Morgunblaðið - 12.05.2016, Blaðsíða 51
51
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. MAÍ 2016
Á hvolfi Hægt er að horfa á lífið frá mörgum hliðum og sumir eru svo heppnir að fá stundum að sjá það á hvolfi. Þessi vegfarandi var kátur með að skoða mannlífið frá óvæntu sjónarhorni.
Eggert
Ákvörðun um að
færa ábyrgð á at-
vinnumálum fatlaðs
fólks til Vinnu-
málastofnunar um síð-
ustu áramót markaði
tímamót. Með þessu
var settur lokapunkt-
ur við langt ferli og
umræður um fyrir-
komulag þessara
mála. Allir landsmenn
ganga nú um sömu
dyr þegar óskað er
aðstoðar við atvinnu-
leit. Þetta er góð nið-
urstaða í anda jafn-
ræðis og áherslunnar
á eitt samfélag fyrir
alla.
Vinnumálastofnun
og sveitarfélögin deila
ábyrgðinni í samræmi
við lög um málefni fatlaðs fólks.
Vinnumálastofnun tekur við um-
sóknum um vinnumarkaðs-
aðgerðir fyrir fatlað fólk, þar
með talin er vernduð vinna og
hæfing, og sérfræðingar stofn-
unarinnar leggja mat á vinnu-
færni og þjónustuþörf umsækj-
enda. Sveitarfélögin aftur á móti
fjármagna og reka vinnumark-
aðsúrræðin og bera ábyrgð á
áframhaldandi uppbyggingu
vinnu- og hæfingarstöðva.
Það er mikilvægt að fjölga
tækifærum fyrir fatlað fólk á
vinnumarkaði. Til þess þarf út-
sjónarsemi, víðtækt samráð og
aukinn skilning á því að fjöl-
breytni er styrkur hvers sam-
félags og það gildir líka um
vinnumarkaðinn. Það þarf að
horfa á styrkleika hvers og eins
og virkja hæfileika allra.
Vinnumálastofnun leggur
áherslu á að veita faglega þjón-
ustu í samræmi við þarfir um-
sækjenda og beita aðferðum sem
vel hafa gefist í þjónustu við fatl-
að fólk samhliða því að skapa og
þróa nýjar leiðir og lausnir sem
greiða götu fatlaðs fólks út í at-
vinnulífið. Ég veit að stofnunin
axlar þetta verkefni
með sóma.
Það eiga allir
að fá séns!
Árið 2015 var
efnt til átaksverk-
efnisins „Virkjum
hæfileikana, alla
hæfileikana“ sem
skilaði fjölmörgum
störfum um allt
land, skapaði mik-
ilvæg tengsl milli
aðila og jók skilning
og þekkingu á þeim
starfskröftum og
tækifærum sem
hægt er að virkja í
samfélaginu.
Í dag eru um
1.200 fatlaðir ein-
staklingar í vinnu
og virkni hjá vinnu-
og hæfingar-
stöðvum á landinu.
Flestar stöðvanna eru reknar af
sveitarfélögum, aðrar af félaga-
samtökum eða einkaaðilum sam-
kvæmt þjónustusamningum við
sveitarfélög eða Vinnumálastofn-
un.
Um 800 vinnusamningar ör-
yrkja eru í gildi en Vinnu-
málastofnun tók við umsjón
þeirra frá Tryggingastofnun
ríkisins um síðustu áramót. Flest
fatlað fólk á vinnumarkaði er
með slíkan samning en einnig
margt fólk með skerta starfs-
getu þótt það sé ekki með fötl-
unargreiningu.
Ársfundur Vinnumálastofn-
unar er í dag. Yfirskrift fund-
arins er „Eiga allir séns? Fjöl-
breytileiki á vinnumarkaði.“ Það
er því miður ekki þannig í dag
að allir eigi séns, en engu að síð-
ur stefnum við í rétta átt og
augu samfélagsins eru hægt en
örugglega að opnast fyrir því að
fjölbreytileikinn er styrkur og að
víða leynast hæfileikar sem geta
blómstrað fái þeir svolítinn
áburð og gott atlæti.
Eftir Eygló
Harðardóttir
» Víða leynast
hæfileikar
sem geta
blómstrað fái
þeir gott
atlæti.
Eygló
Harðardóttir
Höfundur er félags-
og húnæðismálaráðherra.
Vinnumálastofnun
virkjar hæfileikana
– alla hæfileikana
Það var ekki aðeins
forseti Íslands sem sá
sig um hönd um síð-
ustu helgi og dró
skyndiframboð sitt til
baka. Það sama gerði
formaður Samfylking-
arinnar, Árni Páll
Árnason, sem hafði
verið á sviðinu til
endurkjörs í nokkra
daga. Í útvarpsviðtali
sl. mánudag dró hann
upp skelfilega mynd af stöðu og
framtíðarhorfum flokksins sem hann
hefur verið formaður fyrir undan-
farin þrjú ár. Þar væri hver höndin
upp á móti annarri og flokkurinn
nánast í andarslitrunum. Hann sagði
Samfylkinguna þurfa að ákveða
hvað hún ætlaði að verða og hvernig
hún ætlaði að bera sig að til að end-
urheimta traust og fylgi. Það gat
vart farið hjá því að hlustandi fylltist
samúð með Árna Páli, vöskum
manni á besta aldri sem tekið hefur
þátt í stjórnmálum frá æskudögum
og setið á Alþingi í nær áratug, en
sér nú þann kost vænstan að taka
pokann sinn. Það leiðir hins vegar
hugann að stöðu stjórnmálaflokka
hér og víða erlendis nú um stundir.
