Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2018, Qupperneq 19
Helgarblað 26. janúar 2018 fréttir 19
miðjan júnímánuð og birtir gúrú-
inn myndir af því máli sínu til
stuðnings.
Segir mæðgurnar hafa
snöggreiðst
Í tímalínu Rajneesh kemur næst
fram að í lok júní hafi hafist 21
dags hvíld, svokölluð „dulræn rós“
(e. mystic rose retreat). Af tíma-
línu Rajneesh að dæma virðist sú
hvíld hafa verið viðburðalítil utan
þess að íslensk móðir konunn-
ar kom á svæðið. Þann 20. júlí var
hvíldinni lokið og þá fór allt í háa-
loft. Rajneesh segir að konan og
móðir hennar hafi krafist þess að
fá afhent upprunalega vottorðið
um að hún væri hluthafi til að geta
afhent bandaríska ræðismann-
inum á svæðinu og fengið áritun.
Rajneesh sagðist hafa samþykkt
að gefa henni afrit til að hún fengi
vegabréfsáritun en vottorðið (e.
Original Share Certificate) fengi
hún ekki fyrr en kaupmálinn væri
samþykktur. Rajneesh segir að þá
hafi þær mæðgur trompast og sagt
hann leiðtoga sértrúarsöfnuðar
sem heilaþvægi fylgjendur sína og
gerði þá að þrælum sínum.
Rajneesh segir að vegna þessa
hafi hann ákveðið að taka
samninginn, sem hafði ekki
verið skjalfestur, og rifta
honum fyrir framan þær
mæðgur. Hann segir að þá
hafi þær orðið bálreiðar
og hótað honum öllu illu.
Hann segir að örfáum dög-
um síðar hafi konan farið
í skjóli nætur og síðar hafi
hann komist að því að hún
hefði haft á brott með sér
200 þúsund pesóa og ýmsa
skartgripi.
Svo leið nokkur tími og
þann 7. september kærði
konan hann til lögreglu og
þann sama dag birtist frétt
í fyrrnefndu Que Qui dag-
blaði. Þar var rætt við þá
íslensku, þótt hún sé ekki
nafngreind, og sagt að
Rajneesh sé svikahrappur.
Þann 5. desember birti
sama blað svo aðra frásögn frá
konunni þar sem Rajneesh var
sagður dáleiða konur með aðstoð
fíkniefna og láta þær taka þátt í
orgíum. Myndböndin séu svo birt
á vefsíðu, og birti dagblaðið skjá-
skot af síðunni þar sem mátt sjá
„blörraðar“ myndir af konunni.
Síðan er ekki lengur virk og eftir
því sem DV kemst næst var lénið
skráð degi fyrir birtingu greinar-
innar.
Í samtali við DV segir Rajneesh
að hann sjái sig tilneyddan að
bregðast við þessum ásökunum
sem hann segir alfarið rangar.
Hann hafi aldrei hótað henni
en viðurkennir þó að hann hafi
gengið á eftir því að hún skilaði
demants hring að verðmæti um
800 þúsund króna. Hann segir að
konan hafi síðar gengið til liðs við
andstæðinga hans en hann full-
yrðir að ungur maður hafi reynt að
myrða hann á afmælisdegi hans
á dögunum. Rajneesh telur að
sá piltur hafi verið á vegum and-
stæðinga sinna.
Svarti galdur
Víkur nú að hlið íslensku konunn-
ar og ásakana hennar á hendur
Rajneesh. Hún segir hann hættu-
legan leiðtoga sértrúarsöfnuð-
ar og hikar ekki við að kalla hann
morðingja. DV ræddi við konuna
og kveðst hún ekki hafa verið í
ástarsambandi með Rajneesh en
hún hafi látið blekkjast af honum
þegar hún fór á hugleiðslusetrið.
Hann sé öflugur dáleiðandi. Hún
segir að fljótlega eftir að hún kom
á hugleiðslusetrið hafi Rajneesh
veitt henni óeðlilega mikla athygli
og ausið hana gjöfum. Hún
segir hann nú standa í herferð
gegn henni og öðrum sem segi
sannleikann um hann.
„Við höfum ýmsar sögur og
sannanir um hversu slæmur og
geðveikur þessi maður er. Við
erum að reyna að taka hann nið-
ur. Við höfum verið að búa til
heimasíðu um þennan mann og
láta fólk vita hvernig maður hann
er,“ segir konan og vísar á ýms-
ar vefsíður. Þar er Rajneesh sagð-
ur tengjast hvarfi Michael Naut,
þýsks ríkisborgara, í nágrenni við
hugleiðslusetrið. Rajneesh er enn
fremur sagður hafa dreift nektar-
myndum af átján ára stúlku.
„Black Cobra“ sérsveitin
Frásögn konunnar er á þá leið
að ástargúrúinn hafi reynt að
þröngva fyrrnefndum eignarhlut í
setrinu upp á hana og þegar henni
hugnaðist það ekki þá hafi hann
hótað að myrða hana og fjölskyldu
hennar á staðnum. Það hafi ekki
verið í fyrsta skipti sem einhver
hafi verið myrtur á hugleiðslusetr-
inu. Hún segir á vefsíðunni að hún
hafi tekið fyrrnefndan hring með
sér þar sem hún hafi þurft að fara
í flýti. Hún birtir skjáskot af skila-
boðum Rajneesh þar sem hann
virðist hóta henni svarta galdri.
