Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2018, Qupperneq 43

Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2018, Qupperneq 43
Útlit og heilsaHelgarblað 26. janúar 2018 KYNNINGARBLAÐ Hjalti Már Kárason er einka-þjálfari hjá Reebok Fitness og þjálfar í þeirri stöð, sem hentar hverjum viðskiptavini. Hann byrjaði hjá Reebok Fitness í fyrra, en hefur þjálfað í 13 ár. „Ég var í frjálsum íþróttum frá 6–15 ára aldri og hef alla tíð verið í íþrótt- um, tók einkaþjálfarann árið 2006 og hef þjálfað óslitið síðan,“ segir Hjalti Már. „Mér finnst gaman að hjálpa fólki og sjá það ná árangri, það gefur mér svo mikið.“ Margir viðskiptavinir hans hafa orðið góðir kunningjar hans í ræktinni, enda samskipti þjálfara og viðskipta- vinar sem æfa saman í langan tíma mikil. Hjalti Már býður upp á einkaþjálf- un, paraþjálfun og hópaþjálfun. Auk þess að bjóða upp á mælingar og matarprógrömm. Viðskiptavinir eru á öllum aldri og af báðum kynjum. „Einkaþjálfunin er vinsælust, en para- þjálfun er líka vinsæl,“ segir Hjalti Már. „Mér persónulega finnst skemmti- legra að vera með fólkið hjá mér, mér finnst það gefa mér meira,“ segir Hjalti Már aðspurður hvort hann bjóði upp á fjarþjálfun. Hjalti Már er einnig með hópatíma hjá Reebok. „Þeir eru ætlaðir til að styrkja kvið og mjóbak, ég skipti tím- um yfirleitt í þrennt, byrja á fótum, fer svo í efri partinn og enda á kviði og mjóbaki. Síðan endum við á teygjum í lokin.“ Til að hafa samband við Hjalta Má má hringja í síma 867-3531 eða senda tölvupóst á hjaltimar77@gmail. com. Umsagnir: „Með markvissum æfingum, jákvæðri hvatningu og dassi af húmor kom Hjalti okkur hjónum aftur af stað í ræktina eftir langt sófaset- utímabil. Hjalti er ljúfur og þægilegur í samskiptum, en gefur engan afslátt af æfingum þó að aðlögun æfinga sé sjálfsagt mál. Ár- angurinn lét ekki á sér standa og kom það mér á óvart að fara úr tveimur aumum armbeygj- um í upphafi yfir í 30 eftir tímabilið. Ég, sem þoldi ekki armbeygjur, var farin að taka þær nokkrar heima hjá mér milli tíma. Við mælum heils hugar með Hjalta.“ -Bryndís Eva Jónsdóttir. „Ég er 15 ára strákur og eftir að ég byrjaði í einkaþjálfun hjá Hjalta hef ég náð miklum framförum, ég æfi fótbolta og þar hefur sérhæfð þjálfun nýst mér vel. Einnig hefur árangurinn gefið mér aukið sjálfs- traust.“ -Tristan Þór Það gefur mér mikið að hjálpa fólki og sjá það ná árangri HJALTI MÁR KÁRASON ÞJÁLFAR HJÁ REEBOK FITNESS Hjalti Már Kárason Eiríkur Ágúst Brynjarsson einka-þjálfari, eða Gústi eins og hann er betur þekktur, á fyrirtækið Betri heilsa – Betra líf, sem býður upp á einkaþjálfun í Sporthúsinu í Kópavogi, fjarþjálfun og matarráðleggingar. „Ég glímdi sjálfur við ýmis heilsu- vandamál þegar ég var yngri,“ segir Ágúst, sem er 27 ára gamall. „Ég var búinn að reyna allt og alla kúra, var að sleppa þessu úr mataræðinu og bæta öðru við, en ekkert gekk til lengdar. Ég missti einhver kíló einn mánuð og bætti þeim við aftur næsta mánuðinn.“ Gústi kynntist síðan hópi sem lagði fyrst og fremst áherslu á mataræðið, frekar en hreyfinguna. Þar átti hann helst að passa upp á neyta ráðlags skammts af próteini og borða jafnt og þétt yfir daginn og á tveimur árum missti hann 30 kíló. „Fólk fór eðlilega að spyrja mig hvernig ég hefði farið að því og ég að segja því frá og gefa því góð ráð. Síðan fór fólk að mínum ráðum og fór að ná árangri, sem veitti mér mikla ánægju,“ segir Gústi. Sótti um einkaþjálfaranám á síðasta degi Í kjölfarið sótti hann um einkaþjálfara- námið í Keili á síðasta degi umsóknar- frestsins og komst inn. „Ég varð bara heillaður af náminu og hellti mér út í að læra sem mest.