Morgunblaðið - 14.12.2017, Blaðsíða 1
F I M M T U D A G U R 1 4. D E S E M B E R 2 0 1 7
Stofnað 1913 294. tölublað 105. árgangur
BÚA Í HAGINN
FYRIR FJÓRÐU
IÐNBYLTINGUNA
GREINILEGAR
BREYTINGAR
AFTUR TIL
MYRKRA
MIÐALDA
ÖRÆFAJÖKULL 32 JULIE DELPY 100VIÐSKIPTAMOGGINN
Landsvirkjun hefur gefið út nýja
verðskrá á rafmagni í heildsölu. Tveir
liðir í henni hækka um ríflega 50%
milli ára yfir sumarmánuðina frá júní
og út ágúst. Á móti lækkar fyrirtækið
verð í október og nóvember um tæp
11%. Aðra mánuði nemur hækkunin
um 2% og virðist ætlað að halda í við
verðlagsþróun. Þá vekur athygli, þeg-
ar rýnt er í verðskrána að svokallaður
aflliður hennar hækkar alla mánuði
ársins um 13%. Sérfræðingur á orku-
markaði segir þá hækkun koma sér-
lega illa niður á heimilum. Breytinga
muni sjá stað í orkureikningum heim-
ila og fyrirtækja á komandi ári.
»ViðskiptaMogginn
Hækka
verðskrá
rafmagns
Lúsía, prýdd kórónu með kertum, fór fremst í
kór hvítklæddra meyja, jólasveina og pipar-
kökukarla sem báru birtu inn í Seltjarnar-
neskirkju í gærkvöldi. Hefð er fyrir því að 13.
desember sé í kirkjunni Lúsíuhátíð á vegum
Sænska félagsins á Íslandi, en slíkar eru haldnar
í Svíþjóð og víðar á Norðurlöndum. Heilög Lúsía
á hins vegar uppruna sinn á hinni ítölsku Sikiley.
Þannig blandast menning og siðir víða frá saman
við íslenskt þjóðlíf og jólahald því enginn er ey-
land og tímarnir breytast og mennirnir með,
eins og máltækið segir.
Sænsk menning á Seltjarnarnesi þegar ellefu dagar eru til jóla
Morgunblaðið/Hari
Hvítklæddar meyjar á hátíð heilagrar Lúsíu
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Fyrirtækið Rafnar, sem smíðar báta
á grundvelli uppfinningar Össurar
Kristinssonar stoðtækjasmiðs, vinnur
nú að samstarfssamningum við
rótgróin fyrirtæki í Bandaríkjunum
og Kanada. Stefna fyrirtækin á smíði
báta úr áli, sem byggjast á fyrr-
nefndri hugmynd. Með smíðinni er
ætlunin að taka þátt í stórum útboð-
um sem hermála- og löggæsluyfirvöld
ásamt strandgæsluliði í löndunum
standa fyrir og leitt gætu til samninga
um smíði tuga eða hundraða báta.
Össur segir að reynslan af hinu
byltingarkennda skrokklagi, sem
fyrirtækið byggir grundvöll sinn á,
muni breyta siglingaheiminum til
frambúðar. Eiginleikar þess hafi yfir-
burði yfir aðra hönnun á markaðnum
bæði hvað orkunýtingu, hraða og ör-
yggi varðar. Í viðtali sem hann veitti
ViðskiptaMogganum og birt er í
blaðinu í dag lýsir hann því hvað geri
báta fyrirtækisins einstaka í sinni röð.
Hann hefur slíka trú á fyrirtækinu
og framleiðslu þess að hann hefur
persónulega lagt 5 milljarða króna til
uppbyggingarinnar. Hvorki fyrr né
síðar hefur einstaklingur hér á landi
lagt fram viðlíka fjárhæð til nýsköp-
unar.
Milljarðar lagðir í Rafnar
Össur Kristinsson segir að fyrirtækið muni hrinda af stað byltingu í siglingum
Hefur lagt 5 milljarða í fyrirtækið frá stofnun þess Stefna á Ameríkumarkað
Sveigja siglingalögmál
» Bátar fyrirtækisins snúa á
svokallaða skrokkhraðareglu.
» Bátur sem alla jafna ætti að
geta siglt á 6 mílna hraða getur
náð margföldum þeim hraða.
» Hönnunin er skalanleg í
stærð og hentar stórskipum.
MViðskiptaMogginn
Dæmi eru um ranga, óskýra eða
villandi hugtakanotkun víða í ís-
lenskri löggjöf. Þetta er sérstaklega
áberandi í löggjöf sem tengist haf-
inu. Ekki er útilokað að þetta geti
haft áhrif á úrlausn sakamála fyrir
dómstólum segja tveir lagakennarar
við Háskólann í Reykjavík, Bjarni
Már Magnússon og Arnar Þór Jóns-
son, í nýrri grein í Tímariti Lögréttu.
Þeir rekja fjölda dæma um óskýr-
leika ýmissa lagaákvæða og ræða
hugsanlegar afleiðingar þeirra. »38
Óskýr og villandi
hugtakanotkun
Þvörusleikir kemur í kvöld
10
jolamjolk.is
dagar
til jóla
MJÚKA DEILDIN ÍSLENSK HÖNNUN SJÚKRAÞJÁLFARI AÐSTOÐAR
SÆNGUR-
FATNAÐUR
SÆNGUROG
KODDAR
HEILSURÚM
ALLARSTÆRÐIR
FUSSENEGGER
Kristín Gísladóttir
sjúkraþjálfari aðstoðar
við val á rúmdýnum.
Í DAG 16-18 Síðumúla 30 - Reykjavík | Sími 533 3500Hofsbót 4 - Akureyri | Sími 462 3504