Morgunblaðið - 19.10.2017, Síða 68

Morgunblaðið - 19.10.2017, Síða 68
Morgunblaðið/Eggert Eurovision Aron sló í gegn í undankeppni Eurovision fyrr á árinu. Hann útilokar ekki þátttöku á næsta ári. Sigurður Þorri Gunnarsson siggi@mbl.is „Ég geri þetta lag í samstarfi við þá Valla Sport, sem gerir textann, og Svein Rúnar, sem semur lag- ið,“ segir Aron Hannes um nýja lagið sitt, Morgunkoss. Lagið fjallar um mann sem vaknar upp eftir skyndikynni innblásin af mik- illi ást, án þess að vera með nafn eða símanúmer. Lagið er á ís- lensku en Aron stefnir að útgáfu á því á ensku líka. Hann er sam- mála blaðamanni þegar hann er spurður hvort það sé ekki eft- irspurn eftir góðu poppi á ís- lensku. „Ég t.d. er mikill aðdáandi Friðrik Dórs og hann er alltaf með frábæra texta á íslensku, lög- in eru grípandi en textarnir ekki síður,“ segir Aron. Ástin í Hollandi Aron er með annan fótinn í Hol- landi en kærastan hans er hol- lensk. Þau kynntust í fyrra þegar þau stunduðu nám í söng í Kaup- mannahöfn. „Það er svona pæling kannski, en ekki alveg strax. Þetta er ekki nema tveir til þrír tímar í flugi þanng að þetta er ekki svo langt í burtu,“ segir Aron þegar hann er spurður hvort það standi til að flytja til Hollands á næstunni. Hann er þó alveg viss um það að hann muni ekki freista þess að taka þátt í Eurovision fyr- ir Hollands hönd en hann sló rækilega í gegn hér á Íslandi fyrr á árinu í Söngvakeppni Sjónvarps- ins. Útilokar ekki þátttöku á næsta ári Þegar Aron er spurður hvort hann gæti hugsað sér að taka aft- ur þátt í Söngvakeppninni á næsta ári útilokar hann það ekki. „Þetta var alveg ógeðslega gam- an, þetta kom mér á kortið og maður er alveg tilbúinn að upplifa þetta aftur,“ segir Aron. Það má segja að þjóðin hafi verið tilbúin til þess að taka á móti Aroni en hann var sérstaklega vinsæll með- al ungra áhorfenda, sem biðu í röðum eftir eiginhandaráritun frá honum. Kemur fram á jólatónleikum í desember „Ég verð hjá henni Heru Björk í Grafarvogskirkju,“ segir Aron um dagskrána í desember en þau Aron og Hera hafa þekkst lengi. „Í fyrsta skipti sem ég fór í söng- tíma var það hjá henni, þannig að við höfum þekkst lengi og eigum mjög vel saman,“ segir Aron, sem segist vera mikið jólabarn. Hann gerir ráð fyrir því að flytja ein- hver Bublé-jólalög og jafnvel eitt- hvað sem Elvis gerði frægt. Ástfanginn Aron syngur um morgunkoss Jólabarn Aron mun koma fram á jólatónleikum Heru Bjarkar. Aron Hannes söng sig inn í hjörtu landsmanna í Söngvakeppni Sjónvarpsins í vor þar sem hann lenti í 3. sæti. Í sumar sendi hann frá sér lagið Sumarnótt til þess að fylgja eftir vinsældunum eftir Söngvakeppnina og var því lagi vel tekið. Nú hefur hann gefið út sitt þriðja lag, Morgunkoss. 68 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. OKTÓBER 2017 Sigvaldi Kaldalóns svali@mbl.is Af því tilefni brugðu þeir sér í út- varpsleik á K-100 og gáfu ferð fyrir tvo til Dublin. Þetta sló hressilega í gegn á Facebook því um sjö þúsund manns tóku þátt í leiknum. Fulltrúar frá Úrvali Útsýn fóru síðan í gegnum skráningarnar og drógu út vinnings- hafann. Sá heppni heitir Stefán Þór Sigfússon og sagðist hann vera alsæll með vinninginn. „Að öllu jöfnu er ég er einn af þeim aldrei vinna neitt í happdrætti, en svo loksins þegar vinningurinn kemur þá er það líka þessi svaka flotti vinningur,“ sagði Stefán í spjalli við þá félaga í morg- unþættinum þeirra á K-100. Hann mun að sjálfsögðu bjóða eiginkonu sinni með í ferðina. Sjarmerandi borg með mikla tónlistarsögu Í írska lýðveldinu búa um 3,5 millj- ónir en í Dublin-borg býr rétt rúm- lega ein milljón manns. Áin Liffey skiptir borginni í tvo hluta, norður og suður, sem gefur henni sérstakan sjarma. Í hugum margra er Dublin kannski þekktust fyrir sínar fjöl- mörgu krár, fjör og írska tónlist. Elsta krá í Dublin er hin magnaða The Brazen Head sem var stofnuð ár- ið 1198 og ætti enginn að láta hana fram hjá sér fara. Í Dublin eru vel á annað þúsund barir og krár þar sem Guinness, Jameson og Bailey‘s njóta mestu vin- sældanna. Írar kunna sannalega að skemmta sér og myndast iðulega skemmtileg stemning á írsku krán- um. Mikið úrval góðra veitingastaða er að finna í Dublin og er hægt að velja á milli amerískra, skandinavískra, ítalskra og svo að sjálfsögðu írskra veitingastaða, þannig að allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Pöbbar til einkanota Dublin hefur upp á ótalmargt að bjóða en sá staður sem dregur að sér hvað flesta ferðamenn er Guinness- vöruhúsið. Um er að ræða gamla bruggverksmiðju Guinness sem breytt hefur verið í safn. Húsið sjálft er auðfundið enda trónir þar risastór Guinness-bjórkanna og útsýnisbar er á toppnum. Fyrir Guinness- áhugafólk er þetta allt að því skyldu- heimsókn, en safnið dregur að sér fjölda ferðamanna. Útsýnið eitt og sér er næst ástæða fyrir heimsókn- inni því frábært útsýni er frá barnum þar yfir alla borgina. Vel verður hugsað um ferðalang- ana því tveir atvinnutónlistarmenn frá Dublin munu leiða hópinn í skoð- unarferð á laugardeginum í leik, söng og sönglögum og útskýra um leið írsku tónlistarsöguna. Hver hópur fær pöbb til einkanota og því gefst nægur tími til að njóta tónlistarinnar. Ferð til Dublin með Svala og Svav- ari er kjörin leið til að kynnast og upplifa hina einstöku pöbba- stemningu í Dublin og írska þjóðlaga- tónlistarmenningu. Írska tónlistarsagan krufin með Svala og Svavari í Dublin Dublin hefur heillað þá Svala og Svavar upp úr skónum. Hinn 27. októ- ber nk. ætla þeir að skella sér í skemmtiferð þangað og er þetta þriðja ferð kappanna þangað í samvinnu við Úrval Útsýn. Alsæll Stefán Þór Sigfússon vann ferð fyrir tvo til Dublin. Dublin Borgin hefur verið vinsæll áfangastaður Íslendinga í gegnum árin, sérstaklega þegar um verslunarferðir er að ræða.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.