Morgunblaðið - 19.10.2017, Síða 70

Morgunblaðið - 19.10.2017, Síða 70
LEIKUR OKTÓBERB70 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. OKTÓBER 2017 Gufusteikingarofnar í ýmsum stærðum Gæðatæki á góðu verði Yfir 30 ára reynsla á Íslandi Allir velkomnir Progastro | Ögurhvarfi 2, Kópavogi Sími 540 3550 | progastro.is Opið alla virka daga kl. 9–18. Allt fyrir eldhúsið Heildarlausnir fyrir mötuneyti og stóreldhús Jón Agnar Ólason jonagnar@mbl.is Guðrún Hrund er menntaður hönn- uður og afréð að sækja í þá kunn- áttu þegar hún fékk hugmyndina að höfuðfötunum. „Í kjölfar veik- indanna fyrir nokkrum árum fór ég að leita mér að svona höfuðfötum því mér fannst hárkolla ekki þægi- leg og fann ekki neitt sem mér lík- aði. Síðan greinist ég aftur árið 2014 og þá fór ég að gera dálitla al- vöru úr því að búa bara eitthvað til sjálf, fyrst ég væri með menntunina í þetta og fannst þetta vanta alfarið á markaðinn. Auk þess vantaði mig að hafa eitthvað fyrir stafni því þegar manni er kippt með þessum hætti út af vinnumarkaðnum verð- ur maður að finna sér eitthvað að gera sjálfur.“ Grunnhúfa með sérstakri fyllingu Þannig var upphafið að framtaki Guðrúnar. Hún fann ekkert sem henni fannst fallegt eða nothæft og hún hófst handa við að hanna húfu með sérstakri fyllingu sem kemur í staðinn fyrir hárið, á meðan það er ekki til staðar. Svona nokkuð dett- ur væntanlega engum í hug nema þeim sem reynt hefur. „Nákvæm- lega,“ samsinnir Guðrún Hrund. „Það tók svolítinn tíma að þróa hana svo ég yrði alveg sátt en ég fékk góða hjálp hjá frænku minni, Sigrúnu Einarsdóttur, klæðskera og kjólameistara, sem aðstoðaði mig við að útfæra höfuðfatið end- anlega.“ Afraksturinn varð það sem Guð- rún kallar „grunnhúfu“ en með henni er hægt að nota alls konar hárbönd og slæður til skrauts. „Það sem grunnhúfan gerir er að hún kemur í veg fyrir þennan flata hnakka sem pirrar mann svo þegar hárið er farið og maður setur upp höfuðfat sem ekki hefur þessa fyll- ingu.“ Guðrún Hrund bendir á það í framhaldinu að nú geti konur nýtt styrk frá Sjúkratryggingum til kaups á höfuðfati og það hafi ef- laust líka sitt að segja um að hún merki sífellt fleiri sem sæki í höf- uðfötin frá Mheadwear. Námskeiðið Brautargengi hjá Nýsköpunarmiðstöð Þegar Guðrún er spurð um mögulegar ástæður fyrir því að engum datt þessi þakkláta útfærsla í hug fyrr, á höfuðfötum fyrir kon- ur sem misst hafa hárið, þá hlær hún bara við af hógværð og vill ekki gera of mikið úr eigin hönnun og hugmyndaauðgi. „Ég skil það svosem ekki alveg heldur. Ég var búin að leita lengi að einhverju svona og fann hvergi og það var náttúrlega enginn að framleiða svona á Íslandi. Úti í heimi fann ég heldur ekkert sem mér líkaði. Eins og margir kannast eflaust við fann ég reyndar eitthvað sem ég taldi vera í áttina en þegar mér barst svo sendingin í hendur leit varan satt að segja allt öðruvísi út,“ bætir hún við og hlær. Við þetta vildi Guðrún Hrund ekki una og þótti tímabært að gera eitthvað í málunum. Hún fór á námskeiðið Brautargengi hjá Ný- sköpunarmiðstöð sem hjálpaði henni mikið að eigin sögn. Spyrst vel út milli kvenna „Það var alveg frábært. Þar gat ég meðal annars sett upp við- skiptaáætlun varðandi höfuðfötin og fengið góða yfirsýn yfir verk- efnið. Í kjölfarið fór boltinn að rúlla.“ Í dag selur Guðrún höfuð- fötin sem fyrr segir undir merkinu Mheadwear í versluninni Krínólín vestur á Granda, nánar tiltekið við Grandagarð 37. Höfuðföt Guðrúnar eru öll framleidd hér á landi og framleiðsla þeirra er vinnan hennar frá degi til dags. Enn sem komið er nær hún að anna eftirspurninni nokkurn veginn en engu að síður stefnir hún á aukin umsvif og lang- ar að sækja á erlenda markaði með hönnun sína. „Ég opnaði heimasíðu í sumar og þar er hægt að skoða bæði og versla. Reynsla mín er samt sem áður sú að konur vilja frekar koma á staðinn, skoða með eigin augum, máta og kaupa svo. Ég skil það líka mjög vel.“ Hún bendir á að hún hafi ekki auglýst höfuðfötin mikið en þau hafi aftur á móti spurst vel út. „Konur koma til dæmis upp á spítala og sjá þar einhverja með höfuðfat frá mér. Þannig verður til umtal og þetta hefur undið skemmtilega upp á sig. Konur vilja eitthvað klæðilegt og smart, eftir sem áður, og margar þeirra vilja ekki sjá hárkollu, finnst hún bara óþægileg og heit, eins og mér. Það gefur þeim líka ákveðna öryggis- tilfinningu að vita að ég hef gengið í gegnum það sama og þær og hér er á ferðinni hönnun sem byggist á reynslu. Það gleður mig svo að sama skapi þegar þær sem við- skiptavinir ganga ánægðar út frá mér.“ Dömulegar eftir sem áður Guðrún segir að konur vilji al- mennt ekki þurfa að gefa neinn af- slátt af því hversu kvenlegar þær eru þótt veikindi knýi dyra. Þvert á móti sé konum það ákaflega mik- ilvægt að líta vel út og fyrir bragðið líða vel og hafa sjálfstraust. „Þegar þannig stendur á er það einmitt sérstaklega mikilvægt, því það er okkur auðvitað áfall að missa hárið, það er ekkert flóknara en það. Maður venst hins vegar hlutunum merkilega vel og það er til margt verra en að missa hárið. En það hjálpar engu að síður mikið til að geta klætt sig upp og haft sig til með þeim hætti að manni líði vel.“ Hönnun sem byggist á reynslu Guðrún Hrund Sigurðardóttir hefur greinst þrisvar sinnum með krabbamein, með tilheyrandi með- ferðum og hármissi. Sú reynsla varð til þess að hún stofnaði eigið fyrirtæki, mheadwear.com, og byrjaði að hanna og framleiða höfuðföt fyrir konur sem misst hafa hárið, t.d. í kjölfar veikinda. Höfuðlausnir Hér sést úrval af höfuðfötunum sem Guðrún Hrund hannar undir merkinu Mheadwear. Takið eftir fyllingunni sem er til mikillar prýði. Morgunblaðið/Hanna Hönnun „Konur vilja eitthvað klæðilegt og smart, eftir sem áður, og margar þeirra vilja ekki sjá hárkollu, finnst hún bara óþægileg og heit, eins og mér. Það gefur þeim líka ákveðna öryggistilfinningu að vita að ég hef gengið í gegnum það sama og þær,“ segir Guðrún Hrund Sigurðardóttir, eigandi Mheadwear.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.