Morgunblaðið - 12.05.2016, Blaðsíða 78
78 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. MAÍ 2016
Baðaðu þig í gæðunum
Smiðjuvegi 76 • Kópavogi • Sími 414 1000 • Baldursnesi 6 • Akureyri • Sími 414 1050 • www.tengi.is • tengi@tengi.is
Opið virka daga frá kl. 8-18 og laugardaga kl. 10-15
Um árabil hefur á myndlist-arvettvangi borið mikið áinnsetningum þar semhöfð er að leiðarljósi virk
þátttaka áhorfandans í merkingar-
sköpun verksins. Slíkar innsetn-
ingar hverfast gjarnan um „líkamn-
aða“ skynjun hans. Sýningargestir
eru orðnir vanir þessu formi og þá
reynir á virkni innsetningar, hvort
hún nær að hreyfa nægilega við
áhorfandanum. Á sýningunni „Um-
gerð“ í Hafnarborg tekst Hugsteyp-
unni, þeim Ingunni Fjólu Ingþórs-
dóttur og Þórdísi Jóhannesdóttur,
þetta á hugvitssamlegan og eftir-
tektarverðan hátt.
Sjálf innsetningin er fallega út-
færð; í hinu stóra rými á efri hæð
Hafnarborgar hafa Ingunn Fjóla og
Þórdís komið fyrir ýmiskonar
strúktúrum. Málaðar spýtur og plöt-
ur, ljósmyndir, snæri, speglar og
veggir, ásamt römmum og mynd- og
litavörpunum, skapa óvæntar og
skemmtilegar samsetningar sem
leika á mörkum tvívíddar og þrívídd-
ar. Vörpunin gerir að verkum að
birtan er síbreytileg, rétt eins og
sjónarhorn áhorfandans sem hreyfir
sig um rýmið. Innsetningin tekur
þannig á sig ýmsar myndir. Og það
eru einmitt þessar myndir sem eru
Hugsteypunni hugleiknar: áhorf-
andinn er hvattur til að taka ljós-
myndir af því sem hann sér – og
senda þær um leið í gegnum sam-
félagsmiðla inn í rafheima þaðan
sem þær varpast nær samstundis á
vegg sýningarrýmisins og verða
tímabundið hluti af innsetningunni í
formi myndasýningar. Áhorfandinn
– og sjónarhorn hans – á þannig með
sýnilegum hætti hlutdeild í sjón-
rænum veruleika sýningarinnar.
Þátttaka áhorfandans hefur jafn-
framt áhrif á það hvernig hann
skynjar sýninguna, þ.e.a.s. með það
markmið í huga að ná góðri mynd.
Einn athyglisverðasti þáttur sýn-
ingarinnar er svo hvernig Hug-
steypan vekur með þessu til sér-
stakrar vitundar um tæknivæðingu
hinnar líkömnuðu skynjunar. Skynj-
un æ fleiri einstaklinga mótast af
skjáveruleika myndavéla, snjallsíma
og samfélagsmiðla. Þetta á við um
daglegar athafnir sem og viðburði
eins og myndlistarsýningar – en
auðvitað gegnir sjónræni þátturinn
þar sérstöku hlutverki. Safna-
reynsla margra mótast af miðlun; sí-
fellt fleiri þeirra sem heimsækja
söfn, taka þar eigin ljósmyndir af
verkum og geta síðan horft á mynd-
irnar í eigin skjá. En kannski er
snjalltæki gestsins einnig oft „mið-
ill“ hans á sjálfri sýningunni – tæki
sem honum finnst hann þurfa að
hafa til að nema verkin. Segja má að
innsetning Ingunnar Fjólu og Þór-
dísar gagnrýni þessa tilhneigingu til
„innrömmunar“ en dragi hana jafn-
framt inn í víðara sköpunarferli.
