Morgunblaðið - 19.10.2017, Side 18

Morgunblaðið - 19.10.2017, Side 18
18 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. OKTÓBER 2017 greinarinnar. Fulltrúar flokkanna voru einnig sammála um að skoða ætti skosku leiðina svonefndu í inn- anlandsflugi, að greiða niður flugfar- gjöld íbúa á jaðarsvæðum. Og allir lögðu þeir áherslu á að veita þurfi aukið fé til að byggja upp og við- halda samgöngukerfinu og öðrum innviðum; sumir höfðu raunar tafist í umferðinni á leiðinni á fundinn í Hörpu. Þeir voru hins vegar ekki eins sammála um skatta og önnur gjöld í ferðaþjónustu og hvernig best væri að skipuleggja stjórnkerfið í kringum atvinnugreinina. Sungið um vask „Vask, vask, vask og aftur vask, það eina sem við hugsum um er bara va-a-askur,“ söng Skapti Örn Ólafs- son, upplýsingafulltrúi SAF, en hann og Helga Árnadóttir, fram- kvæmdastjóri samtakanna, stýrðu fundinum. Skapti sagði að þetta lag hefði verið talið líklegt til vinsælda á þinginu í fyrra, að vísu hjá mjög þröngum hópi þingmanna og spurði síðan hvort frambjóðendurnir hygð- ust leggja fram eða styðja tillögur um hækkun virðisaukaskatts á ferðaþjónustuna á næsta kjör- tímabili. „Ég ætla ekki að standa hér og segja: Ég lofa því að virðisauka- skattur á ferðaþjónustu fari aldrei í almennt þrep,“ sagði Þórdís Kol- brún Reykfjörð Gylfadóttir, þing- maður Sjálfstæðisflokks og ráðherra ferðamála. „Þessi ákvörðun hefur hins vegar ekki verið tekin og verður ekki nema það sé óhætt að taka hana. Ég er sammála því að það vanti frekari greiningar, ég er sam- mála því að ákveðnar forsendur hafi breyst,“ sagði Þórdís, en bætti síðar við, að það væri ekki stefna flokksins að troða inn hækkun á virðis- aukaskatti á næsta kjörtímabili. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, sagði að mark- miðið með skattbreytingunni á ferðaþjónustu hefði verið að einfalda skattkerfið og lækka efra þrepið í virðisaukaskattkerfinu á móti. „Það verður að skoða þetta í samhengi, og það skiptir líka máli að tala um lækk- un tryggingagjalds, sem gagnast best litlum og meðalstórum fyr- irtækjum sem eru helst í ferðaþjón- ustunni,“ sagði hún og bætti við að stærsta hagsmunamál ferðaþjónust- unnar væri að koma á gengis- stöðugleika og lækka vexti. „Nú er ég bara venjulegur maður og í meðallagi vel gefinn. Ég skildi ekkert af því sem þær voru að segja,“ sagði Sigurður Ingi Jóhanns- son, formaður Framsóknarflokksins, og uppskar hlátur og klapp í salnum. „Það kemur ekki til greina af okkar hálfu (að hækka virðisaukaskatt á ferðaþjónustu). Við höfum sagt að það þarf að byggja upp ferðaþjón- ustu á jaðarsvæðum í þessu landi og við ætlum ekki að kippa fótunum undan þeim fyrirtækjum.“ Kerfið langar að hækka Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, sagði að sá flokkur ætlaði ekki að hækka virðis- aukaskatt á ferðaþjónustu, sem væri að keppa við önnur lönd. „Ég hef grun um að þessi hugmynd eigi upp- runa sinn í kerfinu. Vegna þess að í vissum hluta þess er ríkur vilji, löng- un, til að hækka virðisaukaskatt á ferðaþjónustu. Stjórnmálamennirnir verða að passa upp á að kerfið taki ekki upp á að hækka virðisauka- skattinn vegna þess að það langar til þess og mun reyna aftur áður en langt um líður.“ Óttarr Proppé, formaður Bjartrar framtíðar, sagði að tillögurnar um hækkun virðisaukaskattsins hefðu verið hluti af almennri efnahags- aðgerð og ferðaþjónustan væri orðin það stór grein að hún hefði gríðarleg áhrif á gengi krónunnar. „Ég treysti mér ekki til að útiloka breytingar, ég held að það sé mikilvægt að horfa á ferðaþjónustuna sem hluta af ís- lenska efnahagskerfinu. (…) Við þurfum að horfa til þess að búa til stöðugra efnahagsumhverfi en boðið hefur verið upp á,“ sagði Óttarr. „Við styðjum þetta ekki,“ sagði Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs. „Af þeirri einföldu ástæðu að þetta er stærsta útflutnings- greinin og við miðum við það að aðr- ar útflutningsgreinar greiði virðis- aukaskatt sem er sambærilegur og í helstu útflutningslöndunum. Ef við færum í þessa aðgerð yrði íslenska ferðaþjónustan með næsthæsta virðisaukaskattinn í Evrópu.