Morgunblaðið - 21.12.2016, Page 84
Hafsteinn og Karitas
lærðu að meta góða osta
og vín þegar þau voru í
námi á Ítalíu.
og lyktin af mandarínunum og jólakertunum sem skapa þessa
yndislegu jólaupplifun á okkar heimili. Það er kannski einna
helst hægt að sjá hversu mínímalískur stíllinn minn er á nýja
aðventustjakanum sem er að koma í búðir á næstu dögum,“
segir hún.
Karitas og Hafsteinn Júlíusson, eiginmaður hennar og
vinnufélagi, fluttu á árinu og í ár verða jólin svolítið öðruvísi en
oft áður.
„Við fjölskyldan erum að halda okkar fyrstu jól saman núna
í ár. Við höfum annars alltaf skipst á að vera hjá foreldrum
mínum og síðan hjá tengdaforeldrum mínum, sem hefur verið
svo skemmtilegt. En okkur fannst vera kominn tími til að
byrja okkar eigin jól með þeim hefðum sem við elskum mest.
Svo ég er að fara að leggja í fyrsta skiptið á mitt eigið jóla-
borð. Ég keypti ofsalega fallegar hörservíettur og kerti í
Kaupmannahöfn sem passa svo vel við fallegu Royal Copen-
hagen-diskana okkar. Ætli ég muni ekki hafa fallegar greinar í
vasa úr garðinum frá mömmu og pabba og skreyta borðið með
könglum og kertum,“ segir hún.
Hvað finnst þér skipta máli þegar þú leggur á borð?
„Mér finnst alveg ótrúlega gaman að leggja fallega á borð
og ef ég er með matarboð er það oft það fyrsta sem ég geri áð-
ur en við byrjum að elda.
Að taka smá tíma í að leggja á borðið með servíettum, kert-
um, einhverju lifandi í vasa eða smá skrauti finnst mér jafn
mikilvægt eins og að elda matinn. Okkur hjónunum finnst al-
veg ótrúlega gaman að vinna í eldhúsinu og gera mat fyrir
okkur og aðra og það er alltaf stór hluti af þessu að gera borð-
ið fínt. Að setjast við fínt borð er fyrsti þátturinn af góðri mat-
arupplifun.“
Ertu að safna stelli?
„Ég er að safna Royal Copenhagen, sem mér finnst svo fal-
legt og klassískt og hentar að mínu mati svo vel sem bæði
sparistell og hversdags.“
Karitas lagði á borð með Royal Copenhagen-stellinu sem
selt er í Kúnígúnd. Svörtu stjakarnir eru frá Postulínu en
hnífapörin eru úr Casa sem og glösin.
Karitas og Hafsteinn eru bæði alin upp við það að það sé
aspassúpa í forrétt og hamborgarhryggur í aðalrétt.
„Svo hef ég lært að gera æðislegan Toblerone-ís af tengda-
móður minni sem er alveg ótrúlega ljúffengur. Svo þetta verð-
ur eldað á okkar heimili á aðfangadag.“
Hvað finnst þér best við jólin?
„Bara allt sem tengist jólunum finnst mér æðislegt. En að
pakka inn jólagjöfunum finnst mér alveg ótrúlega skemmtilegt
og notalegt með góðri tónlist og kannski einu púrtvínsglasi, en
ég hef lært svo mikið af mömmu minni sem hefur alltaf nostr-
að svo við hvern einasta pakka og gerir þá því að listaverki
undir trénu.
En auðvitað er það besta við jólin að vera í rólegheitum með
fjölskyldu og vinum og borða góðan mat. Svo er þetta bara
tími sem ég hef alltaf elskað, því frá því ég var lítil höfum við
alltaf haft svo skemmtilegar hefðir sem að gera jólin að þess-
um dásamlega tíma. Í minni fjölskyldu hefur til dæmis alltaf
verið hefð að fá „pabbabrauð“ með hangikjöti og heitt súkku-
laði með rjóma á Þorláksmessu meðan klárað er að pakka inn
síðustu pökkunum og jólatréð skreytt. Þetta brauð hefur verið
hefð hjá fjölskyldu mömmu minnar um jólin í tugi ára því
langamma mín hún Úlfhildur gerði þetta alltaf í gamla daga en
svo tók pabbi brauðið í sínar hendur á okkar heimili. En þetta
bragð er jólin fyrir mér! Svo eftir að ég kynntist Hafsteini hef-
ur dásamlegi Toblerone-ísinn verið eitt af því sem ég hlakka
mikið til að fá yfir jólin því hann gerum við bara á þessum
tíma. Svo er þetta bara þessar góðu stundir sem maður á með
vinum með góðu víni eða glöggi og piparkökum með gorgon-
zola-osti. Það lærðum við hjónin á Ítalíu meðan við bjuggum
þar og höfum verið svo hrifin af síðan. Furðuleg en alveg ofsa-
lega góð blanda, mæli með!“
„Að pakka inn jólagjöfunum finnst
mér alveg ótrúlega skemmtilegt og
notalegt með góðri tónlist og
kannski einu púrtvínsglasi.“
❄
84 Jólablað Morgunblaðsins
Toblerone-jólaís
½ l rjómi
4 eggjarauður
1 bolli púðursykur
100 g Toblerone
Þeytið rjómann og setjið í skál. Stífþeytið svo
eggjarauðurnar og púðursykurinn mjög vel
saman. Brytjið 100 g af Toblerone og bætið
varlega út í blönduna. Hrærið síðan rjóman-
um varlega saman við. Hafið svo í frysti í
a.m.k. sólarhring. Setjið á fallegan disk og
skreytið með Toblerone og granatepli eða
ávöxtum eftir smekk.
Toblerone-ísinn er
ómissandi hluti
jólanna.