Sem innsetning gengur sýningin
„Umgerð“ út á rýmisskynjun þar
sem áhorfandinn verður hluti af þrí-
víðu raunrými. Á sýningu Hugsteyp-
unnar myndast togstreita milli raun-
tíma og „beinnar“ útsendingar á
skjánum. Þar er einnig á velheppn-
aðan hátt dregið fram samspilið og
spennan milli þrívíðrar skynjunar og
tvívíðrar úrvinnslu hennar. Jafn-
framt kemur í ljós sú undirliggjandi
tilhneiging áhorfandans að ramma
aftur inn – og búa skynjun sinni þar
með ferkantaða „umgerð“ – hið þrí-
víða rými innsetningarinnar í venju-
lega, tvívíða mynd.
Sjóndeild áhorfandans
Morgunblaðið/Einar Falur
Hugsteypan „Sjálf innsetningin er fallega útfærð; í hinu stóra rými á efri hæð Hafnarborgar hafa Ingunn Fjóla og Þórdís komið fyrir ýmiskonar strúktúr-
um. Málaðar spýtur og plötur, ljósmyndir, snæri, speglar og veggir, ásamt römmum og mynd- og litavörpunum, skapa óvæntar og skemmtilegar samsetn-
ingar sem leika á mörkum tvívíddar og þrívíddar,“ segir gagnrýnandi m.a. um sýningu Hugsteypunnar í Hafnarborg.
Hafnarborg – Menningar- og
listamiðstöð Hafnarfjarðar
Umgerð – Hugsteypan (Ingunn Fjóla
Ingþórsdóttir og Þórdís Jóhannes-
dóttir)
bbbbn
Til 22. maí 2016. Opið kl. 12-17 alla
daga, fimmtud. til kl. 21. Lokað á þriðju-
dögum. Aðgangur ókeypis.
ANNA JÓA
MYNDLIST
Árleg vorsýning Myndlistaskólans í
Reykjavík verður opnuð kl. 17 í dag
í húsnæði skólans á 2. og 3. hæð í
JL-húsinu, Hringbraut 121. Verkin
á sýningunni eru eftir þá tæplega
120 nemendur sem stunda samfellt
nám á framhalds- og háskólastigi í
fimm dagskóladeildum skólans,
listnámsdeild, sjónlistadeild, ker-
amikdeild, teiknideild og textíl-
deild.
Nemendur með þroskahömlun
sýna vídeó sem þau unnu á nýlið-
inni önn. Nemendur á fyrra ári list-
námsbrautar sýna verk unnin í
áföngum í íslensku og skúlptúr.
Nemendur keramikdeildar settu á
stofn postulínsverksmiðju og sýna
vörulína verksmiðjunnar. Aðrir
nemendur sýna sjálfstæð verk unn-
in undir handleiðslu listamanna og
hönnuða. Sýningin verður opin
daglega kl. 13 og 18 og lýkur
þriðjudaginn 17. maí.
Morgunblaðið/Golli
Sýning Eitt af verkum á vorsýningu nem-
enda í Myndlistaskólanum í fyrra.
Vorsýning
myndlistarnema
Tuttugu annars árs nemar í mynd-
list við Listaháskóla Íslands opna
sýningu er nefnist Archipelago í
Port Verkefnarými, Laugarvegi
23b í dag kl. 20. Á opnuninni verða
gegnumgangandi gjörningar út
kvöldið.
Með sýningunni leita listamenn-
irnir að samhljómi og hliðstæðum á
milli fjölbreytilegrar flóru verka
sinna. Orðið Archipelago kemur úr
grísku og þýðir eyjaklasi. Líkt og
eyjar í eyjaklasa gætu verk okkar
við fyrstu sýn virst algerlega
óskyld en þegar kafað er undir
öldurótið má greina samofna þræði
og mun meiri skyldleika á milli
verka djúpt undir yfirborðinu, seg-
ir í tilkynningu. Sýningin verður
einnig opin 13. maí frá 11-16.
Annars árs nemar í myndlist sýna í Porti
Ljósmynd/Gunnhildur Hauksdóttir
Undirbúningur nemendur undirbúa.