Morgunblaðið - 12.05.2016, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 12.05.2016, Blaðsíða 60
60 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. MAÍ 2016 ✝ Viktor GeirValmundsson fæddist á Akureyri 25. febrúar 1985. Hann lést 26. apríl 2016. Foreldrar hans eru Valmundur Einarsson, fæddur 16. nóvembr 1950, og Elsa Pálmey Pálmadóttir, fædd 4. janúar 1958. Systkini Viktors eru Pálmi Rafn Eiríksson, fæddur 13. apríl 1978, Einar Karl Valmundsson, fæddur 19. júlí 1982, og Halla Va- ley Valmundar- dóttir, fædd 27. nóvember 1988. Börn Viktors eru Elsa Bjarney Vikt- orsdóttir, fædd 7. febrúar 2007, og Sigurgeir Bessi Viktorsson, fæddur 30. júní 2010. Útför Viktors fer fram frá Akureyrarkirkju í dag, 12. maí 2016, klukkan 13.30. Fallegur, hjálpsamur, skemmti- legur, fyndinn og mikill húmor- isti. Já, þetta eru einungis brot af lýsingarorðum sem áttu við þig, elsku Viktor minn. Þú varst sann- ur vinur, góður faðir, bróðir og sonur. En því miður leiddist þú út af beinu brautinni alltof snemma með tilheyrandi röngum ákvörð- unum og gjörðum. Þessi erfiða ganga spannar allavega 18 ár sem er meira en helmingur af lífsleið þinni. Þú hefur alla tíð verið sterkur og borið allskonar hræðilegar upplifanir sem enginn ætti að bera á bakinu allan þenn- an tíma. Þú áttir þér tvær hliðar, þessa sem ég taldi upp í byrjun og svo þessa skuggalegu hlið sem var alls ekki þú. Þessi skuggalega hlið er fíknin og það sem fíknin hefur í för með sér. Því miður fengu allt of margir að kynnast þeirri hlið á þér enda óhjákvæmi- legt miðað við árafjöldann sem púkinn fylgdi þér. Á þessum árum reyndir þú nokkrum sinnum að finna réttu brautina og tókst það í mislangan tíma í senn, á þeim tímum sá maður loksins hinn eina og sanna Viktor. Bróður minn sem ég dýrkaði og dáði. Á edrú tímum þínum blómstraðir þú og þrosk- aðist í hvert skipti en því miður virtist púkinn hafa yfirhöndina og náði tökum á þér aftur og aft- ur. En eitt verður ekki tekið af þér og það er að þú vast edrú undir lokin, stóðst þig svo vel. Það sem ég mun sakna þín, elsku bróðir minn, allra símtal- anna okkar um allt og ekkert. Þú varst alltaf klár á hliðarlínunni og gjörsamlega ofverndaðir mig allt frá því ég man eftir mér eins og þið allir bræður mínir. Við gátum alltaf talað saman og þú veist að ég stóð alltaf við bakið á þér og reyndi hvað ég gat að vísa þér á beinu brautina, ég óskaði einskis heitar en það var ekki nóg. Ég hef aldrei verið eins stolt af þér og þegar þú talaðir um fallegu börnin þín, það skein ávallt gleði og stolt af þér því þú elskaðir þau heitar en allt annað. Ég mun halda því við, elsku Viktor minn, og halda fallegu minningunum um þig á lofti því þú átt það skilið. Ég mun aldrei gleyma viðbrögð- unum þínum þegar við Ágúst sögðum frá þegar ég var ólétt af Arnari Loga, það var ein falleg- ast og dýrmætasta stund sem ég hef átt með þér og fjölskyldunni. Þegar svo loksins hann kom í heiminn þá dýrkaðir þú hann strax, varst yfir þig stoltur eins og með þín eigin börn. Arnar Logi mun svo sannarlega fá að vita hversu flottur þú varst, ekki spurning. Það er virkilega sár tilfinning að sitja við stofuborðið og skrifa minningargrein til þín, elsku bróðir, hjarta mitt er í þúsund molum og í sannleikans sagt þá verkjar mig af sársauka. En eitt af því sem veitir mér vellíðan er það að nú hefur þú loksins fundið frið í hjarta þínu en ég hefði viljað að þú fyndir hann á annan hátt. Ég virði þína ákvörðun þó að ég sé henni ekki sammála en ástæð- an fyrir því er sú að þú veist að ég hef alltaf viljað þér allt það besta. Við munum hittast á ný einn dag- inn en ekki í bráð, þangað til mun hugur minn vera hjá þér. Elsku fallegi bróðir minn, ég elska þig af öllu hjarta og sakna þín svo sárt. Ég sendi þér kæra kveðju nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Þín