Morgunblaðið - 12.05.2016, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 12.05.2016, Blaðsíða 28
28 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. MAÍ 2016 VIÐTAL Anna Masibil Clausen annamarsy@mbl.is Að kvöldi 12. apríl ræddust Nadezda Edda Tarasova og dóttir hennar Julia við í síma eins og svo oft. Mæðgurnar voru afar nánar þó önn- ur byggi á Akranesi og hin í Rúss- landi, og Nadezda hafði einmitt ver- ið að skoða að kaupa flugmiða til að heimsækja dóttur sína, móður og barnabarn. Samtalið um mögulegt frí við Svartahafið var því gleðilegt, fullt af hlýju eins og öll þeirra sam- skipti. „Hún var kannski móðir mín en hún var líka góðhjartaðasta mann- eskja í heimi,“ segir Julia. „Hún var alltaf brosandi, alltaf í góðu skapi.“ Julia lýsir næsta símtali sem henni barst frá Íslandi sem því versta sem hún hefur fengið. Móðir hennar hafði fundist látin í rúmi sínu. Ljóst þykir að eiginmaður hennar, Guðmundur Valur Óskars- son, hafi skotið hana til bana og síð- an svipt sig sjálfur lífi í stofu heimilis þeirra. Trúir enn ekki því sem gerðist „Ég öskraði bara,“ segir Julia. „Nágrannar mínir komu hlaupandi því ég öskraði svo mikið og ég öskraði þar til læknir gaf mér eitt- hvað, ég man ekki hvað gerðist næst. Það sama gerðist þegar ég kom hingað. Ég trúi þessu ekki enn.“ Við Julia sitjum í gömlum sófa á efri hæð Rússnesku rétttrúnaðar- kirkjunnar við Öldugötu með bunka af ljósmyndum frá móður hennar á milli okkar. Hún talar afar lágri röddu, hvíslar næstum, og er örlítið vot um augun en kemst aðeins í sýni- legt uppnám einu sinni meðan á við- talinu stendur, þegar talið berst að sjö ára syni hennar sem kallað hafði Guðmund Val afa sinn allt sitt líf. Hún grípur andann og lítur í burtu en þó varir hennar titri eitt augnablik leyfir hún ekki tilfinningunum að bera sig ofurliði. Ekki núna. Hún setur tilgang viðtalsins mjög skýrt fram. Hún sér ekki ástæðu til að fara ofan í smáatriði morðsins eða hella úr skálum reiði sinnar. Hún vill segja frá móður sinni sem hún elsk- aði svo heitt, minnast hennar opin- berlega í þeirri veiku von að sagan geti bjargað öðrum konum frá sömu örlögum. Hafði beðið um skilnað Nadezda skildi við föður Juliu árið 1995, þegar Julia var 13 ára gömul. Hún kynntist Guðmundi í gegnum sameiginlega vinkonu stuttu eftir aldamótin og ekki leið á löngu áður en hún flutti til Íslands og giftist honum. Julia heimsótti Nadezdu oft til Ís- lands og var sjálf búsett hér um nokkurt skeið. Amma hennar, móðir Nadezdu, bjó einnig á Íslandi um tíma og Edward, sonur Juliu hefur íslenskan ríkisborgararétt. Julia segir rík tengsl sín við landið hafa verið óumflýjanleg. Þær mæðgur hafi sífellt verið að skipuleggja leiðir til að hittast og hvernig þær gætu búið aftur saman í framtíðinni. „Við mamma vorum mjög nánar. Þegar ég var barn öfunduðu vinir mínir mig alltaf vegna sambands míns við mömmu, hún var meira eins og vinur minn eða systir. Hafið á milli okkar var ekkert. Við vorum í stöðugum samskiptum um allt; elda- mennsku, skólann hjá syni mínum, allt.