Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2018, Side 52
Vikublað 26. janúar 2018 52
Eyþór Arnalds fæddist þann 24. nóvember árið 1964 í Reykjavík. Hann er sonur
þeirra Sigríðar Eyþórsdóttur,
kennara, leikstjóra og stofnanda
leikhópsins Perlunnar, og Jóns
L. Arnalds, f.v. borgardómara og
ráðuneytisstjóra í Reykjavík. Eyþór
ólst að mestu upp í Árbænum
ásamt systur sinni Bergljótu Arn-
alds og naut þess m.a. í uppeldinu
að móðuramma hans og afi bjuggu
ætíð í sömu blokk. Eyþór hefur
löngum verið listhneigður. Ellefu
ára sló hann í gegn sem Kalli á þak-
inu í samnefndu verki og nokkrum
árum síðar varð hann enn þekkt-
ari þar sem hann kom fram með
hljómsveitinni Tappi Tíkarrass
ásamt Björk Guðmundsdóttur. Ey-
þór lauk tónsmíðanámi hjá Louise
Andriessen í Hollandi og MBA-
námi frá Háskólanum í Reykjavík
en jafnframt lagt stund á hagfræði-
tengt stjórnendanám við Harvard-
háskóla. Eyþór hefur löngum haft
gaman af hvers konar viðskiptum.
Hann stofnaði sitt fyrsta fyrirtæki
um tvítugt en hefur á liðnum árum
aðallega einbeitt sér að stjórnun
og rekstri fyrirtækja í iðnaði og
ferðaþjónustu. Eyþór, sem býr í
Vesturbænum, er kvæntur Dagmar
Unu Ólafsdóttur jógakennara og
saman eiga þau synina Jón Starkað,
10 ára, og Þjóðrek Hrafn, 8 ára.
07.00
Dagurinn hefst á því að ég fæ mér
staðgóðan morgunverð. Ég spæli
mér egg, helli upp á kaffi og sest
svo niður til að lesa blöðin. Um leið
hjálpa ég sonum mínum að koma
sér af stað í skólann en þeir hafa
verið við nám í Landakotsskóla
síðustu tvö árin.
09.00
Fyrstu fundir dagsins byrja um
klukkan níu og þá reyni ég oftast að
hitta fólk í Sjávarklasanum þar sem
ég hef góða fundaraðstöðu. Mér
finnst líka gott að hitta fólk í sínu
umhverfi og fer því stundum um
allan bæ í þessum erindagjörðum.
Þessa dagana snúast fundirnir helst
um að ræða málefni borgarinnar
með margvíslegum hætti, hlusta
bæði á fagaðila og fólkið í borginni
sem hefur frá ansi mörgu að segja.
12.00
Í hádeginu reyni ég oftast að lyfta
lóðum og fer þá gjarna í World
Class í Laugum. Ég lyfti sex sinnum
í viku og hef gert í svona hálft
ár. Ég mæti einn en maður hittir
alltaf hresst fólk á þessum æfing-
um og þannig verður ræktin besti
skemmtistaðurinn. Lyftingarnar
gefa mér bæði andlega og lík-
amlega orku og svo styrkir þetta
vöðva, bein og skap.
13.30
Ég er að reyna að venja mig á
mataræði sem gengur út á að
forðast hröð kolvetni og mér finnst
best að borða beint eftir æfingu. Þá
eitthvað gott prótein, fisk eða kjöt,
en ég reyni að sleppa kartöflum
og mat sem er unninn úr hveiti.
Stundum fer ég heim og elda eða
kem við einhvers staðar í mat. Yfir-
leitt borða ég hádegismatinn einn
en þó kemur það fyrir að maður
sameini fundi og hádegisverð þegar
það er mjög mikið að gera.
16.00
Ég er með vinnuaðstöðu á þremur
stöðum, eina í Ármúla, aðra í Sjáv-
arklasanum og sú þriðja er heima
hjá mér. Þangað fer ég yfirleitt
þegar ég er búinn að borða og/eða í
ræktinni svo að ég geti verið heima
að taka á móti strákunum mínum
þegar þeir eru búnir í skólanum
upp úr fjögur og svo vinn ég eitt-
hvað áfram heima.
18.00
Upp úr sex tekur eldamennskan
við. Ég hef alltaf verið ágætur í
matreiðslu og elda þá bæði fisk
og kjötrétti en er sérlega góður í
að elda pastarétti sem synir mínir
eru ákaflega hrifnir af. Þá sýð ég
hefðbundið hveitipasta fyrir þá en
heilhveitipasta fyrir sjálfan mig.
19.00
Ég er fremur heimakær og reyni
að vera sem mest heima hjá mér á
kvöldin en stundum verður maður
að skreppa frá. Reyndar finnst
mér alltaf mjög gaman að fara á
tónleika og í leikhús enda fylgdi
það uppeldinu. Mamma og pabbi
voru bæði mjög listhneigð og
menningarlega sinnuð. Í stofunni
er ég með skákborð, bækur og
plötuspilara, svona til að reyna að
halda í gamla raunheiminn sem er
óðum að hverfa enda finnst mér
sjónvörp ekki mjög aðlaðandi inni
í aðalrýminu. Ég reyni yfirleitt að
forðast mikið sjónvarpsgláp og les
heldur bækur.
22.00
Það eru alltaf átök að sannfæra
synina um að koma sér í háttinn
en eftir að það tekst þá fer ég oftast
að lesa, aðallega fagbókmenntir;
sagnfræði, tækni og þess háttar.
Upp á síðkastið hef ég haft sérstak-
an áhuga á því að lesa mér til um
gervigreind enda er heimurinn að
breytast ansi hratt og því gott að
vera með á nótunum.
00.00
Yfirleitt er ég ekki sofnaður fyrr
en í kringum miðnætti og finnst
það heldur seint, en núna vaki ég
oftast enn lengur þar sem ég er á
kafi í kosningabaráttu og því ótal
verkefni sem ber að höndum.
Eyþór arnalds
- líkamsrækt, lágkolvetnafæði og lestur fróðlegra fagbókmennta
Hvað er besta ráð
sem þér Hefur verið gefið?
„Sá sem ræður yfir heiminum er
mikill, en sá sem ræður yfir sjálfum
sér er mikilmenni.“ Þetta sagði
amma Bergljót alltaf og orðin hafa
setið í mér. Ég tel mjög mikilvægt
að kunna að hafa stjórn á skapinu,
enda er reiður maður líka brjálaður
maður eins og hún sagði.
besta ráð sem þú
getur gefið öðrum?
Að koma fram við aðra eins og
maður vill að komið sé fram við sig.
Kristur hafði lög að mæla.
Hvað vildir þú að
þú Hefðir vitað fyrr?
Framan af ævinni kunni ég ekki að
segja nei. Tók allt of mikið að mér
og færðist þannig stundum of mikið
í fang. Síðari árin hef ég tamið mér
að segja nei aðeins oftar, með góð-
um árangri, en upp á síðkastið hef
ég þó sagt já aðeins oftar, – enda
á kafi í kosningabaráttu.
Da
gur
í l
ífi