“ Nýir tímar „Nýtt fólk, nýir tímar,“ sagði Jó- hanna Vigdís Guðmundsdóttir, frambjóðandi Samfylkingarinnar, og sagði að flokkurinn hefði ekki á stefnuskránni að hækka virðis- aukaskatt á ferðaþjónustu á næsta kjörtímabili enda þurfi að fara var- lega í skattlagningu á nýjar atvinnu- greinar. Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, sagði meginmarkmið flokksins að útrýma hverskyns mis- munun og það ætti einnig við um virðisaukaskattkerfið. Það væri stefna flokksins að hækka virðis- aukaskatt á ferðaþjónustu en ekki á næsta kjörtímabili enda væri óstöð- ugleiki í gjaldmiðlinum og gríðarleg fjárfesting í greininni, sem þýddi lántökur og gríðarlega skuldasöfn- un. Helgi Hrafn Gunnarsson, fram- bjóðandi Pírata, sagði það ekki á stefnuskrá flokksins að hækka virð- isaukaskatt á ferðaþjónustu. „Við þurfum að hugsa til lengri tíma núna, við þurfum ekki að mjólka meiri peninga út úr greininni þótt það sé stemningin í samfélaginu, því miður,“ sagði Helgi. Hann sagðist hins vegar ekki geta lofað því að framtíðin gerði þessar skattkerfis- breytingar ekki nauðsynlegar. Hægt er að horfa á upptöku af fundinum á heimasíðu Samtaka ferðaþjónustunnar, saf.is. Framboð um ferðaþjónustu  Fjölmenni á fundi Samtaka ferðaþjónustunnar með frambjóðendum í komandi alþingiskosningum  Krafðir svara um skatta og skosku leiðina  Sammála um að leggja meira fé í samgöngukerfið Guðm. Sv. Hermannsson gummi@mbl.is Það hefur lengi þótt góð skemmtun að sækja framboðsfundi fyrir þing- kosningar og fylgjast með frambjóð- endum skylmast hver við annan og gesti í salnum. Með tímanum hefur form framboðsfundanna þó breyst töluvert, þeir eru nú flestir haldnir á vegum félaga, samtaka, stofnana eða fyrirtækja og fjalla því um afmörkuð málefni. Einn slíkur var haldinn í Hörpu í gær á vegum Samtaka ferðaþjónustunnar þar sem ferða- þjónustan vildi fá skýr svör frá fram- bjóðendum um skatta og gjöld, stjórnkerfi og framtíðaráform. Áhuginn á að heyra svörin var greinilega mikill því hvert sæti var skipað í Kaldalóni. Og sum voru nokkuð skýr. Þannig er sama hvaða stjórnmálaflokkar verða í ríkisstjórn eftir þingkosningarnar 28. október: Forsvarsmenn ferðaþjónustunnar mega eiga von á hringingu frá nýjum ráðherra ferðamála þar sem þeim er boðið til skrafs og ráðagerða um skipulag og uppbyggingu atvinnu- Morgunblaðið/Árni Sæberg Breiðfylking Frambjóðendur og fundarstjórar á framboðsfundi um ferðamál: Helgi Hrafn Gunnarsson, Inga Sæland, Jóhanna Vigdís Guðmundsdóttir, Katrín Jakobsdóttir, Óttarr Proppé, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Sigurður Ingi Jóhannsson, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, Skapti Örn Ólafsson og Helga Árnadóttir. Opið: Mán. til fimmtudaga kl. 9 -18 Föstudaga kl. 9 - 17 Laugardagar kl. 11-15 Askalind 3 • 201 Kópavogur • Sími: 562 1500 • friform.is GASELDAVÉLAR HÁGÆðA Við höfummörg járn í eldinum þegar það kemur að úrvali á gaseldavélum því við vitum að ekki elda allir kokkar eins. Hvort sem þú ert ástríðukokkur eða ekki, þá höfum við réttu græjurnar fyrir þig. Ofnarnir okkar eru með fjölda stillinga sem henta ástríðukokkum sem og áhugafólki ummatargerð. ELBA - 106 PX ELBA - 126 EX 3ja ára ábyrgð ELBA Í YFiR 60 ÁR ’ Það þarf ekki að skattleggja hverja einustu tekjulind sér- staklega bara vegna þess að mönnum dettur það í hug. Helgi Hrafn Gunnarsson ’ Við viljum vera grænt og öruggt land sem heldur utan um náttúruna. Óttarr Proppé ’ Með því að efla menntun og rannsóknir eflum við ferða- þjónustuna. Katrín Jakobsdóttir ’ Það er ekki þjóðhagslegt ör- yggi falið í verslunarhúsnæði á Keflavíkurflugvelli. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir ’ Við verðum að fara að horfa 50 ár fram í tímann. Sigurður Ingi Jóhannsson ’ Það er til miklu meira en nóg fjármagn til að ráðast í upp- byggingu innviða. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson ’ Það þarf kjark til að breyta gömlum, úreltum kerfum, sem hafa verið við lýði ekki síst fyrir tilstuðlan stjórnmálamanna. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir ’ Þessi hingað og þangað gjaldtaka á ekki upp á pall- borðið hjá Flokki fólksins. Inga Sæland ’ Við getum ekki talað um ferðaþjónustu án þess að tala um vegakerfið. Jóhanna Vigdís Guðmundsdóttir Orðrétt

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.