Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2018, Side 72
72 Helgarblað 26. janúar 2018
18 18 ára fangelsisvist gerði Bandaríkjamanninum Richard Biegenwald greinilega ekkert gott. Eftir að honum var sleppt úr fangelsi árið 1977 myrti hann að minnsta kosti fjórar manneskjur.
Tvö fórnarlambanna gróf hann við heimili móður sinnar á Staten Island. Ric-
hard lést í prísund árið 2008.Sakamál
Höfnun og Hefnd
n Einstæð móðir hittir mann n Maðurinn er úlfur í sauðargæru
B
elginn René Dubois var
lánlaus maður, og gat
kannski að einhverju leyti
sjálfum sér um kennt. Árið
1999 uppgötvaði hann að eig-
inkona hans, og móðir þriggja
barna þeirra, átti í ástarsambandi
við besta vin hans. René ákvað að
kenna vini sínum lexíu og gerði
það svo svikalaust að sá lá um átta
mánaða skeið í dái á spítala. Fyrir
vikið fékk René fimm ára dóm og
var sleppt úr fangelsi í júní 2004.
Mánuði síðar flutti René til
Mouscron, í suðurhluta Belgíu,
skammt frá landamærunum að
Frakklandi. Þar hitti hann Vanes-
su Six, fráskilda móður lítils
drengs, Donovans, og með þeim
tókust kynni.
René verður ástfanginn
René mátti eiga að hann fór ekki
dult með fortíð sína og það ofbeldi
sem hafði kostað hann fimm ár
af frelsi. „Það heyrir sögunni til,“
sagði hann við Vanessu, „ég tók
út mína refsingu og ekkert því líkt
mun nokkurn tímann gerast aftur.“
Ekki leið á löngu þar til René
var fluttur inn til Vanessu í bænum
Luingne og orðinn svona líka yfir
sig ástfanginn af henni. Hann tók
til hendinni heima við, sá um inn-
kaup, sótti Donovan í skólann og
reyndist hinn besti sambýlismaður.
Óendurgoldin ást
En þó var sá hængur á að Vanessa
gerði sér grein fyrir að þrátt fyrir
líkamlegt samneyti þeirra væri
með miklum ágætum þá fór því
fjarri að hún endurgyldi þá ást sem
hann bar til hennar. Sú yrði aldrei
raunin, var henni ljóst, og hún yrði
að segja honum það og gera hreint
fyrir sínum dyrum.
„Ég vil ekki sofa hjá þér framar.
Það er enginn neisti, en þú getur
búið hér ef þú vilt,“ sagði Vanessa
við René, sem hengdi haus. Hann
hafði svo sem skynjað að ekki var
allt sem skyldi og í raun grunað að
eitthvað þessu líkt væri í uppsigl-
ingu.
Vanessa bjargar lífi René
René leitaði huggunar hjá Bakkusi
og drakk gjarna þar til hann stóð
ekki í fæturna. Einnig kom í ljós að
ofbeldishneigðin, sem átti að heyra
sögunni til, var enn til staðar, því
hann lét Vanessu ekki í friði og nef-
braut hana og hótaði henni bráð-
um bana ef hún giftist honum ekki.
Vanessa lét þetta yfir sig ganga
og þótt hún lifði í stöðugum ótta
varð hún enn staðráðnari í að
aldrei framar myndu þau deila
rekkju.
Síðan gerðist það í febrúar 2007,
þegar hún kom heim frá vinnu, að
René lá meðvitundarlaus á sófan-
um. Hann hafði tekið svefntöflur
með áfengi og var við dauðans dyr.
Stöðugt ónæði
Vanessa hringdi í Neyðarlínuna og
bjargaði þannig lífi René, en þetta
var kornið sem fyllti mælinn og
hún sagði að hann yrði að finna
sér annan íverustað.
Það gerði René, en hann fór ekki
langt. Hann flutti inn í stúdíóíbúð
í grenndinni og ónáðaði Vanessu
með stöðugum heimsóknum
undir því yfirskini að hann vildi
hitta Donovan og fara með hann í
gönguferð eða eitthvað viðlíka.
Síðan var það föst regla að
þegar René skilaði Donovan þá
kom hann óboðinn inn, plant-
aði sér fyrir framan sjónvarpið og
hóf drykkju. Það var ekki fyrr en
Vanessa sagðist ætla að ganga til
náða, og hann yrði því að hlunkast
heim, sem hann lét sig hverfa.
