Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2018, Síða 4
4 Helgarblað 26. janúar 2018fréttir
Á
gúst Guðmundsson situr
nú í alræmdu fangelsi í
Taílandi, Pattaya Remand,
vegna árásar á starfsfólk
verslunar í borginni Pattaya á
suðurströnd Taílands. Nokkrir Ís-
lendingar hafa heimsótt Ágúst
þrátt fyrir að hafa ekki þekkt hann
áður og þar á meðal er Tryggvi
Daníel Sigurðsson. Hann segir í
samtali við DV að Ágúst hafi bor-
ið sig vel þrátt fyrir krappan kost
en erfitt er að ná svefni á
nóttunni þar sem nærri
þrjátíu fangar deila
fangaklefa. Allir sofa á
gólfinu.
Höfðu áhyggjur af
landa sínum
Það vakti talsverða
athygli þegar DV greindi
frá handtöku Ágústs í
nóvember en árás hans
á starfsfólk náðist á
myndbandsupptöku.
Atvikið átti sér stað síð-
astliðið sumar og fjöll-
uðu erlendir fjölmiðlar,
svo sem breska dag-
blaðið Daily Mail, um
það. Ágústi var neitað
um afgreiðslu á áfengi
sem varð til þess að hann beitti
piparúða á starfsmennina og stal
sígarettum og freyðivíni. Hann
gæti fengið þungan dóm þar sem
vopni var beitt og vörur teknar úr
versluninni.
Stuttu eftir jól fór einn með-
limur Facebook-hóps Íslendinga
í Taílandi að hafa áhyggjur af
samlanda sínum vitandi af honum
í steininum í Pattaya, „enda vistin í
taílenskum fangelsum eins ömurleg
og hugsast getur“, líkt og hann orð-
aði það. Í kjölfar þess rann mörgum
Íslendingum blóðið til skyldunnar
og þótt þeir þekktu Ágúst ekkert þá
gerðu þeir sér ferð í fangelsið.
Sefur á gólfinu með 29 mönnum
Einn þeirra, Tryggvi Daníel Sig-
urðsson, segir að Ágústi hafi fyrst
og fremst þótt vænt um móralskan
stuðning og að geta talað íslensku
við annan mann. Tryggvi er stadd-
ur í Taílandi, í þó nokkurri fjarlægð
frá Pattaya, og gerði sér ferð til að
hitta Ágúst. Tryggvi segir að þeir
þekkist lítið sem ekkert þótt þeir
hafi verið saman í grunnskóla á
sínum tíma.
„Ég gerði mér ferð þangað, það
var einn búinn að heimsækja hann
á undan mér. Maður fékk ekki
að tala við hann lengi, þetta hafa
verið svona tíu mínútur, korter í
mesta lagi. Ef þú ert að velta fyrir
þér vistinni, þá er maturinn þarna
mjög slakur. Síðan eru það aðallega
þrengslin sem eru helsta vanda-
málið. Hann sagði að þeir væru 30
saman í herbergi, það væri víst mis-
jafnt, en hann ætti erfitt með svefn.
Þeir gætu ekki sofið allir í einu. Ekki
pláss fyrir þá alla á gólfinu. Það er
reyndar algengt hérna, alla vega í
sveitinni, fólk sefur bara á gólfinu,
á dýnu náttúrlega en samt á gólf-
inu,“ segir Tryggvi.
Breskur fangi myrtur
Taílensk fangelsi hafa löngum ver-
ið þekkt fyrir að vera óvenjuslæm
og er Pattaya Remand-fangelsið
engin undantekning frá því. Árið
2014 var greint frá því að breskur
ferðamaður, Sean Flanagan, hefði
verið barinn til dauða í fangelsinu
en hann var þar vegna gruns um
að hafa stolið vespu. Annar fangi
réðst á hann og varð honum að
bana en yfirvöld í Taílandi sögðu
fjölskyldu hans að hann hefði
dottið af vegg. Áralöng barátta fjöl-
skyldunnar leiddi annað í ljós.
Tryggvi segir að ekki hafi verið
heyra á Ágústi að hann væri í
hættu. „Hann bar sig mjög vel og
þeir eru þarna fjórir útlendingar
sem halda hópinn. Þeir borða
saman. Hann var ekkert að sníkja
peninga eða neitt slíkt, honum
þótti bara gott að fá heimsókn og
tala íslensku við einhvern. Það má
leggja einhverja upphæð á hann,
fimm þúsund krónur held ég. Fyrir
það getur hann fengið sér kaffi-
skammta og brauð. Hann vildi
ekki meina að hann væri í neinni
hættu. Fyrstu dagana eru menn
varir um sig en, nei, hann talaði
ekki um það,“ segir Tryggvi. n
n Ágúst var handtekinn fyrir árás í verslun n Á erfitt með svefn
Hjálmar Friðriksson
hjalmar@dv.is
„Hann
sagði að
þeir væru 30
saman í herbergi
Krappur
kostur
Ágúst sefur
við svona
aðstæður.
