Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.05.2001, Side 53

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.05.2001, Side 53
fæðu þar sem hlutfall fitu fyrir fullorðna sé 25-35% orkunnar, sbr. markmið Manneldisráðs. 2. Stuðlað verði að því að neysla grænmetis og ávaxta aukist verulega og verði í samræmi við markmið Manneldisráðs, a.m.k. fimm skammtar á dag. 3. Allur þorri fólks sé líkamlega virkur í frítíma sínum, stundi viðeigandi líkamsþjálfun, sem samsvarar 30 mínútna langri göngu, a.m.k. fimm sinnum í viku. 4. Öll börn á skólaskyldualdri fái a.m.k. sem samsvarar einni kennslustund á viku í heilbrigðisfræðslu á hverju námsári. Markmið 12 - Dregið verði úr skaðlegum áhrifum áfengis, ávanalyfja og tóbaks Evrópumarkmið: Árið 2015 verði búið að draga verulega úr skaðvænlegum áhrifum af neyslu vanabind- andi efna, eins og tóbaks, áfengis og ávana- lyfja, í öllum aðildarríkjunum. íslensk markmið til 2010: 1. Hlutfall fólks á aldrinum 18-69 ára, sem reykir, verði undir 15% og hlutfall barna og unglinga 14-17 ára, sem reykja, verði undir 5%. 2. Áfengisneysla á hvern íbúa verði ekki meiri en 5,0 lítrar af hreinu alkóhóli á íbúa 15 ára og eldri og nánast engin hjá þeim sem yngri eru. 3. Neysla ólöglegra ávanalyfja verði minnkuð a.m.k. um 25% og dánartíðni vegna þeirra lækki um a.m.k. 50%. Markmið 13 - Heilsuvænt umhverfi Evrópumarkmið: Árið 2015 hafi fólk í aðildarríkjunum fleiri tækifæri til að lifa í heilsuvænu efnislegu og félagslegu umhverfi, hvort sem um er að ræða vinnustað, skóla, heimili eða nágrenni. íslensk markmið til 2010: 1. A.m.k. 95% skólabarna fái skipulega fræðslu og þjálfun í heilsueflingu. 2. A.m.k. 50% sveitarfélaga hafi sett sér markmið á sviði heilsueflingar. 3. A.m.k. 20% stórra og meðalstórra fyrirtækja hafi skuld- bundið sig til þess að vinna að heilsueflingu starfsfólks. Markmið 14 - Þverfagleg ábyrgð á heilsufari Evrópumarkmið: Árið 2020 eiga allir þjóðfélagsgeirar að hafa gert sér grein fyrir ábyrgð sinni á heilsufari og viðurkennt hana. íslensk markmið til 2010: 1. Sérstaklega verði kveðið á um í lögum, og því fylgt eftir, að allir samfélagsgeirar beri ábyrgð á heilsufari. 2. Skipulegt umhverfismat fari ávallt fram á hugsanlegum áhrifum allra stærri iðnþróunarverkefna, framkvæmda og samfélagsaðgerða á heilsufar fólks. 3. Aðgerðir á sviði menntunar, upplýsingamála og rann- sókna beinist í ríkara mæli að því að gera einstaklinga og þjóðfélagsþegnana í heild betur meðvitaða um samábyrgð sína í heilbrigðismálum. Markmið 15 - Samhæfður heilbrigðísgeiri Evrópumarkmið: Árið 2010 eigi fólk á Evrópusvæðinu að hafa betri aðgang að fjölskyldu- og samfélagsmótaðri heilsugæslu með sveigjanleika og virka sjúkraþjónustu að bakhjarli. íslensk markmið til 2010: 1. Starfsemi heilbrigðiskerfisins byggist meira á teymis- vinnu og samfellu í þjónustu. 2. Heilbrigðisþjónusta utan sem innan stofnana fylgi sam- hæfðum starfsreglum. Markmið 16 - Aukin gæði og árangur Evrópumarkmið: Árið 2010 eiga aðildarríkin að vera búin að tryggja að stjórnun heil- brigðisgeirans beinist að því að ná árangri, hvort sem um er að ræða aðgerðir sem ná til fjöldans eða einstaklingsbundna klíníska meðferð. íslensk markmið til 2010: 1. Allar heilbrigðisstofnanir þrói með sér árangursmæli- kvarða og meti starf sitt á þeim grunni og/ eða með hliðsjón af viðurkenndum gagnagrunnum. 2. Allar heilbrigðisstofnanir komi sér upp formlegu gæða- þróunarstarfi og fylgi eigin áætlunum í gæðamálum. 3. Yfir 90% sjúklinga séu ánægðir með þá heilbrigðis- þjónustu sem þeir fá. Tímarit hjúkrunarfræðinga • 2. tbl. 77. árg. 2001 133

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.