Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.05.2001, Side 69

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.05.2001, Side 69
Bækur og bæklingar Downs-heilkenni Bókin fjaliar um flestar hliðar Downs- heilkennis, svo sem hvernig er að verða foreldri barns með Downs- heilkenni, sögulega þætti, litningafrávik, greiningu á fósturstigi, greindarþróun, læknisfræðileg vandamál og meðferð þeirra, hvernig standa beri að þjálfun í hreyfifærni og boðskiptum og ennfremur um félagsleg réttindi barnsins, hins fullorðna og fjölskyldunnar. Bókin er ætluð mörgum lesendahópum, fyrst og fremst foreldrum, aðstandendum, fagaðilum og starfsfólki sem sinnir einstaklingum með Downs-heilkenni. Hún getur einnig nýst í menntun lækna og starfsfólks við umönnun fatlaðra og sem uppflettirit handa þeim sem vilja fá nánari upplýsingar um einstök atriði. Bókin er þýdd úr sænsku, kom fyrst út í Svíþjóð 1996 og er gefin út af Pjaxa ehf. í samvinnu við Félag áhugafólks um Downs-heilkenni, 2000. Höfundar eru Göran Annerén, Iréne Johansson, Inga-Lill Kristiansson og Friðrik Sigurðsson, en Þorleifur Hauksson þýddi úr sænsku. Bókin er 120 síður. Sygeplejens grundlæggende principper Dansk Sygeplejerád hefur gefið út bók Virginiu Henderson „Sygeplejens grund- læggenge principper". í fréttatilkynningu frá útgefenda segir að þó margt hafi breyst á þeim 40 árum, eða frá því bókin kom út í fyrsta sinn þá séu þau grundvallarlögmál sem þar komi fram enn í fullu gildi. Bókin kom út í fyrsta sinn á dönsku árið 1967 en frá þeim tíma hafa orðið þó nokkrar breytingar á notkun fag- og fræðiorða innan hjúkrunar svo og breytingar á danskri Tungu. Því réðst Dansk Sygeplejerád í að gefa bókina út aftur. í þessari endurútgáfu er auk upphaflegs texta kafli um æviágrip Virginíu Henderson og sagt frá skrifum hennar, skrifað af dr. Ingegerd Harder. Bókin er 60 síður og hægt að panta hana í gegnum netfang dsr@dsr.dk. ICN Sygeplejens grundlæggende principper ö o k Við framleiðslu á springdýnum eru notaðar lokaðar fjaðrir sem koma í veg fyrir að klæðning springdýnunnar skemmist við áralanga notkun. Allt eftir þínum óskum Rétt lengd, breidd og hæð rúmsins eykur þægindin. Stífleiki spring- dýnunnar fer einnig eftir þínum óskum. Látið fagfólk leysa vandann. RflGnnR BJöRnsson M Sérhæfing í framleiðslu og hönnun springdyna. 220 Hafnarfirói I Sími: 555 03 97 Fax:565 17 40 I www.rbrum.is þú imi í soefhmtp í '1£J8 rwmis íslensku springdýnurnar frá Ragnari Björnssyni endast lengur Tímarit hjúkrunarfræðinga • 2. tbl. 77. árg. 2001 149

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.