Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2018, Qupperneq 36
Útlit og heilsa Helgarblað 26. janúar 2018KYNNINGARBLAÐ
Sigurjón Ernir Sturluson íþrótta-fræðingur, Boot Camp þjálf-ari, einkaþjálfari, hlaupari og
áhugamaður um hreyfingu og matar-
æði, býður upp á fjarþjálfun og hefur
vart undan að sinna viðskiptavinum.
Hann heldur úti Fjarþjálfun Sigurjóns
Ernis á Facebook og nýlega breytti
hann bílskúrnum heima hjá sér í
líkamsræktaraðstöðu í samstarfi við
Sportvörur.
„Ég ákvað að fara út í fjarþjálf-
un eftir að hafa hjálpað og leiðbeint
félögum og fjölskyldumeðlimum
með hlaup, mataræði og ræktar-
prógrömm. Ég sá fljótlega að áhuginn
lá í þjálfuninni og þar sem mér þykir
virkilega gaman að hjálpa fólki að ná
árangri og sínum markmiðum ákvað
ég að stíga næsta skref og bjóða
upp á fjarþjálfun. Fjarþjálfunin hefur
gengið vonum framar og hef ég varla
haft undan við að sinna viðskiptavin-
um þrátt fyrir að ég hafi aðeins byrjað
með fjarþjálfunina fyrir rúmu ári síð-
an,“ segir Sigurjón.
Fjarþjálfun Sigurjóns Ernis
Á Facebook heldur Sigurjón úti síð-
unni: Fjarþjálfun Sigurjóns Ernis, þar
sem hann er duglegur að skrifa pistla
tengda hreyfingu og mataræði. „Það
er engin binding í fjarþjálfuninni hjá
mér, Ég vill að fólk sem sækir í þjálfun
til mín finnist æfingarprógrömmin
skemmtileg og um leið krefjandi og
séu ekki að æfa hjá mér að óþörfu í
ákveðin tíma ef fyrikomulagið hentar
þeim ekki.
„Æfingarnar eiga að vera fjölbreytt-
ar og skemmtilegar. Ef fólki finnst
æfingarprógrömin frá mér skemmti-
leg og vill halda áfram þá er það að
sjálfsögðu ekkert nema sjálfsagt, en ef
þau henta ekki, þá reyni ég að breyta
fyrirkomulaginu í takt við markmið og
getu viðskiptavinarins hverju sinni. Ég
legg ávallt áherslu á að halda vel utan
um mína viðskiptavini.“
Lét drauminn rætast og setti upp
líkamsræktarstöð i bílskúrnum
Hann býr í Grafarholti með kærust-
unni Simonu Vareikaité, starfar í
Sportvöruverslununi Sportvörum í
Bæjarlind 1-3, Járnblendiverksmiðj-
unni Elkem á Grundartanga, Fjarþjálf-
un og er einnig að klára masterinn í
íþróttafræði við Háskóla Íslands þar
sem lokaverkefnið er um fjarþjálfun á
Íslandi.
Áhugi Sigurjóns á líkamsrækt hefur
verið mikill undanfarin tíu á og aðeins
vaxið með árunum. „Ég byrjaði að
vinna í sportvöruversluninni Sportvör-
um fyrir fjórum árum síðan. Ég held ég
hafi fyrst og fremst verið ráðinn í vinnu
vegna gríðarlegs áhuga sem ég hef
á þeim búnaði sem Sportvörur bjóða
upp á,“ segir Sigurjón, sem er búinn
að safna að sér líkamsræktartækjum
í rúm sex ár og er í dag kominn með
aðstöðu í skúrnum sem flesta íþrótta-
iðkendur dreymir um að hafa.
„Ég æfi 7-11 sinnum í viku, lyftingar,
hlaup, crossfit, boot camp og hjól-
reiðar en æfingar og álag fer eftir
hvað er framundan og helst álag og
fjöldi æfinga alltaf í hendur. Ég legg
ávalt mesta áherslu á styrktarþjálfun
í mínum æfingum þar sem líkamlegur
styrkur er gríðarlega mikilvægur til
að hámarka árangur á öllum íþrótta-
greinum jafnt sem fyrirbyggja meisli
og flýta fyrir endurheimt.
