Morgunblaðið - 12.05.2016, Blaðsíða 84
FIMMTUDAGUR 12. MAÍ 133. DAGUR ÁRSINS 2016
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 517 KR. ÁSKRIFT 5613 KR. HELGARÁSKRIFT 3505 KR. PDF Á MBL.IS 4978 KR. I-PAD ÁSKRIFT 4978 KR.
1. „Réttlæti fyrir Gretu“
2. Skipverjinn fannst látinn
3. Hátt í 400 milljónir í skatta
4. „Oh, óheppni“
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Upplýst hefur verið um alla lista-
mennina sem koma fram á Secret
Solistice-tónlistarhátíðinni í Laugar-
dal 17. til 19. júní, fyrir utan að lofað
er einum leynigesti að vanda. Í fyrra-
sumar var það rapparinn Busta
Rhymes.
Meðal listamanna sem hafa bæst í
hópinn með Radiohead, Of Monsters
and Men og öðrum sem þegar var vit-
að að kæmu fram eru hinn vinsæli
plötusnúður og fyrirsæta Alexandra
Richards, dóttir Keith Richards gítar-
leikara Rolling Stones, Serge Devant,
Osunlade, Pavan (úr Foreign Begg-
ars), Paul Brown og Sinistarr.
Richards þeytir skíf-
um í Laugardalnum
Þremenningarnir Ife Tolentino,
Óskar Guðjónsson og Eyþór Gunnars-
son flytja sjóðheita suðræna tóna í
Mengi í kvöld kl. 21. Tríóið hefur unn-
ið saman að flutningi tónlistar úr hin-
um víðfræga brasilíska lagabálki
bossa nova, auk þess sem þeir flytja
tónlist eftir brasilíska gítarleikarann
og söngvarann Ife Tolent-
ino. Hann á að baki lang-
an og litríkan feril í
heimalandi sínu, þar
sem hann hefur
starfað með ýms-
um frábærum
listamönnum.
Þeir vinna nú
að gerð annarrar
plötu, en sú fyrri
kom út 2014 og
heitir Vocé
Passou Aqui.
Sjóðheitir suðrænir
tónar hljóma í Mengi
Á föstudag, laugardag og sunnudag Vestlæg eða breytileg átt,
víða 3-8 m/s. Skýjað með köflum og úrkomulítið, en yfirleitt bjart-
viðri SA-lands. Hiti 5 til 15 stig, hlýjast á SA-landi.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðlæg eða breytileg átt, 3-8 m/s. Bjart
veður NA- og A-lands, annars skýjað með köflum og yfirleitt þurrt.
VEÐUR
„Ég hlakka til að sjá ís-
lenska liðið spila. Leikmenn
virðast vera með rétta
hugarfarið og þjálfarinn er
mjög reyndur en vinnur
jafnframt mjög vel með
yngri þjálfaranum. Ég tel að
Ísland geti komið fólki á
óvart,“ segir Kevin Keegan,
fyrrverandi landsliðsmaður
og landsliðsþjálfari Eng-
lendinga í knattspyrnu, um
íslenska landsliðið fyrir EM í
Frakklandi. »4
Hlakka til að sjá
Ísland spila
Breiðablik og Stjarnan, sem spáð er
toppsætunum í Pepsi-deild kvenna í
knattspyrnu, byrjuðu tímabilið í gær-
kvöld á öruggum sigrum gegn KR og
Þór/KA. Harpa Þorsteinsdóttir skor-
aði þrennu fyrir Stjörnuna gegn
Akureyrarliðinu. Selfoss vann góðan
sigur á ÍBV í Vestmannaeyjum og í
Árbænum skildu Fylkir og Valur jöfn,
2:2. »2-3
Sigurstranglegu liðin
fóru vel af stað
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
„Þetta byrjaði vel en var basl í lokin, ætlaði aldrei
að hafast,“ sagði Einar Dagbjartsson, flugstjóri
hjá Icelandair, þegar hann kom með dagsskammt-
inn, tæplega 800 kg, einkum þorsk, á Grindjána
GK til Grindavíkur úr strandveiðunum í vikubyrj-
un. „Við sköpum gjaldeyri og verðum fljótlega
kvótakóngar eins og pabbi,“ bætti kafteinninn við,
stoltur á svip í góða veðrinu á kæjanum.