“ Símtalið þann 12. apríl var þess vegna ekki óvenjulegt þó tilhugs- unin um fjölskyldufrí og endurfundi væri spennandi. Nadezda hafði hins- vegar átt óvenjulegt samtal við eiginmann sinn um þremur vikum fyrr, þar sem hún tilkynnti honum að hún hygðist skilja við hann. Guðmundur hafði glímt við veik- indi árum saman og sagði Nadezdu að ef hún aðstoðaði við umönnun hans myndi hann veita henni skiln- að. Julia segir móður sína hafa ann- ast eiginmanninn vel en aldrei feng- ið skilnaðinn sem hún vildi. Hvort ósk Nadezdu um skilnað hafi verið ástæða þess að Guð- mundur tók sér skotvopnið í hönd er ómögulegt að fullyrða um og Julia vill alls ekki geta í eyðurnar „Ég veit ekki hvort það var ástæð- an eða kannski það að hún ætlaði til Rússlands. Hann var veikur og fólk reyndi að annast hann. Læknirinn skrifaði upp á eitthvað fyrir hann og aðstæður hans voru þekktar því hann talaði við presta og félagsráðgjafa en ég veit ekkert hvað hann sagði. Ég veit í raun ekkert. Ég hef misst hluta lífs míns sem ég veit ekki hvernig ég á að lifa án. Ég veit ekki hvers vegna hann tók hana frá mér þegar hann vissi hvað ég elskaði hana heitt.“ „Hún fann til samúðar“ Þetta var ekki í fyrsta skipti sem Nadezda ákvað að skilja við Guð- mund. Árið 2008 fluttist hún út af heimilinu og inn í íbúð á vegum Rauða krossins. „Þau bjuggu hvort í sínu lagi um nokkra hríð en svo dó sonur hans í slysi. Hann var einmana og bað hana um stuðning og hjálp. Hún vor- kenndi honum og flutti aftur inn til hans til að hjálpa honum. Hann lof- aði henni að hann myndi breytast. Auðvitað upplifði ég það sem svo að hann beitti hana andlegu ofbeldi. Hún hafði meiri gæsku og góðlyndi en nokkur önnur íslensk kona hefði getað sýnt honum. Hún fann til sam- úðar. Hann lofaði að breytast.“ Julia segist vilja greina frá sögu móður sinnar í von um að koma í veg fyrir að aðrar konur mæti sömu ör- lögum. Hún vilji hvetja fólk til þess að láta sig aðra varða og segir nauð- synlegt að nágrannar og samstarfs- menn láti vita þegar þeir upplifa að ekki sé allt með felldu. „Þegar mamma mætti ekki í vinn- una var hringt í hana margoft. Ef ég mæti ekki í vinnuna fæ ég tvö eða þrjú símtöl en ekki á tíu mínútna fresti og enginn myndi hringja á lög- regluna eftir aðeins einn klukku- tíma. Það sama gildir um þig, geri ég ráð fyrir. Fólk getur sofið yfir sig, verið veikt... hlutir koma upp á.“ Julia telur líklegt að samstarfsfólk Nadezdu hafi séð hana í uppnámi, hugsanlega vitað af erfiðleikunum heima fyrir og þó hún kenni þeim ekki um getur hún ekki annað en velt fyrir sér hvort einhver hefði get- að gripið inn í. Eins veltir hún vöng- um yfir morðvopninu. Lögreglan segir Guðmund hafa verið skráðan fyrir tveimur skotvopnum en hefur ekki viljað staðfesta að byssan sem notuð var til að ráða Nadezdu bana hafi verið skráð. „Hvernig ætti ég að geta kennt einhverjum um? Ég get það ekki. En einhvern veginn hlýtur að hafa verið hægt að koma í veg fyrir þetta.“ Hafa ekki sama stuðning Erlendar konur á Íslandi eiga í meiri hættu á að verða fyrir heim- ilisofbeldi en íslenskar konur. Í rannsókn á vegum Kvennaathvarfs- ins frá 2009 kom fram að mikill mun- ur væri á aðstöðu erlendra kvenna sem leituðu til athvarfsins, eftir landfræðilegum uppruna. Konur frá löndum utan EES væru í sumum tilvikum háðar maka varð- andi dvalarlefi sem gerði þær ber- skjaldaðri fyrir heimilisofbeldi. Þá stuðli tungumálaerfiðleikar og lítil þekking á staðháttum að einangrun og auðveldi misnotkun. Undir þetta getur Julia tekið að nokkru leyti. Hún er sammála því að konur frá öðrum löndum búi ekki að sama stuðningi og íslenskar konur en bendir á að móðir hennar hafi fengið aðstoð þegar hún leitaði eftir henni árið 2008. „Þegar hún ákvað að fara frá eig- inmanni sínum voru margar konur sem hjálpuðu henni, íslenskar kon- ur. Hún talaði góða íslensku og var aðlöguð íslenskri menningu. Hún elskaði Ísland og á síðustu árum sín- um leit hún fremur á sig sem Íslend- ing en Rússa.