Handtekinn Árás og handtaka Ágústs náðist á upptöku.
Harvard
kannast ekki
við Eyþór
Eyþór Arnalds, frambjóðandi í
leiðtogakjöri Sjálfstæðisflokksins
í Reykjavík, er ekki með gráðu í
hagsögu frá Harvard Business
School. Áberandi er á Facebook-
síðu Eyþórs, sem og í kynningu á
honum á vef Sjálfstæðisflokksins
að hann hafi verið í framhalds-
námi við hinn virta Harvard-há-
skóla í Bandaríkjunum.
DV fékk hins vegar þau svör
hjá skrifstofu Harvard Business
School að engar upplýsingar
væru til um nemanda að nafni
„Eyþór“ eða „Arnalds“ og nem-
andi með því nafni hefði aldrei
útskrifast úr Harvard eða stund-
að þar nám í meira en sjö vik-
ur. „Ég finn hann hvergi í okkar
gögnum, það er samt möguleiki á
að hann hafi sótt stutt námskeið
við stjórnunarskóla Harvard,
það yrði þá að vera undir sjö vik-
um,“ sagði starfsmaður Harvard
Business School í samtali við DV.
Eyþór brást ekki vel við spurn-
ingum DV um námið. „Hver er
spurningin? Hvort ég hafi verið
í Harvard? Það liggur fyrir. Það
er staðreynd.“ Eyþór hafnar því
alfarið að vera að skreyta sig
með stolnum fjöðrum. „Þetta er
ekki gráða heldur stjórnenda-
nám, ýmsir stjórnendur, þar á
meðal á Íslandi hafa sótt slíkt
nám. Ég hef hvergi sagt að ég
hafi útskrifast þaðan enda gerði
ég það ekki.“ Telur Eyþór að
vangaveltur um nám hans séu
runnar undan rifjum pólitískra
andstæðinga: „Það er margt
gagnlegra fyrir borgina en að
reyna að koma höggi á sam-
herja. Það ekkert sem dregur
stjórnmálin eins mikið niður og
stjórnmálamenn sjálfir, eða þeir
sem vilja vera stjórnmálamenn.“
Ef Facebook-síða Eyþórs er
skoðuð má sjá Harvard koma
þar þrisvar fyrir og einum stað
stendur einfaldlega: Útskrif-
aðist úr Harvard 2010.
ari@pressan.is
Útskrifaður á Facebook Eyþór hef-
ur gert mikið úr menntun sinni í Harvard
og segir á Fésbók að hann hafi útskrifast
þaðan árið 2010.
Engar tónsmíðar Athygli vekur
að Eyþór gerir mikið úr námi sínu við
Harvard en minnist ekki á burtfararpróf
sitt í sellóleik og framhaldsmenntun í
tónsmíðum í Hollandi.
Sefur á gólfinu í
alræmdu fangelSi
Í
vikunni var greint frá því að 18 ára
gamall hælisleitandi frá Marokkó
hefði orðið fyrir hrottalegri lík-
amsárás á Litla-Hrauni. Mun
drengurinn, sem er í haldi vegna
ítrekaðra tilrauna til að komast úr
landi með því að smygla sér um
borð í flutningaskip, hafa verið að
spila körfubolta í íþróttahúsi fang-
elsisins þegar árásin átti sér stað.
Samkvæmt heimildum DV
höfðu tveir fangar sig mest í
frammi, Baldur Kolbeinsson og
Trausti Rafn Hendriksson, en
hópur annarra fanga tekið þátt í
henni. Samkvæmt heimildum DV
hafði ungi hælisleitandinn átt í
deilum við hóp fanga um nokkurt
skeið. Gengu hótanir á víxl þar til
upp úr sauð með hinum framan-
greinda voveiflega hætti.
Baldur hefur meira og
minna setið í fangelsi frá
sautján ára aldri. Hann
hefur ítrekað ratað í frétt-
irnar fyrir átök við sam-
fanga sína í gegnum árin.
Hann hlaut 18 mánaða
fangelsisdóm árið 2014 fyr-
ir tvær líkamsárásir sem
framdar voru með nokkurra
mánaða millibili á útivistar-
svæðinu á Litla-Hrauni.
Sú fyrri var sérstaklega
hrottaleg en þá makaði
hann saur í munn samfanga
auk þess að slá hann í höfuð og
líkama. Þá greindi DV frá því í
júlí 2017 að Baldur hefði lent í
átökum við annan fanga, Styrmi
Haukdal Snæfeld Kristinsson,
á gervigrasvelli við fangelsið.
Styrmir hafði haft
Baldur undir í
átökunum en þá
brást Baldur við með
því að bíta stykki úr
efri vör Styrmis og
spýta því út úr sér. n
Baldur og Trausti lúbörðu hælisleitandann Baldur
Kolbeinsson
Hefur ítrekað
lent í átökum
við samfanga
sína.
Trausti Rafn Henriksson
Verður 22 ára gamall á árinu.
Hann situr inni fyrir ýmis
fíkniefnalagabrot.