Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2018, Side 40

Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2018, Side 40
Útlit og heilsa Helgarblað 26. janúar 2018KYNNINGARBLAÐ Skíðalandsliðið notar EVY-sólarvörn á OL VEITIR ALLT AÐ SEX TÍMA VÖRN GEGN SKAÐLEGUM GEISLUM Þau tíðindi hafa orðið að allir keppendur í A- og B-landsliðum Íslands í skíðaíþróttum munu hér eftir nota hina byltingarkenndu EVY-sólarvörn við æfingar og keppni. A-landsliðið tekur þátt í Vetrar- ólympíuleikunum í Suður-Kóreu sem hefjast í febrúar. „Við erum afar ánægð með þetta frumkvæði og þessa faglegu sýn hjá Skíðasambandi Íslands,“ segir Anna Björg Hjartardóttir, fram- kvæmdastjóri Celsus, sem selur EVY á Íslandi. „Við erum ánægð með að Skíðasambandið skuli átta sig á þessum mikilvægu gæðum vörunnar nú á þeim tímum þegar útbreiðsla húðkrabbameins er orðin svo mikil og há UVA-vörn er afar mikilvæg þeim sem eru lengi í sól því alvarleg skað- semi útfjólubláu A-geislanna gerir engan greinarmun á hitastigi, það gildir einu hvort þú ert að erfiða í snjó og kulda eða að stikna á ströndinni.“ Mikilvægt að hafa í huga: Hægt að skaðast af sólinni án þess að brenna EVY inniheldur bæði háa vörn gegn UVA- og UVB-geislum. Þeir síðar- nefndu valda sólbruna og bendir Anna á að það geri þá augljósari þar sem fólk verði vart við að það hafi sólbrunnið, þó ekki í golu og vindi og oftast of seint. „UVA-geislar berast til dæmis inn um gluggarúður og afleiðingin er meðal annars sú að húðkrabbamein hjá flugmönnum hefur aukist mikið,“ segir Anna. Snjór endurkastar allt að 85% af sólar- geislunum, þess vegna er oft margt brennt skíðafólk á sólardögum. EVY byggir á einkaleyfisskráðri formúlu. Grunnformúlan myndar rakafyllta verndandi vörn sem líkir eftir og styrkir náttúrulegar varnir húðarinnar og bindur raka í húðinni jafnvel við erfiðustu aðstæður, uppi á jöklum, í frosti, í söltum sjó sem dæmi. Vörnin leggst í hornlag húðarinnar í stað þess að leggjast á yfirborðið eins og algengast er. Þess vegna nuddast vörnin ekki af og þolir sund, sjó, leik og íþróttir, enginn glans eða klístur. Rannsóknir sýna allt að 6 tíma vörn gegn UVA- og UVB-geislum. EVY verndar líka gegn hita, vindi og þurrk af klór, saltvatni og húðertandi áreiti. Notkun EVY breiðist nú út á meðal skíðamanna, ræðara, pólfara og annarra ofurhuga sem reyna á mátt sinn úti í náttúrunni. Hins vegar er æskilegt að allt útivistarfólk noti EVY til að vernda sig gegn skaðlegum geislum, til dæmis fjallgöngufólk og áhugaskíðamenn í skíðaferðalögum. Ítarlegar og afar gagnlegar upp- lýsingar er að finna um EVY sólar- vörnina á vefsíðunni evy.is. Freydís Halla Einarsdóttir keppir á Vetrar- ólympíuleikunum Sturla Snær Snorrason keppir á Vetrar- ólympíuleikunum Kísilsteinefnið inniheldur hreinan jarðhitakísil Kísilsteinefnið geoSilica inniheldur hreinan jarðhitakísil sem unninn er úr jarðhitavatni Hellisheiðar- virkjunar. Læknisfræðilegar rannsóknir hafa leitt í ljós að kísill gegnir mikilvægu hlutverki í mannslíkamanum og er honum nauðsynlegur. Kísill er sérstak- lega mikilvægur fyrir heilsu beina enda örvar hann myndun kollagens í líkam- anum, en kollagen er helsta