“ Julia tekur fram að jafnvel þó svo að móðir hennar hafi ekki átt fjöl- skyldu hér á landi hafi hún átt vini, ekki aðeins innan rússneska sam- félagsins heldur einnig Íslendinga. Hún er staðráðin í því að ekki verði litið á móður hennar sem nafnlausan útlending, tölu í kerfi eða þá útfrá sambandi hennar við Guðmund Val heldur sem elskaða móður, ömmu og vinkonu. „Það eina sem skiptir máli er að mín yndislega móðir er dáin. Hvern- ig þeirra sambandi var háttað, í hvernig skapi hann var eða afhverju hann gerði þetta skiptir engu máli. Ég vil ekkert slúður. Það sem skiptir máli er að reyna að koma í veg fyrir að þetta gerist aftur.“ Missir sem ekkert fær bætt Julia segist afar þakklát fyrir alla þá manngæsku sem henni hefur ver- ið sýnd. Hún telur þar m.a. upp Rússnesku rétttrúnaðarkirkjuna, Rauða krossinn, Grundarskóla sem og Akraneskaupstað og stéttarfélag Nadezdu sem greiddu allan kostnað við jarðarförina. Þá vill hún koma á framfæri þakklæti sínu gagnvart starfsfólki sendiráðs Íslands í Rúss- landi. „Ég veit að það var sett af stað fjársöfnun fyrir okkur. Fremur en alla peninga heimsins, fremur en að eignast allt Ísland, myndi ég vilja manneskjuna sem ég elskaði mest aftur til mín. Ég vil ekki hugsa um peninga og gæti ekki komist í gegn- um þetta án allrar þessarar hjálpar.“ Framundan er að komast að niðurstöðu um erfðamál þeirra hjóna, Nadezdu og Guðmundar, en Guðmundur átti fjögur börn. Julia segir erfitt að átta sig á hvernig hún geti sótt rétt sinn, enda þekki hún illa til lagaumhverfisins hér á landi. „Ég efast ekki um að lögin vernda mig. Ég trúi að Ísland sé sanngjarnt land og að niðurstaðan verði réttlát gagnvart móður minni. Ég vil bara réttlæti. Ég vil ekkert sem ekki til- heyrir mér. Ég veit ekki einu sinni hvernig ég á að sækjast eftir bótum því ekkert getur bætt þennan missi.“ „Ég vil bara réttlæti“  Nadezda Edda Tarasova var myrt af eiginmanni sínum á Akranesi í apríl  Dóttir hennar segist ekki geta kennt neinum um  Hljóti að hafa verið hægt að koma í veg fyrir voðaverkið Morgunblaðið/Júlíus Vill hjálpa Julia vill minnast móður sinnar opinberlega í þeirri veiku von að saga hennar geti hjálpað öðrum konum. www.veislulist.is Pinnaborð eru afgreidd í öskjum þar s em kaupandi sér sjálfur um að raða þe im á föt eða tilbúnir á á borð á einnota veislufötum. Sé veislan 150manna eð ameira eru allar veitingar afhentar á einnota veislufötum. Hólshraun 3 · 220Hafnarjörður · Símar: 555-1810, 565-1810 Fax: 565-2367 · Netfang: veislulist@veislulist.is · www.veislulist.isSkútan PINNAMATUR FYRIRÖLLTÆKIFÆRI Þú getur lesið allt um pinnamat og aðra rétti á heimasíðu okkar PINNAMATUR Við val á veitingum þarf að hafa í hug a á hvaða tíma dagsmóttakan er og hversu lengi hún á að standa. Í “standandi” veislum er vinsælt að bjó ða upp á t.d fimm til sjö rétta pinnaborð. Skoðið verðin á heimasíðu okkar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.