Þá víkur sögu að „Black Cobra“
sérsveitinni en íslenska konan
fullyrðir í umfjöllun á einni
vefsíðunni að maður að nafni
Chinmayo, sem hún segir helsta
þræl gúrúsins, hafi hótað að
sérsveitinni yrði beitt ef hún myndi
ekki skila hringnum. Hún hafi
óttast þessa sérsveit og því skilað
hringnum. DV spurði Rajneesh
út í „Black Cobra“ sérsveitina
og virtist hann ekki neita tilvist
hennar. „Ég á marga fylgismenn
í Rússlandi og mikið af mínu
fólki þar elskar mig. Já, ég er
með rússnesk sambönd en ég
myndi aldrei beita þeim nema
til varnar,“ svaraði Rajneesh.
Íslenska konan segir í samtali við
DV að „Black Cobra“ sé rússnesk
mafía sem sé víða í Evrópu. „Þeir
voru að hóta mér og fjölskyldu
minni að senda „Black Cobra
commando service“ á okkur og
drepa okkur. Hann er bara farinn
í hausnum,“ segir íslenska konan,
sem er komin til Íslands.
Segist ekki hafa verið með
gúrúnum
Að hennar sögn vildi gúrúinn að
hún tæki við hugleiðslusetrinu.
„Ég hef verið skyggn síðan ég var
krakki og hef séð orkur. Hann
notaði það að hann vissi að ég sæi
orku og árur. Hann notaði það að
ég væri með þessa fjólubláu orku.
Hann sagði að lærimeistari hans
hefði birst honum og sagt honum
að ég ætti að taka við staðnum,“
segir konan og bætir við að hún
hafi ekki kært sig um að eiga hlut
í setrinu.
Hún segir að henni hafi þótt
eins og hann vildi vera með henni
og það hefði hún ekki kært sig um.
„Hann var með átján ára stelpu
sem var hrein mey, ég veit ekki
hvort þetta sé satt. Hann birti
myndir af henni þar sem hún er
nakin. Hún vildi ekki vera með
honum áfram þannig að hann
sagði við hana: ef þú vilt ekki vera
með mér þá bara hefni ég mín.
Hann fann alla Facebook-vini
hennar, allt niður í tíu ára stelpur,
og sendi þeim nektarmyndir af
henni. Hann er það klikkaður og
hún missti alla vini sína,“ segir
konan og kveðst óttast manninn
mjög.
Hún segir að gúrúinn hafi
verið að snerta hana og hún hafi
ekki kært sig um það. „Ég hélt að
hann væri svona eins og þegar
fólk elskar allt, svona gúrúar, þeir
eru alltaf að snerta allt fólk. Ég var
alveg að knúsa hann stundum en
aldrei meira, bara hálfa mínútu
eins og venjulegt fólk. Maður er
nær fólki sem maður heldur að sé
gott. Þannig að hann lét fólk halda
að ég væri kærasta hans og mér
leið illa yfir því,“ segir konan.
„Þrælabúðir“
Hún segir Rajneesh hættulegan
falsgúrú. „Hann þykist vera upp-
lýstur maður á leið guðs en hann
er bara með þrælabúðir. Fólk
er að vinna frítt og í staðinn fær
það hugleiðslu og jóga ókeypis.
Ég fór þarna og sem betur fer sá
ég í gegnum hann. Ég kalla þetta
„cult“ lið. Ég var ekki að sjá í gegn-
um hann fyrst þar sem þetta er sið-
blindur maður sem er ekki heill á
geði. Við tókum okkur saman og
birtum sögur um hann og því er
hann að reyna að láta mig líta illa
út. Hann er, held ég, búinn að
vera að eitra fyrir fólki með plöntu
sem heitir [...] sem heldur sálinni í
burtu frá fólki.
Ég veit ekki alveg hvort það sé
satt en allavega þegar þú kem-
ur inn í búðirnar, þá sérðu að það
er ekki sál inni í fólki, það er eitt-
hvað skrýtið, allavega þeir sem eru
búnir að vera þarna lengi. Þeir eru
mjög skrýtnir og tala ekki mikið
við þig, eins og þeir séu vélmenni.
Allir byrja að breytast eitthvað og
orkan þarna er mjög skrýtin, því
hann er búinn að hugleiða lengi
en hann er ekki á vegum guðs,
hann er á vegum djöfulsins,“ segir
konan og er mikið niðri fyrir.
Hún segist hafa leitað til fjöl-
miðla í Mexíkó til að vara við
Rajneesh. „Ég vildi að fólk færi
ekki þangað. Þeir sögðu við mig að
þeir hefðu drepið fólk áður og sent
fólk til að drepa annað fólk. Ég
hef fengið fullt af líflátshótunum í
gegnum símann og líka mamma
mín og bróðir minn,“ segir konan.
Að hennar sögn hafi hún og
móðir hennar þurft að flýja af
setrinu og hafi þær óttast líf um
sitt. „Við vorum dauðhrædd í
langan tíma, við gátum ekki sofið
í tvo sólar hringa. Það hafa aðrir
flúið eftir að ég birti þetta. Allt þetta
sem hann segir um mig er hrein
lygi,“ segir hún. Hún segir að sín
helstu mistök hafi verið að sjá ekki
fyrr í gegnum Rajneesh. „Ég var
þarna nánast í tvo mánuði. Það var
hugleiðsla í 21 dag og þess vegna
dvaldi ég lengur,“ segir konan
sem fullyrðir að hún hafi tilkynnt
lögreglu á Íslandi um málið. n
Rajneesh og
íslenska konan
Meðan allt lék í lyndi.
Lúxussetur Af myndum á Facebook að dæma virðist hugleiðslusetrið vera vinsælt meðal
ungra Vesturlandabúa.
Músík Fáar myndir eru af Rajneesh á Facebook þar sem hann er ekki ber að ofan.
Quequi Pervert og gúrú segja fjölmiðlar í Mexíkó.
„Hann
þykist vera
upplýstur maður
á leið guðs en
hann er bara með
þrælabúðir