Símhringing eftir miðnætti
Á einu slíku kvöldi sagði René við
Vanessu: „Farðu bara í rúmið. Mig
langar að horfa á þennan þátt.
Ég skal fara hljóðlega að honum
loknum.“
Vanessa fór í rúmið og sofnaði
fljótlega. Skömmu eftir miðnætti
vaknar hún við símhringingu og nán-
ast milli svefns og vöku svarar hún.
Í símanum var René sem
sagði án málalenginga: „Líttu til
Donovans. Þú munt finna hann dá-
inn.“ Vanessa rauk inn í svefnher-
bergi sonar síns og ljóst var að René
hafði engu logið. Donovan, sjö ára,
hafði verið kæfður með kodda.
Gefur sig fram
Á sama tíma og bráðaliðar reyndu
árangurslaust að bjarga lífi drengs-
ins staulaðist René út af uppáhalds-
knæpu sinni. Reikull í spori komst
hann að næstu lögreglustöð og
sagði: „Ég er nýbúinn að drepa lít-
inn dreng. Ég gef mig hér með fram.“
Vanessa mun sennilega seint
fyrirgefa sjálfri sér að hafa komið
René til bjargar þegar hann lá við
dauðans dyr á sófanum heima hjá
henni. n
„Farðu bara
í rúmið.
Mig langar að
horfa á þennan
þátt. Ég skal
fara hljóðlega að
honum loknum.
feigð í fantaSíulandi
n Pauline og Juliet voru vinkonur n Honora var vinskap þeirra þrándur í götu
13.
febrúar, 1954. Ég
vaknaði klukkan
5 eins og vanalega
og tókst að skrifa
slatta. Tilhugsunin um daginn
framundan olli mér hugarangri.
Það virtist ólíklegt að mamma
gæfi eftir og leyfði mér að heim-
sækja Juliet. Núna síðdegis sagði
mamma að ég fengi ekki að hitta
Juliet fyrr en ég væri komin upp í
50 kíló og glaðlegri. Henni hugn-
ast ekki samband okkar. Núna er
ég 45 kíló þannig að þetta lítur
ekki vel út. Ég man að svona var
mamma líka þegar ég átti í sam-
bandi við Nicholas.
Þá sagði hún að ég gæti ekki
hitt hann fyrr en hegðun mín
skánaði og þegar það gerðist sló
hún því föstu að það væri ekki
áhrifum hans að þakka. Hún get-
ur verið svo ósanngjörn. Af hverju
getur mamma ekki dáið? Tugir
eru að deyja einmitt núna, þús-
undir á hverjum degi. Af hverju
ekki mamma? Af hverju getur hún
ekki dáið?“
Ósátt 16 ára stúlka
Svohljóðandi færslu setti
Pauline Parker, 16 ára stúlka í
Christchurch á Nýja-Sjálandi,
í dagbók sína þar sem hún sat
í svefnherbergi sínu að kvöldi
þess sama dags. Pauline var fal-
leg stúlka, með dökkt litarhaft en
á þessari stundu gætti streitu í
andliti hennar og hún andvarpaði
þungan.
Pauline var dóttir Herberts
Rieper og Honoru Parker. Þrátt
fyrir að Herbert og Honora væru
ekki gift, hann ku víst hafa verið
kvæntur annarri konu þegar
þarna var komið sögu, hafði
Honora tekið upp eftirnafn hans.
Sterk vináttubönd
Hvað sem því líður þá átti
Pauline vinkonu, Juliet Marion
Hulme. Sú var frá Bretlandi en
hafði alið manninn í Karíba-
hafinu og Suður-Afríku í við-
leitni til að bæta heilsuna; hún
hafði greinst með berkla á barns-
aldri. Faðir hennar, Henry Rains-
ford Hulme, tók við rektor-
stöðu í Canterbury-háskólanum
í Christchurch, 1952, og Juliet
„Af hverju getur
mamma ekki
dáið? Tugir eru að deyja
einmitt núna, þúsundir á
hverjum degi. Af hverju
ekki mamma?Örtröð við
dómhúsið
Vangaveltur um
kynhneigð vin-
kvennanna vakti
mikinn áhuga.
Donovan Átti sennilega einskis ills von frá René.