litla systir, Halla Valey Valmundardóttir. Viktor Geir Valmundsson HINSTA KVEÐJA Kviknar líf, kvakar vor. Lækir hjala, leika, vaka. Lífsins vor lifnar, glæðist, kyrjar söng. Kviknar líf. Kviknar ljós, logar skært. Hjörtu kætast, kvakar vor. Sálin hrópar, syngur óð, fagnar degi. Kviknar líf. Slokknar líf. Slokknar ljós. Söngvar þegja. sálin tóm. Allt er fölnað, ekkert blóm. Endar slitna slokknar ljós. (J.E.H.) Jón Einar (Lambi), Sigurveig, Haraldur Ölvir, Birna Eyvör. ✝ Ragnar Vin-cent Petersen fæddist í Reykja- vík 17. ágúst 1953. Hann lést á líknar- deild Landspítal- ans 22. apríl 2016. Hann var sonur Kristínar Sigurð- ardóttur, f. 16. ágúst 1934, frá Reykjavík og Vin- cent Giudese, frá Bandaríkjunum en Ragnar var mjög ungur þegar Martin Pet- ersen, markaðsstjóri Flug- leiða. f. 9. júlí 1925, d. 16. mars 2012, gekk honum í föð- urstað og ættleiddi hann. Þau bjuggu alla tíð í Reykjavík. Systkini hans eru: Karl Peter- sen, f. 6.7. 1960, d. 2.4. 2006, og Kristín Petersen, 31.7. 1965. Ragnar kvæntist árið Ragnar lærði blómaskreyt- ingar og rak blómabúðina Alaska við Miklatorg um ára- bil. Síðar varð hann auglýs- ingastjóri hjá ýmsum blaða- útgefendum. Ragnar var hestamaður. Hann var reið- kennari um tíma og var með- limur í Félagi tamninga- manna. Hann var virkur í félagsstörfum hjá hesta- mannafélaginu Fáki, var í íþróttadeild félagsins og kom þar meðal annars að móts- haldi og fleiru. Hann var með- al annarra frumkvöðull í að móta keppnisfyrirkomulag hestamanna eins og það er stundað í dag. Ragnar tók oft þátt í skipulagningu Reið- hallarsýninga félagsins og var þekktur fyrir að setja upp einstaklega glæsilegar tölt- slaufur og þjálfa hesta og knapa fyrir þær. Hann var sæmdur gullmerki Fáks fyrir störf í þágu félagsins árið 2014. Útför Ragnars fór fram 4. maí 2016, í kyrrþey að ósk hins látna. 1974, Björk Lind Harðardóttur, f. 21. apríl 1954. Þau slitu samvistum. Þau eignuðust saman þrjú börn: 1) dóttur, sem fæddist andvana 1972. 2) Róbert Petersen, f. 13.5. 1975, eiginkona hans er Sigrún Alda Sveinsdóttir, f. 20.5. 1974. Börn þeirra eru Rebekka Rut Petersen, f. 25.10. 1995, Aron Freyr Pet- ersen, 9.7. 2002, og Sveinn Sölvi Petersen, f. 23.11. 2004. 3) Snorri Petersen, f. 8.1. 1978, kvæntur Þórunni Lárusdóttur, f. 6.1. 1973. Börn þeirra eru Kolbeinn Lárus Petersen, f. 2.8. 2006, og Katla Petersen, f. 19.2. 2009. Ragnar frændi minn var lag- legur, fjörugur og skemmtilegur maður. Hann var afar fallegt barn með allar krullurnar sínar, brosið geislandi og var mikill grallari. Núní var gælunafn, sem hann gaf sjálfum sér sem barn – við kölluðum hann lengi vel því nafni. Hann var skapmikill og hafði mjög ákveðnar skoðanir á mönnum og málefnum, það gust- aði af honum og var aldrei nein lognmolla í kringum hann. Yndi hans af dýrum var augljóst frá unga aldri. Ég man eftir fiska- búri og síðar kompu fullri af búr- um með alls kyns smádýrum, sem hann átti, ræktaði og hugs- aði vel um. Á fullorðinsárum átti hann alltaf hund og svo kom hestamennskan, sem hann stund- aði alla tíð. Hann elskaði dýrin sín og hugsaði vel um þau. Hann eignaðist góða vini í hesta- mennskunni og naut þess að fara í hestaferðir. Einnig stundaði hann líkamsrækt og dansaði salsa í hverri viku. Það var alltaf upplífgandi að hitta hann og spjalla; kátína og hlátur ein- kenndu Ragga Pet. Það lék allt í höndunum á þess- um fallega frænda mínum. Hann lærði blómaskreytingar og rak um tíma gróðrarstöðina Alaska. En það voru ekki bara blóma- skreytingar, sem hann gerði vel, því hann var einnig listakokkur og gerði t.d. flottustu og bestu litlu brauðsamlokurnar sem ég hef séð og smakkað. Einnig var hann smekkmaður og hafði sér- stakt lag á að gera vistarverur sínar fallegar og hlýlegar. Ragnar elskaði að ferðast til