Morgunblaðið - 19.10.2017, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 19.10.2017, Qupperneq 34
34 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. OKTÓBER 2017 Eldborg 23. nóv. kl. 19:30 24. nóv. kl. 19:30 25. nóv. kl. 13 & 17 St. Petersburg Festival Ballet ásamt Sinfóníuhljómsveit Íslands Börn 12 ára og yngri fá 50% afslátt. Miðasala í síma 528 5050 og á harpa.is. harpa.is/thyrniros #harpa Br an de nb ur g |s ía Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is Elin Ahlin Sundman, doktorsnemi í fornleifafræði við Háskóla Íslands, hefur rannsakað mataræði í klaustr- um á miðöldum og borið saman við mataræði annarra sem voru uppi á sama tíma. Hún skoðaði m.a. bein sem hafa komið upp við fornleifa- uppgröft á Skriðuklaustri og í Vað- stena-klaustrinu í Svíþjóð. Beinin greindi hún með ísótópum. „Með því er hægt að sjá hvort manneskjan borðaði mikið af kjöti eða fiski. Fiskur er matur sem kirkjan vildi að fólk borðaði á föstutímanum. Því má gera ráð fyrir að þeir sem borð- uðu mikið af fiski á miðöldum hafi verið að fylgja tilmælum kirkj- unnar, eins og gott kristið fólk átti að gera,“ segir Elin. Fiskur umfram kjöt Á miðöldum var margt fólk trúað og því má gera ráð fyrir að fiskur hafi verið oft á boðstólum að sögn Elinar. „Ég skoðaði hvort ég gæti séð hvort sumir væru að borða meiri fisk, eins og meðlimir trúar- samfélagsins, í samanburði við aðra. En það kom í ljós að allir borðuðu mikinn fisk, ekki bara karlmenn heldur líka konur og börn. Svo að það lítur út fyrir að þessi kenning nái ekki bara yfir trúarsamfélagið heldur líka hina.“ Elin skoðaði líka ólíka vöðvaupp- byggingu til að reyna að fá mynd af kjötáti og hugmyndinni um karl- mennsku, en kjöt var talið mjög nærandi og tengt við styrk og kraft. „Hugmyndin var að miklir bardaga- kappar fengju styrk úr kjötátinu. Það var ein gerð af karlmennsku en trúarkarlmennskan snerist um að hafa stjórn á líkamanum og ekki falla fyrir freistingum. Munkar áttu að lifa í fábreytni og aðskilja sig lík- amanum og löngunum hans; því var dæmigerður matur hjá þeim fiskur. Í minni rannsókn virtust allir borða mikinn fisk og ekki það mikið af kjöti. Því má gera ráð fyrir að margir hafi fastað, bæði þeir sem dvöldu í klaustrum og hinir,“ segir Elin. Fiskur borðaður fyrir kristni Hún skoðaði bein 16 karla og sex kvenna sem dvöldu í klaustrum og utan þeirra, en þau áttu sameigin- legt að vera af frekar háum stéttum. Fiskur virtist vera mikilvægur þátt- ur í mataræði allra. „Þetta var efnað fólk sem hafði val um hvað það borðaði. Það kemur í ljós í rannsókn minni, sem styðst við niðurstöður fyrri rannsókna, að mataræði þeirra sem fylgdu reglum kirkjunnar og hinna var svipað, meirihlutinn borðaði mikið af fiski. Það þarf ekki endilega að vera tengt trúnni því það var líka mikil hefð fyrir því að borða fisk því að fólk bjó nálægt vötnum eða sjó. Það var hefð fyrir fiskáti fyrir kristinn tíma og svo sagði kirkjan fólki líka að borða fisk, sem gerði það enn vin- sælla. Út frá þessari rannsókn leiði ég að því líkur að það að vera hófsamur og að falla ekki í freistni hafi verið karlmennska miðaldanna. Að það að borða fisk hafi verið leið til að öðlast virðingu því að fólk bar virðingu fyrir þeim sem fylgdu reglum kirkj- unnar,“ segir Elin að endingu. Fiskur var ekki bara matur kirkjunnar manna á miðöldum  Allir borðuðu mikinn fisk á miðöldum en hann var tengdur við föstur kirkjunnar Fornleifar Elin Ahlin Sundman við rannsóknir á Skriðuklaustri. Hún skoð- aði mataræði í klaustrum á miðöldum, en þar var borðað mikið af fiski. Biskup Íslands, Agnes M. Sigurðardóttir, hefur skipað tvo nýja presta. Dís Gylfadóttir guð- fræðingur var skipuð í embætti prests í Lindaprestakalli í Kópa- vogi og séra Fritz Már Jörgensson skipaður í embætti prests í Kefla- víkurprestakalli. Umsækjendur um Lindasókn voru 10, allt konur. Það hefur ekki gerst áður að eingöngu konur hafi verið svo fjölmennur hópur um- sækjenda. Þær voru auk Dísar: Al- dís Rut Gísladóttir guðfræðingur, Anna Þóra Paulsdóttir guðfræð- ingur, séra Ása Laufey Sæmunds- dóttir, séra Bára Friðriksdóttir, Bryndís Svavarsdóttir guðfræð- ingur, séra Eva Björk Valdimars- dóttir, Helga Kolbeinsdóttir guð- fræðingur, Sóley Herborg Skúladóttir guðfræðingur og Sól- veig Árnadóttir guðfræðingur. Þrjár umsóknir bárust um Kefla- víkurprestakall. Umsækjendur auk séra Fritz voru guðfræðingarnir Bryndís Svavarsdóttir og Herborg Skúladóttir. sisi@mbl.is Tveir prestar skipaðir Dís Gylfadóttir Fritz Már Jörgensson
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.