Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2018, Side 47
Útlit og heilsaHelgarblað 26. janúar 2018 KYNNINGARBLAÐ
Kundalini Jóga
Hatha Jóga
Jóga Nidra
Mjúkt Jóga
Jóga fyrir 60+
Krakkajóganámskeið alveg frá aldrinum 3-14
ára
Meðgöngujóga
Mömmujóga
Karlajóga
Grunnnámskeið í Kundalini Jóga
Grunnnámskeið í Hatha Jóga
Parajóga
Núvitund gegn streitu
12 spor til vellíðunar
Jógasetrið var stofnað af eigand-anum Auði Bjarnadóttur. Tilurð Jógasetursins kom til vegna
mikils áhuga á jóga. Það byrjaði með
meðgöngujóga og löngum biðlistum og
svo vatt þetta upp á sig. Nú er setrið
orðið mjög fjölbreytt til að þjóna öllum
aldurshópum.
Jógasetrið var opnað árið 2012 í
Borgartúni en færðist síðan frá 2015
í sérhannað húsnæði í Skipholti 50c.
„Það er ávallt eitthvað á döfinni hjá
okkur og við látum vita af námskeiðum
og viðburðum sem eru á döfinni bæði
á Facebook-síðu okkar Jógasetrið og
heimasíðunni jogasetrid.is,“ segir Auður.
Jóga er fyrir alla
„Við stöndum fyrir hugmyndina JÓGA
FYRIR ALLA og fjölbreytni. Að þjóna vel
ólíku fólki og opna fyrir víðsýni gagnvart
jógategundum og stílum. Við bjóðum
upp á margar tegundir jóga og nám-
skeiða svo allir geta fundið eitthvað við
hæfi,“ segir Auður.
„Áhugi á jóga hefur stóraukist með
hverju ári og jógastöðvar spretta upp
um allan bæ. Við teljum að jóga sé
algjörlega fyrir alla því í jóga lærum við
fyrst og fremst að stjórna önduninni
okkar því að hún er leiðin til að hægja
á huganum og finna kyrrðina. Við
þurfum öll að hægja á okkur og hlusta
á líkamann. Það er mikilvægt að við
nærum og sinnum okkar innra lífi eins
og því ytra.
Við bjóðum einnig upp á ýmsa
viðburði eins og Tónheilun, gongslökun
og möntrukvöld með reglulegu millibili.“
Síðan hefur hún Auður haldið utan
um ýmiss konar kennaranám í jóga á
vegum Jógasetursins sem hefur reynst
vel því mikið samfélag hefur myndast
í kringum Jógasetrið í gegnum árin.
„Þetta er fallegt samfélag og það er
gaman að fylgjast með vinskapnum og
kærleiknum sem hefur þróast.
Nýjasti tíminn sem við bjóðum
nú upp á er Parajóga þar sem allir
geta komið sem hafa með sér félaga.
Systkini, frænkur, frændur, mæðgur,
feðgar og makar. Þar er áherslan á að
anda og hreyfa sig sem eitt, að veita
félaga sínum rými og virðingu og mæta
honum þar sem hann er. Við notum þar
öndunaræfingar, jógastöður og hug-
leiðslu til þess að samstilla okkur.
Næsta námskeið á döfinni er Grunn-
námskeið í Hatha Jóga, þar sem farið
er í undirstöðuatriði jógastaða, jóga-
fræði og öndunartækni. Námskeiðið
hefst 5. febrúar.
Við bjóðum alla velkomna að kíkja í
Jógasetrið Skipholti 50c.“
Jógasetrið
ÞAR SEM JÓGA ER FYRIR ALLA
Jógatímarnir og lokuðu námskeiðin sem
boðið er upp á í Jógasetrinu eru
Heilbrigð leið að fallegri brúnku
Alexandra Ýr Þorsteinsdóttir opnaði Tan Reykjavík, sprayt-an stofu í Holtagörðum fyrir
tveimur árum. Einnig rekur hún verslun
á sama stað og vefverslunina tan.is.