sólarlanda og sagði mér að hann hefði átt að fæðast og eiga heima á Ítalíu. Hann hefði sómt sér vel þar um slóðir enda hafði hann dvalið þar um hríð og kynnst ítalskri þjóð og menningu. Einnig átti hann ættir að rekja þangað. En lífið fer ekki alltaf eins og maður hefði óskað sér og nú er hann farinn í ferðalagið, sem bíð- ur okkar allra, í blóma lífsins að- eins rétt rúmlega sextugur. Hann greindist með alvarlegan sjúk- dóm fyrir rúmum fjórum árum en hann naut lífsins til fulls þann tíma, sem hann átti eftir. Hann ferðaðist á hverju ári til Spánar með vinum sínum, naut sólarinn- ar, hitans, rauðvíns og matar; kom til baka endurnærður, glað- ur og hamingjusamur. Fyrirhug- uð ferð hans til Spánar í apríl var ekki farin því annað og lengra ferðalag beið hans. Ég trúi því að hann sé nú í góðum höndum, dansi salsa og njóti sín í Sólar- landinu. Ég sendi þér kæra kveðju nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum þín veröld er björt á ný. (Þórunn Sigurðardóttir.) Synir Ragnars, Róbert og Snorri, makar þeirra og börn syrgja föður, tengdaföður og afa. Kristín móðir hans og Kristín systir hans kveðja nú son og bróður öðru sinni. Ég bið almætt- ið um að styrkja þau öll í sorg- inni. Blessuð sé minning Ragnars Petersen, frænda míns og vinar. Ég mun sakna líflegra samtala okkar. Lára Kjartansdóttir. Ég var svo lánsöm að kynnast Ragnari og fjölskyldu hans í kringum sameiginlegt áhugamál okkar, hestamennskuna. Fyrir mig, sem útlending í íslensku samfélagi, var einstakt fyrir mig að eiga Ragnar að. Hann var manneskja sem ég leit alltaf mjög upp til og ég gat alltaf leitað til ef mig vantaði álit eða ráðleggingar. Hann gaf sér alltaf tíma til að út- skýra þegar ég bað hann um álit hvers vegna þetta eða hvers vegna hitt. Ragnar hafði mikla og góða nærveru sem ég fann strax þegar ég hitti hann fyrst. Hann var ljúfur, þægilegur en um leið oft pínu háðskur þegar hann sagði sitt álit. Fyrir mig sem út- lending þá fannst mér frábært að fá að vera í kringum Ragnar og fá að hlusta og drekka í mig visku hans þegar hann var að útskýra eitthvað fyrir barnabörnunum. Ég elskaði að heyra hann segja sögur hvort heldur sem var sögur úr fortíðinni eða frá daglegu amstri. Þolinmæði hans var ótak- mörkuð þegar kom að því að leið- rétta íslenskuna mína sem ég rembist við að læra og hann var alltaf að bæta við nýjum orðum inn í orðaforðan minn sem er mér ómetanlegt. Ég vildi óska að ég hefði getað átt meiri tíma með Ragnari og ég á eftir að sakna þess að sitja með honum í brekk- unni á hestamannamótum og hlusta á sögurnar og viskuna. Takk fyrir mig, elsku Ragnar, hvíldu í friði, kæri vinur. Sandra. Hann Raggi vinur okkar er farinn alltof snemma. Þessi skemmtilegi maður með sitt mikla skap, sem bjó til bestu ommelettuna og ljúffengustu kokteilana í okkar fjölmörgu hestaferðum. Mikið var oft gam- an, hlegið og fíflast út í eitt i ár- legum sleppitúrum á vorin til margra ára. Oft fór hópurinn líka í hestaferðir og var þá gist ann- aðhvort á Fossi í Grímsnesi eða á Breiðabakka í Holtum, sumar- húsum okkar vinanna. Hann var snilldarkokkur og sá oftast um að metta okkur í þessum túrum, svo ekki sé minnst á matarboðin hjá honum þar sem hann töfraði fram hvern réttinn af öðrum. Minning- arnar eru margar en ég veit að hann vildi ekki neinar lofræður, ætla samt að minnast þess þegar við héldum fimmtugsafmælið hans á Fossi. Góð vinkona hans var forsprakki að því að koma honum á óvart og það tókst svona líka vel, hann kom alveg af fjöll- um og grunaði ekki neitt. Þetta var svo skemmtilegt og af því til- efni lét ég gera um hann nokkrar vísur og langar að láta tvær fylgja. Sumir vilja hálfrar aldar afmælis ei minnast og afsíðis því fara, en auðvitað þeir finnast. Þér skal ekki takast að fela þig á Fossi, við fundum þig nú góði, og