uppistaða bandvefjar sem er að finna í beinum, húð, hári, nöglum, liðböndum, sinum og brjóski. Kísill hjálpar einnig kalki að koma sér fyrir í beinvef og er því mikilvægt að taka inn kísil samhliða kalkinntöku til að kalkið nýtist sem best. Inntaka kísil- steinefnis gæti haft fyrirbyggjandi áhrif gegn beinþynningu. Kísilsteinefnið geoSilica styrkir band- vef, styrkir hár og neglur og vegna betri myndunar kollagens getur inntaka kís- ilsins stuðlað að sléttari og fallegri húð. Fyrirtækið geoSilica Iceland hef- ur þróað vöruna, framleiðir hana og selur. Þau Fidu Abu Libdeh og Burkni Pálsson, ásamt Ögnum ehf., stofnuðu fyrirtækið árið 2012. Um haustið það ár fékk geoSilica verkefnastyrk Tækni- þróunarsjóðs til rannsókna og þróunar á vörunni. Hún kom síðan á markað í desember árið 2014: 100 prósent há- gæða náttúrulegt íslenskt kísilsteinefni í vökvaformi, tilbúið til inntöku. Nýjar vörur frá geoSilica slá í gegn geoSilica hefur eflt mjög vöruþróun á síðustu misserum og hafa nýjar vörur frá fyrirtækinu slegið rækilega í gegn. geoSilica kísilsteinefni eru á metsölu- listanum Top 10 Best Sellers in Silica Mineral Supplements á Amazon US. geoSilica býður nú upp á eftirfarandi vörulínu: . geoSilica kísill -Íslenskt kísil- steinefni geoSilica Renew - Fyrir húð, hár og neglur geoSilica Recover - Fyrir vöðva og taugar geoSilica Repair - Fyrir liði og bein Nánari upplýsingar um vörurnar og virkni þeirra er að finna á vefsíð- unni geosilica.is. Þar er einnig að finna merkilegar reynslusögur margra Ís- lendinga sem hafa notað vörurnar frá geoSilica með undraverðum árangri. Við látum eina fljóta hér með: Ásdís Geirsdóttir „Nokkrum mánuðum eftir að ég átti yngri dóttur mína í nóvember 2014 fór að bera á miklu hárlosi hjá mér. Ásamt því var ég mjög slæm í húðinni og neglurnar á mér brotnuðu enda- laust. Mér var þá bent á kísilsteinefnið frá geoSilica. Það er 100% náttúrulegt steinefni sem er þróað og framleitt á Íslandi úr jarðhitavatni frá Hell- isheiðarvirkjun. Kísilsteinefnið kemur í vökvaformi og ætlast er til að maður taki inn 1 msk. (10 ml) á hverjum degi. Það sem mér fannst líka virkilega gott við kísilinn er að hann inniheldur engin aukaefni – aðeins kísil og vatn – og er einnig bragðlaus. Ég ákvað að prófa enda orðin frekar langþreytt á þessu ástandi og búin að prófa bæði sjampó fyrir hárlos, ýmis krem og naglaherði. Ein flaska dugði mér í einn mánuði og eftir um 2 vikur var ég farin að sjá verulegan mun á húðinni, hárinu og nöglum. Ég ákvað því að taka aðra góða törn og keypti flöskur næstu tvo mánuðina og árangurinn lét ekki á sér standa! Ég náði svo að sannfæra manninn minn um að prófa kísilinn líka. Hann er með psoriasis en kísillinn hefur reynst fólki með psoriasis einstaklega vel. Hann sá einnig mikinn mun á húð- inni sinni og margir blettir sem hann var með urðu þynnri og minnkuðu til muna. Síðan þá höfum við nokkrum sinnum tekið tarnir með kísilinn frá geoSilica og alltaf sé ég jafn mikinn mun á mér og þá sérstaklega á húð- inni og nöglunum. Auk þess finnst mér þetta minnka slen og stirðleika sem oft hellist yfir marga yfir vetrartímann.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.