Morgunblaðið - 31.12.2015, Síða 59

Morgunblaðið - 31.12.2015, Síða 59
Nei, aldrei aftur 2000% verðbólgu og 1% kaupmátt- araukningu, eins og var á 20 ára tímabilinu 1970 til 1990 23.6. | Sigurður Ingi Friðleifsson Olíublauta auðlindin mín Útgerðarfyrirtæki verða að sýna ábyrgð og styðja við þróun á nýju eldsneyti frekar en að sitja bara á kantinum og bíða eftir töfralausnum. 24.6. | Guðlaugur Þór Þórðarson Bankahroki Afstaða bankanna einkennist af hroka og virðingarleysi fyr- ir hagsmunum almennings. Skattgreiðendur eiga betra skilið. 26.6. | Sigurbjörn Sveinsson Þjóð á hreyfingu Vísindi síðari ára benda hins vegar í æ ríkara mæli til mik- ilvægis hreyfingar við fyr- irbyggjandi heilsuvernd. 29.6 | Margrét Sanders og Andrés Magnússon Einkarekstur í heilbrigðis- kerfinu hefur reynst vel Hvorki einka- rekstur né op- inber rekstur er hafinn yfir gagnrýni, um- ræðan um þessi mál verður hins vegar að vera málefnaleg. 30.6 | Páll Bergþórsson Vítahringir íssins í Norðurhafi Tími getur verið kominn til náttúrulegrar kælingar víta- hringsins í áratugi, jafnvel svo að vegi á móti jarð- arhlýnun. UMRÆÐAN 59 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. DESEMBER 2015 1.7 | María Anna Þorsteinsdóttir Hvenær læra þau fyrir skólann? Í nágrannalöndum okkar fell- ur enginn kostnaður vegna framhaldsskólanáms á nem- endur heldur kostar ríkið námið.Verður það einnig hér? 2.7 | Guðmundur Þorgeirsson Staðsetning háskólasjúkrahúss Aftur komu erlendir sérfræð- ingar að málinu og sá mögu- leiki skoðaður að byggja ekki heldur búa í aðalatriðum við óbreyttan húsakost. 3.7 | Gunnar Andri Sigtryggsson Lögreglumenn vilja fá rafbyssur til að verja sig Ég lít svo á að lögreglumaður verði að vera starfi sínu vaxinn. Lög- reglumenn verða að hafa lík- amlega burði til að sinna svo vandasömu starfi sem raunin er. 4.7 | Vigdís Hauksdóttir Skítug orka og aflátsbréf ESB Þannig eru raforkusalar hér á landi að neyða framleiðendur til að kaupa sig frá skítugum orkuaflátsbréfum til að geta vottað vöru sína græna. 7.7 | Jóhannes Loftsson Rögnuskýrsla ótrúverðug vegna ólöglegra reikniskekkja Grunnforsendur Rögnu- skýrslu standast engan veg- inn, því að allir flugvallarkost- irnir sem eru kostnaðarreiknaðir eru tveggja brauta og því líklega ólöglegir. 8.7 | Helgi Hjálmarsson Útvarpshúsið Þar sem ég hef taugar til Út- varpshússins og þess rekst- urs, sem þar fer fram, mælist ég til að svæðinu sunnan hússins við Bústaðaveg og við Efstaleiti verði hlíft 9.7 | Pálmi Stefánsson Er kjöt- eða fiskát hollt eldra fólki? Kjöt og fiskur inniheldur lítið af kalki og járni auk þess sem fitan myndar eiturefni við t.d. grillun. Ofneysla veldur fyrr eða síðar heilsutjóni. 10.7 | Þorsteinn Sæmundsson Er kaupmönnum treystandi? Það er verðugt verkefni versl- unar, samtaka launafólks, neytendasamtaka og stjórn- valda. Þá verður máski möguleiki að varpa ljósi á verðmyndun á Íslandi að einhverju leyti. 11.7 | Gunnar Kristjánsson Lífríki og lífsstíll En vandinn snýr einnig að menningu sem metur lítils fegurð náttúrunnar og þar með gildi hennar eins og hún er í sjálfri sér. 14.7 | Elías Elíasson Sviðsmynd Landsvirkjunar og sæstrengsumræðan Bæði vindmyllur og stækk- anir eldri virkjana gefa af sér ótrygga orku og þegar mögu- legar bilanir eins sæstrengs eru teknar með, þá verður af- hendingin enn ótryggari. 17.7 | Vilhjálmur Bjarnason Skálholt er meira en minningin og hærra en sagan Einn var sá draumur sem menn vildu sjá rætast en það var endurreisn Skálholts- staðar. Í Skálholti var fólgin mikil saga kirkju og stjórn- sýslu. 