Morgunblaðið - 31.12.2015, Qupperneq 57
57
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. DESEMBER 2015
16.2. | Jón Bjarnason, Jóhanna María
Sigmundsdóttir og Halldóra Hjaltadóttir
Ísland og umheimurinn
Síðustu ár höfum við hins vegar fengið yfir
okkur hótanir Evrópusambandsins um
viðskiptaþvinganir og löndunarbann, þeg-
ar við veiddum fisk eins og makríl innan
okkar eigin landhelgi
17.2. | Kristján Þ. Snæbjarnarson
Hin meinta þjóðarsátt 2013
Stjórnvöld þurfa að hafa ein-
hvern örlítinn skilning á því
hvernig nauðsynlegt er að
standa vörð um jöfnuð í sam-
félaginu.
19.2. | Jón G. Tómasson
Þorrasel
Hef ég ekki áður, hvorki hjá
ríki eða borg, kynnst eins
óvönduðum vinnubrögðum,
og viðhöfð hafa verið í þessu
máli.
21.2. | Gréta Björg Egilsdóttir
Stóra hjálma- og
tannburstamálið
Við teljum það ekki brjóta í
bága við leiðbeinandi reglur
umboðsmanns barna þó að
grunnskólabörn í Reykjavík
fái gefins hjálma eða tann-
hirðuvörur
23.2. | Ólafur Helgi Kjartansson
„Rótarý, umheimurinn
,áhrifin og gagnið“
Viðtakandi forseti Rotary Int-
ernational skildi ekkert í því
af hverju litháískir rótarým-
enn fögnuðu þessum Íslend-
ingi svo mjög.
24.2. | Arnar Sigurðsson
Sama hvað þú kýst,
ríkið vinnur alltaf
Öllum má vera ljóst að ef
aukning hefur orðið í notkun
á landupplýsingum eru það
einmitt rök fyrir því að hið
opinbera dragi sig út af við-
komandi markaði.
25.2. | Gunnlaugur Björnsson
Má bjóða þér snákaolíu?
Ég á við þá hugmynd að með
því einu að breyta stillingu
klukkunnar muni geðheilsa
þjóðarinnar stórlagast, ung-
lingar hætta að vera syfjaðir
og þreyttir á morgnana og við Íslendingar
almennt hætta að drolla frameftir á kvöld-
in.
26.2. | Sverrir Haukur Gunnlaugsson
Alvarlegt ástand
á innleiðingu EES-gerða
Norðmenn leggja mun meiri
rækt en Íslendingar við að
koma að mótun gerða sem
eru í undirbúningi hjá ESB.
27.2. | Snorri Snorrason
Opið bréf til forsætisráðherra
Reykjavíkurflugvöllur
Ég skora á stjórnvöld að
standa vörð um flugvöllinn,
ykkur ber að gera það. And-
varaleysi í þessu máli er ól-
íðandi.
28.2. | Jóna Valgerður Kristjánsdóttir
Hvað er Öldungaráð?
Við eldri borgarar þessa
lands verðum að láta meira í
okkur heyra. Alltaf kemur
öðru hvoru upp umræða um
vandamál hér og þar sem
tengjast umönnun aldraðra.
2.3. | Árni Sigfússon
Hvernig tókst að skapa
metnað um menntun?
Það þarf þó stöðugt að vera
á verði. Pólitískur áhugi og
skilningur á forvarnar- og
menntamálum má ekki
dvína. Hann er afar sterkur
hjá núverandi menntamálaráðherra. Nýt-
um þann byr.
3.3. | Haukur Arnþórsson
Spilla ríkisstofnanir almannafé?
Hugbúnaðargerð stofnana í
eigin tölvudeildum gæti spillt
almannafé umtalsvert og
unnið gegn eðlilegum mark-
miðum við tölvuvæðingu rík-
isins.
4.3. | Árni Þormóðsson
Á að selja innviði samfélagsins?
Munurinn á núverandi eign-
arhaldi orku- og veitufyr-
irtækjanna er sá að ávinning-
urinn af rekstrinum rennur til
eigandans, almennings, ekki
til fjárfesta.
6.3. | Ómar Ragnarsson
Hagavatnsvirkjun: Aurburður
og nýir leirstormar
Reynt er að breiða yfir það að
nýtt og stækkað Hagavatn
verður miðlunarlón og að það
mun fyllast af nýjum auri með
nýjum leirstormum á vorin.
