Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2018, Page 18
18 Helgarblað 26. janúar 2018fréttir
n Orgíur undir dáleiðslu, „Black cobra“ árásarsveitin, sértrúarsöfnuður og morð
O
rgíur undir dáleiðslu,
„Black cobra“
árásarsveitin, hótanir um
svarta galdur þvers og
kruss, morðhótanir og tilraun til
launmorðs, kynóður gúru og sér-
trúarsöfnuður hans, fíkniefni og
haugur af peningum. Allt þetta
kemur fram í reyfarakenndum
ásökunum ungrar íslenskrar konu,
sem starfað hefur sem fyrirsæta, á
hendur Swami Ozen Rajneesh,
vellauðugum ástargúrú sem bú-
settur er í Mexíkó. Á móti sakar
gúrúinn konuna um að vera flagð
undir fölsku sinni.
Bæði hafa birt frásagnir sín-
ar opinberlega, íslenska konan í
mexíkóska slúðurblaðinu Que Qui
og vefsíðu sem varar við gúrúnum,
á meðan Rajneesh hefur birt á
netinu ítarlega tímalínu ásamt
fjölda skjáskota af samskiptum
þeirra tveggja auk hljóðupptaka
af íslensku konunni. DV hefur auk
þess rætt ítarlega við þau bæði. Í
samtali við DV segir íslenska kon-
an að Rajneesh sé hættulegur fals-
gúrú sem reki þrælabúðir og mis-
tök hennar hafi verið að sjá ekki í
gegnum hann fyrr. Hún hafi leitað
til fjölmiðla í Mexíkó til að vara við
honum.
Lýsingar á kynnum þeirra
tveggja eru nánast gjörólíkar
þótt sumt sé sameiginlegt. Það
sem liggur nokkurn veginn fyrir
er að konan og Rajneesh kynnt-
ust í apríl í fyrra á veitingastað í
bænum Tulum á Yucatan-skaga í
Mexíkó. Báðum ber svo saman um
að því næst hafi sú íslenska farið á
lúxus hugleiðslusetur Rajneesh við
ströndina Playa Del Carmen.
Í báðum frásögnum kemur
fram að til stóð að konan myndi
eignast 15 prósenta hlut í setri
Rajneesh. Heldur konan því
fram að Rajneesh hafi reynt að
þröngva eignarhlutnum upp á
sig en ástargúrúinn segir að hún
hafi grátbeðið hann um það til að
greiða úr því hún gæti fengið vega-
bréfsáritun í Bandaríkjunum.
Moldríkur munkur
Til að gera mjög langa sögu stutta
heldur Rajneesh því fram að hann
og íslenska konan hafi átt í ástar-
sambandi þar sem hann greiddi
háar upphæðir undir hana. Hún
hafi svo stungið af af hugleiðslu-
setri hans með fjármuni og skart-
gripi. Því næst hafi hún leitað til
fyrrnefnds slúðurblaðs og vegið
að mannorði hans með því að full-
yrða að hann hafi dáleitt hana með
einhvers konar fíkniefni og brotið
á henni kynferðislega. Því neitar
Rajneesh alfarið og segist hafa séð
sig tilneyddan til að bregðast við
þessum ásökunum.
„Ég er einfaldur maður sem
varð munkur 17 ára gamall. Ég hef
verið Sannyasin [nokkurs konar
munkur í hindúatrú, innsk. blm.]
í 32 ár. Ég hef ekkert að fela og
líf mitt er eins og opin bók,“ seg-
ir Rajneesh í samtali við DV. Þrátt
fyrir þetta er hann moldríkur að
eigin sögn þar sem hann kemur
úr fjölskyldu milljarðamæringa og
móðir hans var fræg Bollywood-
leikkona. Það ber að taka skýrt
fram að á ýmsum vefsíðum eru
viðhafðar alvarlegar ásakanir gegn
manninum.
Gúrúinn segir hana
hafa verið unnustu sína
Rajneesh segir að fljótlega eftir að
hann kynntist konunni hafi þau
tekið saman. Að hans sögn segir
hún honum stuttu síðar að hún
sé í vandræðum vegna vegabréf-
bréfsáritunar. Rajneesh segir að
hún hafi því stungið upp á því að
hann myndi millifæra eitt hús-
anna á lúxushugleiðslusetri sínu
á hana og þannig gæti hún sýnt
fram á að hún stundaði rekstur í
Mexíkó. Rajneesh segist hafa sam-
þykkt þetta og hafi undirbúið und-
ir eins samning þess efnis. Hann
segir að hún hafi svo flutt á hug-
leiðslusetrið um miðjan maí-
mánuð. Að hans sögn hafi fyrst um
sinn hafi allt leikið í lyndi og hann
hafi borgað ýmislegt fyrir hana,
svo sem flug fyrir fjölskyldu henn-
ar til Mexíkó.
Að sögn Rajneesh lýsti konan
yfir ást sinni á honum í upp-
hafi júní og sagðist vilja trúlofast
honum. „Hún sagði að hún vildi
„trúlofast“ á afmælisdegi henn-
ar, þann 10. ágúst. Ég grínaðist
og spurði hvað hún vildi fá í gjöf
þegar við giftumst. Hún sagði að
15 prósent hlutafé í setrinu, sem
er metið á þrjár milljónir dollara,
væri viðeigandi kaupmáli vegna
brúðkaupsins. Mér fannst það
fyndið og samþykkti að gefa henni
15 prósent,“ segir Rajneesh. Hann
segist hafa strax haft samband
við lögmann sinn til að ganga frá
þessu. Rajneesh segir að eftir þetta
hafi hann gefið henni um milljón
íslenskra króna til að kaupa föt og
annað. Að hans sögn skrifaði kon-
an undir fyrrnefndan samning um
Íslensk fyrirsæta varar
við indverskum ástargúru
Hjálmar Friðriksson
hjalmar@dv.is
Að skrifa undir
Rajneesh heldur því
fram að á þessari
mynd megi sjá ís-
lensku konuna skrifa
undir samninginn.
Gúrú Rajneesh
segist auðugur
í gegnum
fjölskyldu sína.