heilsum þér með kossi. Við ætlum þér á afmælinu auðvitað að lýsa og ef til vill að hrósa þér, lofa þig og prísa. Skemmtilega kjaftfor þú kætir þína vini en kannski ertu af langræknu og sérlunduðu kyni. (U.H.) Vegna langvarandi veikinda dró Raggi sig úr hestamennsku og samveru seinustu árin en við Jónsi viljum þakka allar góðar gleðistundir og vottum Robba, Snorra og fjölskyldum innilega samúð okkar. Guðlaug Steingrímsdóttir og Jón Ólafsson. Víst er gleðin sorgarinnar systir, þær sækja okkur heim og önnur gistir. Nú hefur sú síðar- nefnda sótt okkur heim í D tröð- inni í Víðidal sem og á öllu Fáks- svæðinu. Fallinn er frá langt fyrir aldur fram hann Raggi Ped, eins og hann var oftast kallaður. Snaggaralegur töffari vel ríðandi á mjög snyrtilegum og vel hirtum hestum sínum reið hann um dal- inn. Við Raggi áttum vel saman og leystum oft lífsgátuna á stéttinni fyrir framan hesthúsin. Hann var mér afar hjálplegur með hrossin og líka bílinn. Í mestu frosthörk- unum fraus ég ýmist úti eða inni í bílnum. Raggi var ekki allra og gat verið með mjög snörp svör. Það fór ekkert á milli mála hvað hon- um fannst um hlutina. Við hlóg- um mjög mikið þegar niðurstað- an var komin í höfn eftir miklar umræður. Snyrtimennska var hans aðalsmerki og það hafa syn- ir hans aldeilis fengið beint í æð frá honum, það er nú alveg greinilegt á öllu hjá þeim. Garðar minn og ég eigum eftir að sakna Ragga hér úr D-tröð- inni. Við sendum Robba, Snorra og fjölskyldum þeirra innilegar samúðarkveðjur. Elín Margrét Hárlaugsdóttir. Ragnar Vincent Petersen HINSTA KVEÐJA Leitar nú hugur langa vegu heyri ég óm horfinna daga. Ofin er litum ljóss og sólar minning þín innst í muna geymd. Lít ég í himins heiða bláma klökkva snortin kveð í hljóði. Veg þér á fylgi vinhugur minn heim á ljóssins lendur eilífar. Ég votta aðstandendum Ragnars einlæga samúð mína. Sigrún Haraldsdóttir. ✝ Unnur Eben-harðsdóttir fæddist á Akureyri 2. apríl 1925. Hún lést á Dvalarheimilinu Hlíð á Akureyri 17. mars 2016. Foreldrar hennar voru hjónin Eben- harð Jónsson bifreiðaeftirlitsmað- ur á Akureyri, f. 10. maí 1896, d. 2. júlí 1983, og Guðrún Kolbeinsdóttir, húsmóðir og verslunarmaður á Akureyri, f. 10. okt. 1891, d. 13. apríl 1966. Systkini Unnar: Ásta, f. 26. júlí 1923, býr á Akureyri, Ebba, f. 10. mars 1927, d. 11. október 2014, og Ingvi Gunnar, f. 11. júní 1921, d. 10. júní 2003, en hann var sam- feðra þeim systr- um. Unnur stund- aði hefðbundið nám í Barna- og gagnfræðaskóla Akureyrar. Að loknu námi starf- aði hún hjá KEA á Akureyri, fyrst við verslunarstörf, en síðan í fjölmörg ár hjá Mjólkursamlagi KEA. Einnig starfaði hún í all- mörg ár hjá Prentsmiðju Odds Björnssonar á Akureyri. Útför Unnar fór fram í kyrr- þey frá Höfðakapellu 31. mars 2016. Kvöldið er okkar og vor um Vaglaskóg, við skulum tjalda í grænum berjamó. Leiddu mig vinur í lundinn frá í gær, lindin þar niðar og birkihríslan grær. Leikur í ljósum lokkum og angandi rósum, leikur í ljósum lokkum hinn vaggandi blær. Daggperlur glitra um dalinn færist ró, draumar þess rætast sem gistir Vagla- skóg. Kveldrauðu skini á krækilyngið slær. Kyrrðin er friðandi, mild og angurvær. Leikur í ljósum lokkum og angandi rósum, leikur í ljósum lokkum hinn vaggandi blær. (Kristján frá Djúpalæk) Með þessum texta vil ég minn- ast yndislegrar frænku og vin- konu. Þín verður sárt saknað, elsku Dadda. Hafðu þökk fyrir allt. Hinsta kveðja, Ásta og Heiðar. Unnur Ebenharðsdóttir Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi þarf greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstu- degi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber- ist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri grein- ar eru eingöngu birtar á vefnum. Minningargreinar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.