Hefðbundnir flokkar
eiga í vök að verjast
Víða í Evrópu eiga hefðbundnir
stjórnmálaflokkar undir högg að
sækja hjá kjósendum, þar á meðal
flokkar sem tengdir eru vinstri
væng á pólitíska skalanum. Helst
það í hendur við almennt dræmari
kjörsókn í þingkosningum víðast
hvar á síðustu áratugum, að ekki sé
talað um kosningaþátttöku til Evr-
ópuþingsins svonefnda sem síðast
(2014) nam aðeins um 43%. Þetta er
óheillaþróun, því að stjórnmála-
flokkar hafa enn sem fyrr afar mik-
ilvægu hlutverki að gegna í lýðræð-
issamfélagi og engin einföld ráð sem
leyst geta þá af hólmi sem tengilið
milli almennings og helstu þrepa í
samfélagsbyggingunni. Ávísun á
beint lýðræði með þjóðaratkvæða-
greiðslum eftir settum reglum á full-
an rétt á sér en kemur ekki í stað
virkrar þátttöku almennings í
stjórnmálastarfi og stefnumótun.
Því er brýnt að kanna
orsakir vaxandi firr-
ingar gagnvart þátt-
töku í félagsmálum á
ýmsum sviðum sam-
félagsins og leita leiða
til að örva fólk til
virkrar þátttöku á
stjórnmálasviði. Til að
það megi takast þarf
margt að koma til,
bættar og skýrari leik-
reglur, fræðsla á öllum
skólastigum um sam-
félagsmál, siðbót innan
starfandi flokka og
embættismannakerfis og vönduð og
frjáls fjölmiðlun.
Fjármálaspilling og
sjúkt efnahagskerfi
Þorri fólks hefur ríka réttlætis-
kennd og þegar við blasir fjármála-
spilling sem tengist valdhöfum og
teygir sig inn á vettvang stjórnmál-
anna vekur það andúð og tortryggni.
Því er brýnt að jafna fjárhagslega
aðstöðu stjórnmálaflokka og opna
bókhald þeirra frá því sem nú tíðk-
ast. Stjórnmálaforinginn Mogens
Lykketoft, um skeið forseti danska
þingsins og nú forseti allsherjar-
þings Sameinuðu þjóðanna, hefur
barist fyrir róttækri siðbót í fjár-
öflun stjórnmálaflokka, m.a. að þeir
geti ekki bæði notið framlaga frá
einstaklingum og fyrirtækjum held-
ur þurfi að velja þar á milli og gera
grein fyrir öllum fjárstuðningi sem
einhverju nemur.
Bók hans Lobbyisternes lomme-
bog um þetta efni kom út 2013. Und-
irtektir stóru flokkanna í Danmörku
við tillögum hans hafa reynst dræm-
ar. – Gangverk kapítalísks efnahags-
kerfis þar sem þeir ríku verða stöð-
ugt ríkari á kostnað almennings,
lágstétta og millistétta, er önnur hlið
á sama teningi ásamt ótrúlegri
leyndarhyggju þegar farvegir fjár-
magnsins eru annars vegar. Um það
er fyrirhugaður TTIP-viðskipta-
samningur Bandaríkjanna og Evr-
ópusambandsins lýsandi dæmi, en
þingmenn í ESB-ríkjum hafa aðeins
mátt rýna eiðsvarnir í texta hans í
lokuðum herbergjum. Eftir að
Greenpeace opinberaði drögin hafa
ýmsir sem heitið höfðu stuðningi
hlaupið í baklás, þeirra á meðal ýms-
ir krataforingjar.
Áskoranir kalla á
þátttöku kynslóðanna
Það er nöturleg staðreynd ef auk-
ið upplýsingaflæði verður til þess að
almenningur dregur sig inn í skel og
forðast þátttöku í vitrænni og grein-
andi þjóðfélagsumræðu. Lýðræði á
að vera farvegur til að knýja fram
breytingar og ryðja brautina fyrir
nýjum hugmyndum, sanngjörnum
leikreglum og efnahagslegu réttlæti.
Öllum ætti að vera fyrir bestu að
slíkt náist fram friðsamlega og þar
er fólginn lykillinn að sjálfbærri
framtíð mannkyns, sem nú stefnir
rakleitt að hengiflugi.
Ógn tortímingar er á næsta leiti,
m.a. kjarnorka í höndum afla sem
einskis svífast. Til að bægja frá því
sameiginlega skipbroti sem nú hillir
undir vegna ágengni gagnvart móð-
ur jörð, misskiptingu í lífsafkomu
þjóða og innan þjóðríkja, þarf gíf-
urlegt átak, siðbót, tillitssemi og
sjálfsafneitun.
Stjórnmál sem björgunarstarf
Í upphafi var minnst á upp-
dráttarsýki í tilteknum stjórn-
málaflokki sem lagði upp vongóður
um aldamótin. Sá sem þetta ritar
átti ekki með honum samleið af mál-
efnalegum ástæðum, sem hér verða
ekki raktar. Það er þeirra sem þar
eru enn innanborðs að greina
ástandið og rétta kúrsinn í von um
að ná landi.
Ég hef haft áhuga á stjórnmálum
frá barnæsku og ánægju af þátttöku
með fjölda manns, þótt ekki væru
það allt jábræður. Skemmtilegast
hefur verið að rýna með öðrum í
óræða framtíð í von um batnandi
sjólag fyrir heildina, manninn og
umhverfið sem hann er háður.
Eftir Hjörleif
Guttormsson » Brýnt er að kanna
orsakir vaxandi firr-
ingar gagnvart þátttöku
í félagsmálum á ýmsum
sviðum samfélagsins og
örva til virkrar þátttöku
í stjórnmálum.
Hjörleifur
Guttormsson
Höfundur er náttúrufræðingur.
Uppdráttarsýki stjórnmála-
flokka er hættuleg lýðræðinu