Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2018, Síða 10
10 Helgarblað 26. janúar 2018fréttir
Hér búa
fulltrúar
launþega
D
V heldur áfram yfirferð sinni
um hvar fulltrúar hinnar
ýmsu stétta búa. Á dögun
um var fjallað um hvar
bankastjórar og forstjórar greiðslu
þjónustufyrirtækja búa og er óhætt
að fullyrða að mikið hafi verið um
dýrðir á þeim vettvangi. Nú er kom
ið að þeim sem berjast fyrir kjörum
hinna vinnandi stétta. n
Ragnar Þór Ingólfsson
formaður VR
Ragnar var kjörinn formaður VR í mars 2017 og kom kjörið nokkuð á
óvart. Áður hafði hann haldið uppi harðri stjórnarandstöðu í stjórn VR
og starfað sem sölustjóri hjá Erninum. Ragnar Þór og kona hans. Guð
björg Magnúsdóttir, fjárfestu nýlega í fasteign við Hraunbæ 61 í Árbæn
um. Þau kunna greinilega vel við sig í því hverfi því áður höfðu þau búið í
minni íbúð í sömu götu.
Nýja íbúðin er 166,5 fermetrar að stærð og var kaupverðið 56 milljónir króna.
Ragnar Þór Pétursson
formaður Kennarasambands Íslands
Ragnar Þór var kjörinn formaður
Kennarasambands Íslands í nóvem
berbyrjun í fyrra. Þrír voru í fram
boði og hlaut Ragnar Þór 56,3
prósent atkvæða. Áður hafði
hann starfað sem kennari um
árabil og getið sér gott orð sem
pistlahöfundur.
Ragnar Þór býr að Eski
völlum 9b í Hafnarfirði ásamt
konu sinni, Gyðu Hrund Jóhann
esdóttur. Íbúðin eru í eigu leigu
félagsins Heimavalla hf. og var leigan
upphaflega 150 þúsund krónur á mánuði í
júní 2013. Leigan endurskoðast á þriggja mánaða fresti í tengslum
við vísitölu neysluverðs og má því reikna með að leigan sé um 162
þúsund krónur í dag.
Elín Björg Jónsdóttir
formaður BSRB
Elín Björg var kjörin formaður BSRB í október 2009, fyrst kvenna.
Áður hafði hún setið í stjórn sambandsins í tvo áratugi og var for
maður Félags opinberra starfsmanna á Suðurlandi. Elín Björg er
frá Þorlákshöfn og þar býr hún enn í dag ásamt eiginmanni sínum,
Davíð O. Davíðssyni. Um er að ræða einbýlishús við Haukaberg 6 sem
hjónin keyptu árið 1979.
Gylfi Arnbjörnsson
forseti ASÍ
Gylfi kom fyrst til starfa hjá verkalýðs
hreyfingunni sem hagfræðingur kjara
rannsóknarnefdar árið 1989. Hann var
síðan ráðinn framkvæmdastjóri ASÍ frá ár
inu 2001 en síðan kjörinn forseti sambands
ins 24. október 2008. Gylfi býr ásamt eiginkonu
sinni, Arnþrúði Ösp Karlsdóttur, í Þorláksgeisla 23 í Grafarholtinu í
Reykjavík. Íbúðina, sem er 132,6 fermetrar, keyptu þau í maí 2016. Kaup
verðið var 43,25 milljónir króna.
Þórunn Sveinbjargardóttir
formaður BHM
Þórunn var kjörin formaður BHM í apríl 2015. Áður hafði hún setið
í tólf ár á Alþingi Íslendinga, þar á meðal sem umhverfisráðherra
2007–2009.
Þórunn býr í 97,2 fermetra íbúð við Arnarás 17 í Garðabæ. Íbúð
ina keypti hún í ágúst 2007 og var kaupverðið 27,2 milljónir króna. Þór
unn kann augljóslega vel við sig í hverfinu en áður hafði hún búið í sömu
götu.