Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2018, Side 56
Vikublað 26. janúar 2018 56
Margrét brunaði upp í Saga Film ásamt Brynju ljósmyndara og fékk að
forvitnast um lífshlaup þessarar kraft-
miklu konu sem, líkt og stígvélaður
köttur, hefur alltaf farið sínar eigin
leiðir og stundum tekið skrítna króka.
Hvaðan kemur viðurnefnið rokk?
„Sko. Það er mjög mikilvægt
að það komi fram að ég valdi
ekki nafnið sjálf heldur var mér
gefið það af vinkonu minni, Svönu
Gísladóttur. Nýfermdar ákváðum
við að stofna rokkhljómsveitina
Ástmeyjar Hamlets og tókum í
kjölfarið Akraborgina til Reykja-
víkur til að kaupa hljóðfæri. Það
voru einhverjir strákar búnir að ýja
að því að við gætum ekkert verið í
hljómsveit og auðvitað vorum við
ekkert til í að samþykkja það. Um
leið og við komum til Reykjavíkur
rukum við í verslunina Rín en þar
keypti ég flottasta svarta rafmagns-
gítarinn sem ég sá og magnara. Svo
drösluðumst við með þetta upp á
Skaga og byrjuðum að æfa á fullu,“
segir Kidda og hlær.
„Daginn eftir var ég allt í einu
orðin Kidda rokk en viðurnefnið
kom beint frá Svönu sem starfar
sem mjög flottur kvikmyndafram-
leiðandi í London í dag. Við, litlu
nýfermdu femínistarnir, vorum
sko fljótar að finna út úr því að við
skyldum ekki láta einhverja stráka
segja okkur hvort við gætum gert
eitthvað eða ekki. Þannig var það
þá og þannig er það enn.“
Hún bætir við að hún hafi oft
velt því fyrir sér hvort hún ætti að
reyna að hrista nafnið af sér.
„Sérstaklega þegar ég var að
verða fertug. Þá var ég í svona
nafnakrísu: „Er ég miðaldra konan
„Ég ætla
bara að
segja þÉr
þetta
mamma …
Ég er lesbía!“
bassaleikari, húsgagna-
smiður, félagsráðgjafi og
kvikmyndaframleiðandi.
þær eru ekki margar mið-
aldra konurnar sem hafa átt
jafn viðburðaríkan starfsferil
og Kristín þórhalla þórisdótt-
ir, eða Kidda rokk eins
og hún er kölluð.
Margrét H. gústaVsdóttir
margret@dv.is
„Tveimur vikum síðar kom
hún svo á deit til mín
og það má segja að hún hafi
ekkert farið heim eftir það,
nema bara til að ná í krakkann