„Þetta er hugmynd sem ég fékk út
frá öðrum skandinavískum módelum,“
segir Alexandra. „Ég var sjálf hætt að
fara í ljós og byrjuð að nota brúnku-
krem. Ég sá þetta í Danmörku og
Svíþjóð þar sem það er mjög vinsælt,
fannst þetta frábær hugmynd og
vanta alveg hér heima.“
Viðbrögðin hafa verið gríðarlega
góð og alltaf fullbókað. Viðskiptavinir
eru af báðum kynjum og á öllum aldri,
sú elsta er 82 ára. Aldurstakmark er
við fermingu. „Þetta er orðið mjög vin-
sælt hjá öllum hópum, þó að það hafi
verið nær eingöngu konur hjá okkur
fyrst.“
En af hverju er fólk að fara í spray
tan? „Fólk er orðið meðvitaðra um
hversu óhollt er að fara í ljós og
velur þessa leið frekar. Sumir koma
af ákveðnu tilefni, eins og til dæmis
árshátíð eða eru að fara til útlanda og
vilja fá smá brúnku áður en þeir fara
út,“ segir Alexandra. „Flestir eru þó
fastir viðskiptavinir sem koma einu sinni
í viku.
Við erum einnig mjög samkeppn-
ishæf hvað verð varðar, en hver tími
kostar 2.990 krónur meðan ljósatími
kostar um 1.500–2.000 krónur og svip-
uð meðferð á snyrtistofu 5.000–7.000
krónur. Ég fæ ítrekað spurningar um
hvort að þetta sé verðið og hvort það
sé fyrir allan líkamann.“
Vörurnar eru 100% náttúrulegar
„Mine tan litirnir sem við notum eru
100% náttúrulegir, innihalda andox-
unarefni, kaffibaunir, kókosvatn,
moroccanolíu, svo fátt eitt sé nefnt.
Litirnir gefa húðinni góðan raka og
næringu og innihalda ekki paraben eða
súlföt.
Þegar viðskiptavinur mætir þá
veljum við lit sem hentar húð hvers og
eins. Tólf litir eru í boði og einnig boðið
upp á að blanda fyrir hvern og einn.
Við mælum með að koma með hreina
húð og í víðum fötum, fara svo heim og
bíða í sex tíma og fara svo í sturtu, þá
er liturinn tilbúinn.
Fólk er að sjá mikinn mun, losnar til
dæmis við þurrk, húðin ljómar meira,
sem dæmi,“ segir Alexandra. „Ég
spreyja viðkomandi, enda fæst besta
útkoman þannig, frekar en að vél spreyi
á hann.
Á tíu mínútum er viðskiptavinurinn
kominn með góðan lit sem endist í 7–10
daga, þannig að flestir eru að mæta
einu sinni í viku til að viðhalda litnum.
Sérstakir litir eru í boði fyrir íþróttafólk
sem svitna ekki af, en allir litirnir eru
lyktarlausir og smitast ekki í föt. Fara
má í sund með litinn og dofnar hann af
jafnt og þétt, kjósi viðskiptavinur ekki að
mæta aftur til að viðhalda litnum.“
Á vefsíðunni tan.is má kaupa sömu
liti í froðubrúsa. „Sumum finnst þægi-
legra að spreyja sig heima, á meðan
aðrir kjósa að koma til okkar,“ seg-
ir Alexandra, sem leggur jafnframt
áherslu á að veita persónulega og
góða þjónustu.
Tan Reykjavík, verslun og sprayt-
anstofa, er í Holtagörð-
um, 2. hæð. Tímapant-
anir og upplýsingar eru
í síma 778-6200. Opn-
unartími er samkvæmt
bókunum. Heimasíða:
tan.is, Facebook-
síða: taniceland og
Instagram: Tanreykja-
vik.
TAN REYKJAVÍK -
NÁTTÚRULEGAR VÖRUR SEM GEFA HÚÐINNI RAKA OG NÆRINGU