“ Vinir Gústa skoruðu á hann að byrja með like-síðu á Facebook og heimasíða er í vinnslu. „Flestir viðskiptavinir mínir hafa bætt líf sitt,“ segir Ágúst, „þótt allir hafi kannski ekki endilega misst mikinn fjölda kílóa. Ég er mikið á móti skyndilausn- um/kúrum og vil frekar að fólk þjálfi jafnt og þétt og geri þetta að lífsstíll. Ég gef leiðbeiningar um mataræði, en er meira að benda á hvernig þú átt að borða, frekar en hvað þú átt að borða. Ég er ekki með grjóthörð matarplön. Fjölskyldufólk er til dæmis ekki að fara að hlýða því til lengri tíma að borða kjúkling, sætar kartöflur og soðið grænmeti. Allar uppskriftir sem ég er með henta vel, hvort sem er fyrir einn eða heila fjölskyldu. Ég hitti alla sem eru í fjarþjálfun hjá mér minnst einu sinni áður en þeir byrja, hafi þeir tök á því, og tek þá í líkamsstöðu- og ástandsgreiningu. Þá sé ég hver helstu stoðkerfavandamálin eru. Ég býð fólki að koma í ákveðin þol- próf og hreyfipróf, og þá sé ég kannski einhver vandamál sem viðkomandi jafnvel vissi ekki af.“ Býður upp á smáforrit til að halda utan um æfingar „Það er algengt að fólk í fjarþjálfun fái blað með æfingum sem það á að gera og síðan hefur viðkomandi ekki hugmynd um hvernig hann á að gera þær,“ segir Gústi. „Ég býð fólki hjá mér upp á að fá aðgang að appi, sem heitir Trainerize. Þá eru þar myndbönd sem ég hef tekið af sjálfum mér eða af netinu. Þú ýtir á æfinguna og skoðar hana í tölvunni heima eða í snjallsíman- um þegar þú ert í ræktinni ef þú manst ekki hvernig þú átt að gera æfinguna.“ Gústi skráir æfingu og hversu oft á að gera hana og hvaða þyngd á að nota. Viðskiptavinurinn merkir svo við þegar hann lýkur æfingunni. Gústi býður viðskiptavinum sínum upp á mælingu og eru þær upplýsingar skráðar inn í appið. Þannig getur hann séð kúrfu af þyngd og árangri, auk þess sem hlaða má árangursmyndum inn. Hætti viðskiptavinur í þjálfun í ákveðinn tíma og byrjar síðan aftur geymast einfaldlega upplýsingar hans í appinu. Fylgist ávallt með árangri sinna við- skiptavina „Jafnvel þó að einhver hætti hjá mér, þá mun ég alltaf fylgjast með við- komandi af og til,“ segir Gústi. „Hvort viðkomandi sé enn að æfa, ná árangri og svo framvegis. Viðskiptavinir mínir vita að þeir geta alltaf heilsað upp á mig og fengið ráðleggingar þó að þeir séu ekki að æfa hjá mér akkúrat þá stundina. Þeir vita að þeir eru orðnir hluti af þessari litlu fjölskyldu.“ Gústi hefur laðað að sér ýmsa við- skiptavini sem eiga við verki eða yfir- þyngd að stríða, þar sem hann hefur sjálfur reynslu af slíku. „Margir sem leita til mín eiga einhverja vanda- málasögu vegna hreyfingarleysis eða meiðsla en auðvitað er fjöldinn allur af fólki sem vill bara fínpússa árangurinn í ræktinni. Mér finnst ekkert skemmti- legra en sjá fólk ná árangri og bæta lífsgæðin.“ Afsakanir eru ekki í boði „Ég get orðið grimmur þegar fólk kemur með afsakanir, ég vil frekar að fólk mæti á æfingu og við bara teygjum á eða gerum eitthvað uppbyggjandi,“ segir Gústi. „Ef þú ert einu sinni búinn að nýta þér afsökun þá muntu nýta hana aftur.“ Á miðvikudögum setur Gústi inn æfingu á Facebook-síðuna sína, æfingu sem taka má hvar sem er, hvort sem er heima fyrir eða á hótel- herbergi erlendis. „Árangur tekur sér ekki frí,“ segir Gústi. „Árangur tekur sér aldrei frí“ NOTAR EIGIN REYNSLU TIL AÐ HJÁLPA VIÐSKIPTAVINUM AÐ ÖÐLAST BETRA LÍF Fyrir og eftir Gústi breytti um lífsstíl.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.