Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2018, Side 46
Útlit og heilsa Helgarblað 26. janúar 2018KYNNINGARBLAÐ
Tækið góða Hulda við tækið sem gerir
hreint kraftaverk fyrir marga við-
skiptavini hennar.
Myndir / Sigtryggur Ari
Hulda Eysteinsdóttir opnaði Heilsu- og fegrunarstofu Huldu í júní árið 2017 að
Borgartúni 3. Stofan býður upp á
meðferðir í Weyergans High-Care
tækjunum og hafa þær meðferðir
skilað mjög góðum árangri hjá við-
skiptavinum Huldu.
„Ég býð upp á sogæðameðferð-
ir, súrefnismeðferð, maska og slíkt
andlitsdekur, fótadekur, svo nokkuð
sé nefnt,“ segir Hulda. „Ég lærði
fyrst naglameðferð árið 1998, en
hef samt ekki unnið við hana fyrr en
núna í seinni tíð.“
Sogæðameðferð fyrir fætur
„Þetta er bylgjunudd, kemur blóð-
flæðinu og sogæðakerfinu af stað,
er gott við fótapirring, gott fyrir flug,
fólk sem stendur mikið og fólk sem
er þreytt í fótum almennt,“ segir
Hulda, sem mælir með að farið sé í
slíka meðferð reglulega.
Hún býður upp á vacumsport,
detoxpoka og vacumnet, sem er
fyrir hendur og vöðvabólgu, eymsli
í hálsi og tennisolnboga. „Það er
svona loftæmiþrýstinudd,“ segir
Hulda.
„Vacumsport er samsvarandi
tæki nema fyrir neðri hluta líkam-
ans, frá mitti og niður. Sem dæmi
má nefna viðskiptavin sem beið
eftir hnjáskiptiaðgerð, hann kom
á miðvikudegi og keypti tíu tíma
kort. Þá gat hann varla gengið inn,
á föstudagsmorgni eftir tvö skipti
þá kom hann gangandi inn og gekk
að tækinu eins og ekkert væri að
honum.“
Svona saga eftir notkun tækisins
er ekki einsdæmi og bera umsagnir
viðskiptavina það með sér.
Hulda mælir með að viðskipta-
vinir komi í tíu tíma meðferð á stutt-
um tíma og mæti síðan reglulega
eftir það til að viðhalda árangrinum,
einu sinni í viku eða aðra hverja viku.
„Eins og með annað í lífinu þá þarf
maður að viðhalda árangrinum,
alveg eins og með að borða reglu-
lega, æfa reglulega og fara í klipp-
ingu reglulega,“ segir Hulda.
Heilsu- og fegrunarstofa Huldu
er að Borgartúni 3, Reykjavík.
Síminn er 557-4575 og 893-4575.
Facebook: hfhulda.
Umsagnir:
Ég fékk brjósklos í lok október og var
búin að vera alveg frá af verkjum
og þar af leiðandi andvökunætur
nótt eftir nótt. Ég frétti af tækinu hjá
Huldu og ákvað að prófa þar sem
ég vildi prófa allt bara til að minnka
verkina eitthvað. Ég átti erfitt með að
labba inn á stofuna og vissi ekki hvað
beið mín, með tárin í augunum fór
ég í tækið og viti menn án gríns hafði
fyrsti tíminn gert kraftaverk fyrir mig,
ég gat sjálf staðið upp en þó ekki
verkjalaus. Ég mæli með tækinu því
þetta hefur algjörlega bjargað mér til
að komast af, ég fer 2-3 í viku og er
nokkuð góð þá. Ég elska að koma til
hennar, einstaklega góð þjónusta og
liðlegheit. -Arna Rún Guðmundsdóttir
Ég kynntist tækjunum hjá Heilsu-
og fegrunarstofu Huldu fyrir rúmlega
einu og hálfu ári og það sem þetta
hefur gert fyrir mig er alveg magnað.
Ég er 29 ára og greindist með vefja-
gigt fyrir rúmlega sex árum og hef
síðan þá, áður en ég kynntist tækjun-
um hjá Huldu, reynt að ná einhverju
jafnvægi í daglegu lífi og loksins núna
í dag hef ég náð að halda bólgum
og verkjum niðri. Ég er orkumeiri
vegna sogæðameðferðanna hjá
Huldu. Vacusport, sogæðastígvélin,
detoxpokinn og spm meðferðirnar
hafa gert svo mikið fyrir mig. Ég var
til dæmis verkjuð daglega í hnjám
og átti í erfiðleikum með að labba
upp stiga vegna þess ég var búin að
flakka á milli lækna og enginn gat
gert neitt til að laga það, en núna í
dag er ég verkjalaus í hnjánum. Ég
var líka alltaf verkjuð í mjóbaki og átti
erfitt með svo margt og truflaði það
líka svefninn hjá mér, en núna í dag
er ég líka verkjalaus í mjóbakinu. Áður
en ég byrjaði að fara í meðferðir hjá
Huldu var ég alltaf föst í sömu þyngd.
Alveg sama þótt ég æfði daglega og
passaði mataræðið gerðist ekkert, en
eftir að hafa byrjað að fara í sog-
æðameðferðirnar léttist ég um 20
kg á nokkrum mánuðum. Tækin hjá
Huldu hafa gert svo mikið fyrir mig:
ég sef betur, er minna verkjuð og
orkumeiri og næ að halda gigtinni hjá
mér niðri með því að mæta reglulega
til hennar og mikið er ég þakklát
hvað þessi tæki hafa gert mikið fyrir
mig. -Auður
„Fyrsti tíminn
gerði kraftaverk
fyrir mig“
FRÁBÆR ÁRANGUR EFTIR SOGÆÐAMEÐFERÐIR HJÁ HULDU