Morgunblaðið - 31.12.2015, Side 74
74 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. DESEMBER 2015
Ester Gústavsdóttir ætlar að vera með opið hús í dag fyrir viniog fjölskyldu í tilefni fertugsafmælisins. „Svo held ég upp ááramótin með stórfjölskyldunni.“ Þess má geta að Ester var
síðasta stúlkubarnið sem fæddist á kvennaárinu, 1975, og birtist grein
um það í dagblöðunum.
Áramótaheitin hjá Ester eru að sinna áhugamálunum betur. „Ég er
nýkomin úr barneignarleyfi og hef verið í smá pásu frá þeim. Áhuga-
málin eru meðal annars fjallaskíði, fjallahjólreiðar, fallhlífarstökk og
skotveiði. Ég náði að veiða nokkrar rjúpur í haust og vorum við með
þær í fyrsta sinn í matinn þessi jól. Í sumar stefni ég að því að stunda
klettaklifur, en kærastinn gaf mér klifurbelti í jólagjöf. Ég held að
klifur, fjallahjól og skíðasportið séu tilvalin áhugamál til að stunda
með eldri strákunum mínum á árinu og það styttist óðum í að sá
yngsti geti farið að taka þátt.“
Ester er verkefnastjóri MBA-námsins í Háskóla Íslands og kom aft-
ur til starfa í september eftir fæðingarorlof. „MBA-námið er í stöð-
ugri þróun og þrátt fyrir að ég hafi verið stutta stund í hléi frá vinnu
þá er margt nýtt og spennandi búið að gerast í náminu og skemmti-
legt að koma til baka.“
Sambýlismaður Esterar er Sigurður Anton Ólafsson, vefstjóri hjá
Icelandair, og sonur þeirra er Ólafur Gústav sem er að verða eins árs
(sjá í „Nýjum borgurum“). Synir Esterar frá fyrra sambandi eru
Valdimar Sæmundsson, 16 ára og nemi í Kvennaskólanum í Reykja-
vík, og Bjarki Sæmundsson 10 ára.
Fjölskyldan Stödd á safni í Washington DC síðastliðið sumar.
Áhugamálin koma
sterk inn á nýju ári
Ester Gústavsdóttir er fertug í dag
S
igrún fæddist í Reykjavík
31.12. 1965 en ólst upp á
Hallormsstað til 12 ára
aldurs og síðan í Hafn-
arfirði. Hún gekk fyrst í
Barnaskólann á Hallormsstað og
síðan í Lækjarskóla í Hafnarfirði. Á
sumrin sinnti hún ýmsum sumar-
störfum, s.s. í garðyrkjustöðinni
Hveratúni í Biskupstungum hjá
uppeldisbróður föður hennar, Skúla
Magnússyni. Síðar stundaði hún
skrifstofustörf á Veðurstofu Íslands
í eitt sumar og vann í fimm sumur á
Edduhótelinu á Hallormsstað, auk
fleiri starfa, m.a. hjá Tommaham-
borgurum í Hafnarfirði og Skóg-
ræktarfélagi Reykjavíkur.
Sigrún lauk stúdentsprófi frá
Flensborgarskóla 1984, B.Ed-prófi
frá KHÍ 1988 og BA-prófi í dönsku
og bókmenntafræði frá HÍ 1990.
Eftir háskólanám Sigrúnar flutti
hún til Egilsstaða og fór að kenna
dönsku við Menntaskólann þar. Auk
þess var hún þar námsráðgjafi um
tíma og aðstoðarskólameistari á ár-
unum 2006-2010. Hún hefur verið
dönskukennari við Egilsstaðaskóla
frá árinu 2011.
Sigrún var oddviti á lista Héraðs-
listans við sveitarstjórnarkosningar
2010 og tók sæti í bæjarstjórn og
bæjarráði Fljótsdalshéraðs eftir
kosningar. Hún varð forseti bæjar-
stjórnar Fljótsdalshéraðs eftir
Sigrún Blöndal, kennari og bæjarfulltrúi – 50 ára
Allir í jólaskapi Börn Sigrúnar og Björns og dætur Björns. Talið frá vinstri: Marta, Sveinn, Sif og Sigurlaug.
Aftur heim í æskuhérað
Á Hallormsstað Sigrún með bræðrum sínum, Sigurði Birni og Benedikt.
Reykjavík Ólafur Gústav Sigurðsson
fæddist 4. janúar 2015 á Landspít-
alanum við Hringbraut. Hann vó 3.880
g og mældist 52 cm á lengd. Foreldrar
hans eru Ester Gústavsdóttir og
Sigurður Anton Ólafsson.
Nýir borgarar
Reykjavík Valgerður Sif Pálsdóttir
fæddist á fæðingardeild Landspítal-
ans við Hringbraut 4. desember 2014
kl. 01.03. Hún var 51 cm löng og 4.086
g. Foreldrar hennar eru Páll Sveinsson
og Þórunn Sighvatsdóttir.
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
Verslun Tunguhálsi 10 - Sími 415 4000
www.kemi.is - kemi@kemi.is
Fyrir börn - Fyrir fullorðna - Fyrir fagmenn