Bræðurnir Einar, Eiríkur, útgerðarstjóri hjá
Þorbirni hf., og Jón Gauti, útibússtjóri Olís í
Grindavík, reka bátinn og Dagbjartur, sonur Ein-
ars, er kominn með „pungaprófið“ og hefur verið í
„línuþjálfun“ hjá föðurnum. Bræðurnir voru áður í
hópi með öðrum á sjóstöng, skaki og svartfugli í
um 15 ár og hafa verið með í strandveiðikerfinu
frá byrjun. Þeir keyptu hina út, bættu í og leigja
kvóta utan strandveiðikerfisins.
„Við reynum sérstaklega að vera vel skipulagðir
í maí, því þá er mest fiskerí hjá okkur,“ segir
hann. Markmiðið sé að vera með bátinn skuldlaus-
an í haust. „Þá kaupum við okkur smá kvóta og þá
verðum við orðnir kvótakóngar, eins og pabbi var.
Þótt það verði ekki nema 15 kíló. Annars finnst
mér skondið hversu margir hafa sterkar skoðanir
á kvótamálum en hafa svo ekki hundsvit á einu né
neinu sem snýr að sjávarútvegi.“
Harkan sex
Sjómennska er bræðrunum í blóð borin. Þeir
eru ættaðir úr Grímsey og þar kynntust þeir
handtökunum. „Það verður að segjast eins og er
að sjómennskan er drulluerfið. En hún er svo heil-
brigð. Þetta er líkamsrækt sem getur gefið af sér
smá vasapening í leiðinni.“ Einar áréttar að ekki
sé alltaf á vísan að róa. Einn daginn hafi ekki verið
nein veiði. Hann hafi gefið félaga sínum aflann,
fjóra til fimm þorska og annað eins af ufsa, og því
ekki landað.
Daginn eftir hafi verið kropp en hátt verð og
hann náð um 400 kg. Hann hafi verið austast á Sel-
vogsbankanum og ætlað að landa í Vestmanna-
eyjum enda styttra þangað. Því hafi hann hringt í
Eirík til að láta hann vita og beðið hann um að
græja hótel og dagpeninga. „„Bróðir,“ svaraði
Eiki. „Eftir frammistöðu þína í gær verður þú
rekinn ef þú gerir það.““
Einar hefur verið í fluginu í um 35 ár. „Ég er
allt í einu orðinn kallinn um borð hjá Icelandair,“
segir hann og bendir á að flugið og sjómennskan
falli vel hvort að öðru. „Ég er alltaf kafteinn.
Þegar ég er úti á sjó öskra ég „gera klárt að aftan“
þótt enginn annar sé um borð. Ég sef betur og er
betur undirbúinn fyrir hvert flug. Þegar ég þarf
svo að hætta að fljúga vegna aldurs get ég lifað af
þessu hálft árið, því þá verðum við orðnir kvóta-
kóngar, eins og pabbi. Þá verð ég ekki lengur kall-
aður kvótaprins eins og á unglingsárunum þegar
maður var á netaveiðum með skólanum, ekki sjó-
hraustur, ælandi fram á hádegi flestar helgar.“
Úr fluginu á strandveiðar
Einar Dagbjartsson
vill vera kvótakóngur
frekar en kvótaprins
Morgunblaðið/RAX
Stoltir bræður Bræðurnir Jón Gauti, Einar og Eiríkur eru ánægðir með strandveiðarnar.
Feðgar Einar og Dagbjartur, sonur hans, fljúga
með fiskinn úr strandveiðunum.
Flugstjóri Einar í flugstjórnarklefanum. Flogið
er með allan fisk daginn eftir að hann veiðist.
„Ég er í skýjunum og hreinlega í
gleðivímu þessa stundina,“ sagði
Hildigunnur Einarsdóttir, landsliðs-
kona í handknattleik, sem skrifað
hefur undir samkomulag um að leika
með einu sterkasta félagsliði Evr-
ópu, Leipzig, á næsta keppnis-
tímabili. Hildigunnur segir samning-
inn við félagið sýna að með
þrotlausum æfingum og dugnaði
geti draumar ræst. »1
Hildigunnur segir
drauma geta ræst