7.3. | Þórey Vilhjálmsdóttir
Eitt mesta tækifæri þjóðarinnar
Með formi einkarekstrar skapast fjölbreytt
tækifæri fyrir konur til að
ráðast í eigin rekstur og vera
þá ekki bundnar við aðeins
einn viðsemjanda.
9.3. | Kári Stefánsson
Þegar alþingismenn
gera í skóna sína
Áfengi er nefnilega ávana-
bindandi fíkniefni sem ég er
viss um að flytjendur frum-
varpsins vita þótt þeir láti nú
eins og þeir geri það ekki.
12.3. | Marta B. Helgadóttir
Náttúran getur ekki beðið
Umhverfisáhrif ferðaþjónust-
unnar þarf að skoða sem um-
hverfismál en ekki bara sem
ferðamál. Við höfum skyldur
við náttúruna og komandi
kynslóðir.
13.3. | María Soffía Gottfreðsdóttir
Blinda af völdum gláku
Ég hvet alla sem hafa ætt-
arsögu um gláku að leita
reglulega til augnlæknis og
glákusjúklinga til að kynna
sér öll meðferðarúrræði sem
í boði eru.
16.3. | Gunnar Bragi Sveinsson
Athugasemdir við erindi
stjórnarandstöðunnar til
forystu Evrópusambandsins
Það sem meginmáli skiptir er
að með bréfi ríkisstjórn-
arinnar hefur endapunkt-
urinn verið settur aftan við
umsóknarferli sem gangsett
var án þess að fullur hugur fylgdi máli og
nýtur ekki meirihluta stuðnings á Alþingi.
17.3. | Axel Kristjánsson
ESB-blekkingar
samfylkingarmanna
Síðan varð að þröngva Icesa-
veskuldbindingum Lands-
bankans upp á þjóðina með
Steingrím J. sem verkstjóra.
19.3. | Halldór Blöndal
Nokkur orð til Þorsteins
Pálssonar frá Halldóri Blöndal
Ekki skil ég hvað Þorsteini
Pálssyni gengur til þegar
hann kallar það gerræði að
nýr meirihluti á Alþingi skuli
haga landsstjórninni í sam-
ræmi við yfirlýsta stefnu og markmið.
20.3. | Bjarni Harðarsson
Vill stjórnarandstaðan þjóð-
aratkvæðagreiðslu um ESB?
Sömu þingmenn börðust hatrammlega
gegn því að ESB-málið færi í þjóð-
aratkvæði á síðasta kjörtímabili. Allt bend-
ir til að afstaða þeirra sé óbreytt.
21.3. | Árni Gunnarsson
Gott má af góðu hljóta
Hlutverkasetur hefur stuðlað
að endurhæfingu mikils
fjölda einstaklinga, sem áður
sátu í myrkri einsemdar og
vonleysis.
23.3. | Sighvatur Björgvinsson
Hrollvekjusaga
Aðeins einu ári fyrir 100 ára
afmæli íslenskrar jafn-
aðarstefnu hefði verið hægt
að flytja henni meiri heilla-
fréttir en fluttar voru á síð-
asta flokksþingi Samfylkingarinnar, sem
haldið verður fyrir afmælisárið
23.3. | Indriði Aðalsteinsson
Vargar í véum opið bréf
til umhverfisráðherra
Kostnaðaraukningu ríkisins
er sjálfsagt að mæta með því
að þú segir upp vargavernd-
arfólkinu þínu, öllu með tölu.
Fullgild ástæða er gróf van-
ræksla á þeirri starfsskyldu að vernda líf-
ríkið fyrir offjölgun vargs og ganga þannig
freklega gegn hagsmunum og lífsgæðum
þjóðarinnar.
24.3. | Ásgerður Halldórsdóttir
Háttvísi og sólmyrkvi
Sævar Helgi á sannarlega
þakkir skilið og leitt að hann
hafi þurft að upplifa dónalega
framkomu og áreitni fyrir
það eitt að hafa frumkvæði
að því að gefa gleraugun. Þessi umræða
er mér óskiljanleg.
25.3. | Óli Björn Kárason
Lokað á olíuævintýri
Samfylkingarinnar
Þátttaka samfylkinga í rík-
isstjórn á komandi árum mun
auka hina pólitísku áhættu
og draga úr áhuga fjárfesta á
íslensku atvinnulífi á öllum
sviðum.
