Morgunblaðið - 21.12.2016, Blaðsíða 18
18 Jólablað Morgunblaðsins
Piparkökur
250 g sykur
2 dl síróp
½ msk. engifer
¼ msk. negull
¼ msk. pipar
250 g ósaltað smjör
1 msk. matarsódi
2 egg
800 g hveiti
Byrjið á því að setja smjör-
ið í stóra skál og láta það til
hliðar. Sykur og síróp er sett
í pott og suðan látin koma
upp. Þá er kanil, engifer,
negul og pipar hrært vel sam-
an við ásamt matarsóda.
Þegar hér er komið sögu er
blöndunni bætt út í smjörið
og hrært vel saman. Þá er
hveitinu bætt smátt og smátt
út í þar til deigið er orðið vel
þétt. Setjið plastfilmu yfir
skálina og geymið deigið í
kæli í nokkrar klukkustundir
eða yfir nótt.
Daginn eftir eða nokkrum
tímum síðar er deigið hnoðað
örlítið til og flatt út með
kökukefli. Fínt er að strá svo-
litlu hveiti á borðið svo deigið
festist ekki við og nota svo
bökunarpappír á bökunar-
plötuna áður en kökurnar
fara inn í ofn. Áður en það
gerist eru piparkökurnar
mótaðar með alls konar form-
um en gætið þess að þær séu
jafnþykkar, svo sumar verði
ekki hráar og aðrar brenndar.
Súkkulaðiglassúr
75 g smjör
4 msk. kakó
4 dl flórsykur
0,5 dl kalt kaffi
1 msk. vanillusykur
Smjörið er sett í pott og
brætt. Þá er kakói, flórsykri,
kaffi og vanillusykri brætt út
í og allt hrært saman þar til
engir kekkir eru í glass-
úrnum. Látið glassúrinn
kólna áður en hann er settur
á piparkökurnar.
Ef þið viljið ekki súkkulaði-
glassúr er kakóinu einfald-
lega sleppt og þá er hægt að
setja matarlit út í hann til
þess að fá skrautlega liti.
Piparköku-
bakstur skapar
alltaf góða
stemningu
Ljósmynd/IKEA
Piparkökubakstur er órjúfanlegur þáttur í jólaundir-
búningnum. Það er auðvelt að hræra í piparköku-
deig, fletja það út og búa til skemmtilegar fígurur.
Þetta er eitt af því sem fjölskyldan getur gert saman
sér til skemmtunar og þarf alls ekki að kosta mikla
peninga. Þegar búið er að baka kökurnar tekur ann-
að ferli við og það er að skreyta sjálfar kökurnar.
Marta María | martamaria@mbl.is
Það er skemmtilegt að
baka saman pipar-
kökur, formin og
kökukeflið fást í IKEA.
Það skiptir máli að leyfa deig-
inu að standa yfir nótt eða í
það minnsta í nokkra klukku-
tíma áður en bakað er úr því.
Þessi krúttlegu köku-
box fást í IKEA. Hægt
er að geyma þau inni í
frysti.
Jólalegt matar-
stell úr IKEA.
Kökubox frá
Sveinbjörgu -
Svartfugl listhús.
Tóku forskot á jólasæluna og
buðu nokkrum vinkonum í
sannkallaða jólaveislu.
ALBERT OG
BERGÞÓR
Góð ráð fyrir þau sem vilja
reiða fram eina sort eða fleiri
án þess að setja allt á
hliðina.
JÓLASMÁ-
KÖKURNAR
Margt fólk kýs að borða
grænmetisrétti á jólunum
og Valentína Björnsdóttir
hjá Móður náttúru er
þar á meðal.
KRÆSINGAR
GRÆNMETIS-
ÆTUNNAR
jó
la
kr
æ
si
ng
ar