Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.05.2001, Side 50

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.05.2001, Side 50
 - heildræn húðmeðferð án skurðaðgerðar Þeim hjúkrunarfræðingum fjölgar sem setja á stofn eigin fyrirtæki. Ein þeirra er Díana Oddsdóttir sem opnaði Húð- fegrunarstofuna á liðnu ári ásamt Soffíu Kristjánsdóttur, sjúkraliða og listakonu. Þær Díana og Soffía unnu áður á bruna- og lýtadeild Landspítalans. Það var Þower-Peel kristalhúðslípunartækið sem kveikti hugmynd að fyrirtæk- inu. Tækið var kynnt á ráðstefnu sem haldin var hér á landi um lýtalækningar. í kjölfarið fóru þær Díana og Soffía til Bandaríkjanna og lærðu að nota tækið. Þar sem tækið er mjög öflugt fá einungis aðilar, sem hafa menntun á heil- brigðissviði, leyfi framleiðenda til að starfa við það og þurfa auk þess að gangast undir próf í notkun tækisins. En hvað er Power-Peel? Með tækinu er unnið á ýmsum húðvandamálum, svo sem öldrunarblettum, sólar- skemmdum, fínum hrukkum, æðasliti, flagnandi húð og örum eftir bólur og skurði. Meðferðin er sársaukalaus og líkist því þegar lítilli ryksugu er rennt yfir hörundið. Þessi meðferð er þekkt í Bandaríkjunum og víða í Evrópu og er Myndirnar eru teknar fyrir og eftir meðferð. 130 Soffía Kristjánsdóttir og Díana Oddsdóttir reka Húðfegrunarstofuna ehf. talin mjög árangursrík og örugg þar sem notuð er nýjasta tækni á sviði húðmeðferðar án skurðaðgerðar. Meðferðin byggist á því að ysta lag húðarinnar er fjarlægt með notkun örsmárra kristalla og samhliða eru notuð smyrsl sem eiga að auka árangurinn. Hver tími tekur um 20-45 mínútur og þar sem engar sýrur eru notaðar þarf ekki að taka sér frí frá störfum eftir meðferð. Húðin fær ferskari blæ strax eftir fyrstu meðferð, verður mýkri, hreinni og unglegri enda vinnur Power-Þeel gegn öldrun og er örugg fyrir allar húðgerðir. Á stofunni, sem er til húsa í Lágmúlanum, er einnig boðin meðferð við háræðasliti og rauðum vörtum. Díana segir ýmsar nýjungar kynntar á næstunni, t.d. verður boðið upp á að sprauta silikonfyllingu í hrukkur til að slétta húðina og hugsanlega verður einnig boðið upp á leysigeislameðferð við appelsínuhúð. -vkj Tímarit hjúkrunarfræðinga ■ 2. tbl. 77. árg. 2001

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.