26.3. | Ólafur H. Johnson
Er Hraðbraut hagkvæmur skóli?
Eins og fram var komið hefur
þú neitað Hraðbraut um nýj-
an þjónustusamning. Það
hefur væntanlega verið gert
á grundvelli fjárhagslegrar
hagkvæmni fyrir ríkið eins og þú lofaðir á
fundi okkar.
27.3. | Vilhjálmur Bjarnason
Um siðrof og dæmi
um það á Íslandi
Þannig er siðrof hugtak sem vísar til upp-
lausnar samfélags þar sem samheldni og
hefðbundið skipulag, sér-
staklega það sem tengist við-
miðum og gildum hefur
veikst og við tekur lögleysa.
28.3. | Friðrik J. Arngrímsson
Því ruglaðist Þorsteinn
Pálsson í ríminu
Vinstri flokkarnir hafa lengi
predikað ríkisvæðingu ís-
lensks sjávarútvegs með því
að hirða aflaheimildir af út-
gerðunum og gera þær upp-
tækar til ríkisins.
30.3. | Helgi Laxdal
Einfaldara að skipta
tapi en gróða
Það verður afar fróðlegt að
fylgjast með framgangi
þessa máls því mér sýnist að
útgerðin geti ekki með
nokkru móti rökstutt sína
kröfu um skertan hlut sjómanna
1.4. | Árni Björn Guðjónsson
Fjölgun ferðamanna til Íslands
Það eru því allar líkur á því
að ferðamenn til Íslands
verði 8,2 milljónir 2025 hvort
sem okkur líkar vel eða ekki.
2.4. | Kristján Valur Ingólfsson
Dymbilvika og páskar
Það eru til ýmsar leiðir til
þess að gefa sér tóm til að
minnast þess innan kirkju
sem utan hver gaf okkur alla
þessa frídaga.
4.4. | Haraldur Benediktsson
Stjórnarandstaðan fellur
frá fyrirvörum Alþingis
Þar kom m.a. fram að ákvæði
greinargerðar þingsályktunar
Alþingis í ýmsum málaflokk-
um væru þess eðlis að ekki
yrði hægt að ljúka ferlinu
nema fallið yrði frá þeim.
7.4. | Anna Margrét Sigurðardóttir
Veitum börnum athygli
Til að ná lestrarfærni þarf
mikla og reglulega þjálfun.
Daglegur lestur með for-
eldrum er lykilþáttur í þeim
efnum.
8.4. | Guðjón Smári Agnarsson
Útvarp vinstrimanna
Þessi vinstri einstefna í frétt-
um og fréttaþáttum RÚV er
óþolandi. Ef ekki verður
breyting á fljótlega legg ég til
að fréttastofa RÚV verði lögð
niður og féð sem sparast notað til þess að
lækka útvarpsgjaldið.
11.4. | Þórarinn V Þórarinsson
Selsem-gull
Þessar svokölluðu gjaldeyr-
iseignir bankanna hafa þann-
ig rýrnað um einhver hundr-
uð milljarða fyrir tilstuðlan
dómstólanna.
14.4. | Tryggvi Kristjánsson
Rauða fjöðrin seld til að
safna fyrir blindrahundum
Innilegar þakkir færum við
öllum þeim sem leggja lóð
sín á þessar vogarskálar og
taka um leið þátt í því að
auðvelda blindum og sjón-
skertum virka þátttöku í samfélaginu og
auka lífsgæði þeirra svo um munar.
15.4. | Ögmundur Jónasson
Auðkenni: einkavædd einokun
Það er vegna þess að mér of-
býður að Fjármálaráðuneytið
skuli vera notað til að
þröngva okkur upp í fangið á
fyrirtæki sem ætlar að gera
vegabréf á netinu sér að féþúfu.
16.4. | Guðvarður Jónsson
Húsnæðisokrið
Það er mun hagkvæmara fyr-
ir ríki og sveitarfélög að að-
stoða fólk við að kaupa íbúð
en eyða háum fjárhæðum í
endalausar niðurgreiðslur á
húsaleigu.
Morgunblaðið/Golli
Aldarafmæli Þess var minnst hinn 19. júní að hundrað ár voru liðin frá því að konur fengu kosningarétt til Alþingis. Afmælið setti mikinn svip á árið.