18.7 | Sigríður Snæbjörnsdóttir Tímamót í heilbrigðisþjónustu Óhætt er að fullyrða að reynsla þeirra lækna sem starfa á Klíníkinni er al- þjóðleg, bæði skurðlækna og svæfingalækna. 21.7 | Jón Steinar Gunnlaugsson Dómari óskast Þeir sem rétturinn hefur valið síðustu árin og komið hafa inn sem nýir dómarar hafa sýnt sig í að lúta þessu vinnulagi. Allir sæmilega þenkjandi menn, sem hafa fylgst með þessu, hafa séð árangurinn. 24.7 | Friðrik Daníelsson Rússagrýlan vakin upp frá dauðum Upplausnaröflunum og er- indrekum ESB, NATO og Bandaríkjanna tókst að flæma löglega stjórn Úkraínu frá völdum. 25.7 | Guðni Ágústsson Ferðamennirnir eru ekki sökudólgarnir Það þarf líka stefnu til að dreifa mannfjöldanum og skipuleggja ferðirnar um landið, vegakerfið er veikt, þar er víða þörf úrbóta. 27.7 | Ögmundur Jónasson Gefið fyrir markið Mér finnst ekki koma til greina að ein einasta króna fari til þess að búa til kerfi mismununar eins og einka- væddur sjúkrahúsrekstur á endanum gerir. 28.7 | Steinunn Jóhannesdóttir Minningin og sagan í Skálholti Flest er breytt í Skálholti frá því að Ragnheiður og Daði gáfu sig ástinni á vald nokkra ljósa sumardaga árið 1661, flest nema víður og fagur fjallahringurinn sem blasir við frá stein- inum hennar. Flest breytt nema fegurðin og mannlegt eðli 29.7 | Óli Björn Kárason Ögmundar-mantra við innanmeinum í VG Stundum skrifar hann til heimabrúks fyrir félaga sína og skoðanasystkini. Skrif af því tagi eru eðlileg og oft nauðsyn- leg í innanflokksátökum. 30.7 | Páll Torfi Önundarson Hörpuborg eða Hörputorg? Ég er talsmaður þess að reist verði hótel við Hörpu á norð- vesturbakka lóðarinnar en til- laga mín er sú að ekki verði byggt austanvert á lóðinni frá Hörpu að Lækjartorgi og að svarta húsið á Lækjartorgi verði rifið 31.7 | Gunnar Kristinn Þórðarson Fjárreiður Innheimtu- stofnunar og fjárreiður meðlagsgreiðenda Ef stjórnvöld ætla að brjóta lög og velsæmi á tilteknum þjóðfélagshópi, er betra að þau séu ekki sjálf með allt niður um sig. 1.8 | Jens Garðar Helgason Vinsamleg samskipti við Rússland Ísland hefur átt langt og far- sælt viðskiptasamband við Rússland. Sú langa saga stóð órofin þótt kalt stríð geisaði um áratuga skeið og bandarísk herstöð hafi verið staðsett á Miðnesheiði. 4.8 | Erling Garðar Jónasson Aldraðir verða að eignast vildarvini Það má með sanni segja að Alþýðusambönd landsmanna og lífeyrissjóðir hafi vísað á dyr öllum væntingum hinna vinnandi stétta eftir vinnulok og gera enn. 5.8 | Helgi Seljan Horfa skal til skuggahliðanna Mér eru þó meira í hug öll þau skelfilegu áhrif sem þessi gleðigjafi hefur í sam- félagi okkar, þau óafturkrefj- anlegu mein sem hann skap- ar í öllum áttum. 6.8 | Viktor Stefánsson Evrópuandúð og Rússagull? Hvernig getur núverandi þingmaður okkar og fyrrum ráðherra haldið því fram með góðri samvisku að Íslend- ingar eigi ekki í útistöðum við Rússa? 7.8 | Páll Jóhann Pálsson Á bjargi byggði hygginn maður hús, á sandi byggði Faxaflóamódelið hefur reynst vel og því spyr ég hvort ekki megi skoða þann möguleika að taka Þorlákshöfn og hafn- ir á Reykjanesi inn í Faxaflóa- hafnir. 8.8 | Jón Bjarnason Sýnum sjálfstæði í utanríkismálum Almennar viðskiptaþvinganir eru stórpólitísk aðgerð. Ut- anríkisráðherra Íslands verð- ur að hafa skýrt umboð, taki hann þátt í slíku. 10.8 | Egill Þór Níelsson og Helgi Már Jósepsson Fríverslunarsamningur við Kína: Vannýtt tækifæri eða hæg framför Ísland varð fyrst Evr- ópuríkja til að undirrita frí- verslunarsamn- ing við Kína. Það er í okkar höndum hvort hann reynist happafengur eða glatað tækifæri. 