulagi Hlíðarendasvæð-
isins má breyta þannig að allt
fyrirhugað byggingamagn
Valsmanna verði staðsett
þannig á svæðinu að neyð-
arbrautin gæti áfram sinnt sínu mikilvæga
öryggishlutverki.
14.2. | Gústaf Níelsson
Brennimerktur, bannfærður
og útskúfaður
Vorum við Sveinbjörg Birna
samdóma um það að skip-
unin gæti framkallað einhver
viðbrögð, enda ég flokks-
bundinn sjálfstæðismaður.