Undirbúningur í fullum gangi fyrir
heimsmeistaramótið í fjallahlaupum
2018
Sigurjóni finnst ekki leiðinlegt að skora
á sjálfan sig og hefur hann keppt í
fjölmörgum keppnum sem reyna á
úthald, styrk og þol. „Næsta stóra
áskorun hjá mér er Heimsmeistara-
mótið í fjallahlaupum sem fer fram á
Spáni 12. maí næstkomandi.“ Hlaupið
verður í fjöllum þar sem vegalengdin
mun líklega verða eitthvað í kringum
80 km og hækkunin allt að 5.000 m.
Það á ennþá eftir að gefa út brautina
svo þessar tölur eiga eftir að koma
betur í ljós fljótlega.
Sigurjón hleypur og snappar um leið
(Snapchat: sigurjon1352)
„Ég hef alltaf verið virkur á Snapchat,
en þar er ég með notandanafnið
sigurjon1352. Ég sýni ýmis atriði tengd
hreyfingu og mataræði,“ segir Sigur-
jón. Hann er einnig öflugur að sýna frá
sínum æfingum, mataræði og snapp-
ar einnig frá fjalla- og maraþonhlaup-
um.
Óhræddur við að fara óhefðbundnar
leiðir
Sigurjón er óhræddur við að fara
aðrar leiðir en aðrir og sem dæmi má
nefna þá fastar hann hluta dagsins
á hverjum degi, en hann borðar þá
frá hádegi til kl. 20 á kvöldin, og síðan
ekkert í 16 klukkutíma. „Eins ótrúlegt
og það hljómar þá hef ég í raun ekki
borðað morgunmat í fjögur ár, fyrir
utan kaffi og vatn,“ segir Sigurjón.
„Ég er talsvert frábrugðinn öðr-
um og er þekktur fyrir að fara að-
eins öðruvísi leiðir þegar kemur að
æfingum og mataræði, ófeiminn við
að prófa mig áfram og finna þá leið
sem virkar fyrir mig. Ég hef verið svo
heppinn að fjölmörg fyrirtæki hafa
stutt mig og Sportvörur, Fitness-
sport, Hleðsla, Dansport og Heilsa
hafa staðið vel við bakið á mér.“ „Ég
horfi alltaf á stóru myndina þegar
það kemur að árangri en inn í hana
fellur: mataræði, æfingar, ákefð/
álag á æfingum, hvíld, vinna/skóli og
fjölskylda og einkalíf. Til að ná sem
bestum árangri til lengri tíma þurfa
allir þessir þættir að haldast í hendur.
Besta leiðin til að auka þekkingu og ná
lengra er að prófa sig áfram, þora að
misstíga sig og halda í það sem virkar,
sama hversu furðulegt það hljómar.“
„Ég er óhræddur við að fara
óhefðbundnar leiðir“
n Heimsmeistaramótið í Spartan
Race í Bandaríkjunum þar sem Sig-
urjón náði flottum árangri.
n Spartan Race sprettþraut hér
heima á Íslandi í desember, en þar
fór Sigurjón með sigur af hólmi.
n Helstu hlaup: 5 km (16:54), 10 km
(35:04), 21,1 km (1:18) og farið þrjú
maraþon (Best 2:46:50).
n Hlaupið og sigrað 5 Esjuferðir.
n Hlaupið hringinn í kringum landið
í 10 manna hóp (Útmeða) og tvisvar
sinnum hjólað í WOW cyclothon.
n Hlaupið og sigrað 5 tinda í
Tindahlaupinu í Mosfellsbæ.
nHlaupið Laugaveginn (55 km) á
4:57 klst.
n Unnið Þrekmótaröðina og hlotið
titillinn „Hraustasti maðurinn 2015“
og einnig 2017.
„Þessar áskoranir og keppnir hafa
gefið mér góða þekkingu og skilning
á því hvernig líkaminn bregst við
miklu álagi og hvernig best er að
bera sig að til að ná góðum árangri.“
ÚTBJÓ AÐSTÖÐU FYRIR ÆFINGARNAR OG ÞJÁLFUN Í
BÍLSKÚRNUM HEIMA
Helstu áskoranir og sigrar
Líkamsræktarstöð í bílskúrnum Sigurjón
lét drauminn rætast og er kominn með
frábæra aðstöðu í bílskúrnum.
Myndir /Sigtryggur Ari
Snappað á hlaupum Sigurjón er duglegur
á snappinu, líka á hlaupum.