12.8 | Stefanía Jónasdóttir Forréttindi og fleira Flóttafólk fær íbúðir, mat og læknisþjónustu og er það vel, en hvað með landsmenn sem lifa við skort og hafa sett fé í velferðarkerfið okkar? 13.8 | Sturla Kristjánsson Lestrarkennsla Það gengur aldrei upp að kenna nemendum fæddum á sama ári sömu hluti á sama tíma með sömu aðferðum og ætlast til þess að allir skili sama árangri! 14.8 | Ómar G. Jónsson Hugleiðingar um ferðamál og umhverfi Þingvallavatns Vonandi fara flestir að sett- um reglum við vatnið, t.d. varðandi báta, því á ísköldu vatninu geta skapast hættu- legar aðstæður án minnsta fyrirvara. 15.8 | Reynir Arngrímsson Landspítalinn sjúkrahús og háskóli Árið 2014 voru 1.605 nemar við nám á spítalanum. Þeir mega ekki gleymast þegar hugað er að húsnæði spít- alans og skipulagi. 17.8 | Bragi Jósepsson Skólamál: Hvað höfum við lært? Það er skoðun mín að alvarlegustu og langvinnustu mistök skólakerfisins frá upphafi séu þau að hafa klúðrað kennslu- úrræðum fyrir seinþroska börn með því að álíta að þar væri um greindarskort að ræða. 18.8 | Þorsteinn Sæmundsson Hugleiðingar um Hiroshima Sumir þeirra friðarsinna sem fordæma kjarnorkuárásirnar hafa annað í huga. Þeir vilja nota tækifærið til að sverta Bandaríkjamenn, einu þjóð- ina sem hafi beitt þessu ægilega vopni. 19.8 | Jóhannes Ingi Kolbeinsson Óhæfir stjórnendur banka og kortafyrirtækja Brot fyrirtækjanna fólust í að kortafyrirtækin Valitor og Borgun gátu í skjóli þess að þau voru í eigu sömu aðila, bankanna, samræmt gjaldskrá sína og haft svokölluð milligjöld óeðlilega lág. 20.8 | Heiðar Guðjónsson Hvers vegna heldur Seðlabankinn lífskjörum almennings niðri? Við þær aðstæður sem nú eru alþjóðlegar, þar sem íslenska hagkerfið vex langt umfram hið evrópska, er fráleitt að festa gengi gjaldmiðlanna 21.8 | Hafsteinn Sigurbjörnsson Átökin í Straumsvík Því ef þetta næst hjá álverinu í Straumsvík þá koma aðrir á eftir. Því staðreyndin er sú að eina vopn launafólks er sam- takamáttur þeirra við ótæm- andi græðgi peningamanna, þeirra sem stýra þeim og dýrka þá. 22.8 | Guðný Guðjónsdóttir Ungur iðnaður með framtíðina fyrir sér Því hefur verið haldið fram að kvikmyndagerðin hljóti íviln- unar umfram aðrar atvinnu- greinar en þegar hlutirnir eru skoðaðir í stærra samhengi stenst það ekki. 25.8 | Óskar Þór Karlsson Í bland við tröllin Þær ákvarðanir sem íslensk stjórnvöld hafa tekið í þessu máli bera þess því miður öll merki að vera hreinn flumbrugangur. 26.8 | Guðmundur Jónas Kristjánsson Hægri grænir álykta Vert er að hvetja allt þjóðhollt borgarasinnað fólk að koma nú til liðs við Hægri græna. Tóma- rúmið til hægri verður að fylla! 27.8 | Einar S. Hálfdánarson Um viðskiptabann Rússlands gegn Íslandi Rússar þurfa að hugsa sig vel um hvernig þeir eyða tak- mörkuðum gjaldeyri. Og hvað er betra til heimabrúks en koma með svona líka hraust- lega atlögu að minnsta aðildarríki NATO? 28.8 | Þuríður Berglind Ægisdóttir Alþjóðavæðingin tækifæri eða ánauð? Vinnumansal hefur minna verið til umfjöllunar, en þar er brotið á þolendum í tengslum við atvinnuþátttöku þeirra. 29.8 | Ársæll Þórðarson Óþjóðhollur? Á næsta ári þarf forsætisráð- herra að halda hátíðaræðu sína í sveitarfélagi sem treyst- ir sér til að halda uppi röð og reglu og tryggja hátíðaræðu hans gott hljóð á 17. júní hátíðahöldum. 31.8 | Pálmi Stefánsson Að forðast ofneyslu prótíns á efri árum Prótín og orkuskortur gerir fljótt vart við sig enda lífs- hættulegt en erfitt er í raun að forðast langvarandi ofneyslu orkufæðu og afleiðingarnar. Morgunblaðið/Árni Sæberg
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.