Morgunblaðið - 14.12.2017, Blaðsíða 121
Morgunblaðið/Eggert
Listapar Erna Ómarsdóttir og Valdimar
Jóhannsson taka þátt í Norður og niður.
Nokkrum atriðum hefur verið bætt
við á dagskrá listahátíðar hljóm-
sveitarinnar Sigur Rósar, Norður og
niður, sem haldin verður í Hörpu
milli jóla og nýárs. Íslenski dans-
flokkurinn mun flytja verkið The
Great Gathering eftir Ásrúnu Magn-
úsdóttur og Alexander Roberts í
samvinnu við dansara Íslenska dans-
flokksins og við tónlist listamanna
sem koma fram á Norður og niður.
Þá sýnir Íd einnig verkið Myrkrið
faðmar eftir Ernu Ómarsdóttur og
Valdimar Jóhannsson í samvinnu við
dansara flokksins sem munu dansa
við nýja tónlist Sigur Rósar.
Oceanus nefnist svo fjögurra rása
hljóðverk eftir Chris Watson sem
skapað er út frá upptökum úr
Kyrrahafinu og verður flutt í Hörpu
og einnig verður í húsinu Helium
Karaoke, óvenjulegur „skemmti-
staður“ rekinn af listamanninum
Kolbeini Huga. „Þar má finna ka-
raoke-vél og hljóðkerfi ásamt fjölda
helíumblaðra sem þátttakendur
geta nýtt í söngnum,“ segir í til-
kynningu.
Stiginn / Stigin : (The Stair / The
Points) er verk sem 80 hljóðfæra-
leikarar úr Skólahljómsveit Austur-
bæjar og Skólahljómsveit Kópavogs
koma saman til að flytja og er því
lýst sem stóru og nýju gagnvirku
tónverki eftir Inga Garðar Erlends-
son.
Rex Pistols nefnist svo nýtt verk-
efni fyrrverandi forsprakka Anti-
mony, Rex Beckett, „mínímalískt
synthapopp í bland við gotneskan
trega, tónlist hlaðin girnd og ótta,
leiða og úrkynjun, varnarleysi og
klæmni“, eins og því er lýst.
Dagskrá Norður og niður fullmótuð
MENNING 121
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. DESEMBER 2017
Sýning á verkum bandaríska lista-
mannsins Roberts Irwin verður
opnuð í dag kl. 17 í galleríinu i8 við
Tryggvagötu og er það jafnframt
fyrsta sýning hans í galleríinu. Irw-
in er bandarískur, fæddur árið 1928
á Long Beach í Kaliforníu og verð-
ur því níræður á næsta ári. „Hann
er listamaður, kenningasmiður og
kennari sem hefur um sextíu ára
skeið gegnt mikilvægu hlutverki í
þróun ákveðins kima í bandarískri
nútímalist,“ segir í tilkynningu frá
galleríinu. „Hann þróar sína eigin
smækkun samkvæmt kenningum
Edmunds Husserl og urðu verk
hans undanfari listar handan
ramma og hlutar. Í því samhengi
má nefna innsetningar, list byggða
á rými og birtu, list í almennings-
rými og list ætlaða ákveðnum rým-
um, og svo þá list sem Robert Irwin
nefnir skilyrta list, þ.e. list sem
dregur athyglina að sambandi hinn-
ar skynjandi veru gagnvart eigin
vitsmunum. Hann var frumkvöðull
Ljós- og rýmishreyfingarinnar í
Suður-Kaliforníu og dró einkum at-
hygli að umhverfisaðstæðum og
með því að auka skilning áhorfand-
ans á samhengi verkanna gerði
hann þau nær snertanleg,“ segir
þar.
Verk útfærð í flúorljósum
Irwin hefur hlotið ýmis verðlaun
og heiðursnafnbætur á ferli sínum
og er meðlimur í bandarísku lista-
og bókmenntaakademíunni.
Á sýninguna í i8 valdi hann nokk-
ur verk sem hann útfærir frekar í
flúorljósum, efnivið sem hann byrj-
aði að vinna með snemma á áttunda
áratugnum og hefur öðru fremur
einkennt verk hans síðasta áratug,
eins og segir í tilkynningu. Verkin á
sýningunni eru valin sérstaklega
með i8 í huga og í ljósaverkunum er
kveikt á sumum perunum en slökkt
á öðrum og má líta á þau sem ab-
strakt skúlptúra sem byggjast á
næmi áhorfandans fyrir birtu,
skuggum og endurvarpi.
Í tilkynningu i8 segir að Irwin sé
stór stærð í bandarísku listalífi og
hafi haldið ótalmargar einkasýn-
ingar á undanförnum sex áratugum.
Frumkvöðull Ljós- og
rýmishreyfingarinnar
Robert Irwin
sýnir verk sín í
fyrsta sinn í i8
Ljósmynd/i8
Flúorljós Eitt af verkum Roberts
Irwin á sýningu hans í i8 galleríi.
25 ára afmælisveisla Sónar-
tónlistarhátíðarinnar hefst með há-
tíðahöldum í Reykjavík 16. og 17.
mars á næsta ári og eru Denis
Sulta, Kode9, Lafawndah og Hildur
Guðnadóttir meðal þeirra sem bæst
hafa við dagskrána í Hörpu og
Resident Advisor verður með sér-
staka dagskrá í bílakjallaranum.
Hátíðin verður haldin á fjórum
sviðum í Hörpu auk bílakjallarans
sem verður breytt í næturklúbb.
Yfir 50 listamenn og hljómsveitir
koma fram á hátíðinni í heildina.
Resident Advisor er einn stærsti
fjölmiðill heims þegar kemur að
umfjöllun um danstónlist, eins og
segir í tilkynningu, og hafa fulltrú-
ar hans áður mætt á og fjallað um
hátíðina en þó hafa Sónar Reykja-
vík og Resident Advisor ekki starf-
að saman áður með þeim hætti sem
verður í Hörpu í mars.
Samstarf Sónar Reykjavík og
Red Bull Music Academy mun einn-
ig halda áfram. Sónar hófst sem lítil
tónlistarhátíð í Barcelona árið 1994
og núna sækja um 115.000 manns
hátíðina í júní ár hvert. Sónar-
hátíðir eru haldnar í fjölda borga.
23 listamenn og hljómsveitir bætast við
Í Hörpu Glowie á Sónar fyrr á þessu ári.
Bandaríska leikkonan Jennifer Law-
rence, sú hæstlaunaða í Hollywood,
mun fara með hlutverk Agnesar
Magnúsdóttur í kvikmyndinni Bur-
ial Rites sem byggð er á samnefndri
bók ástralska rithöfundarins
Hönnuh Kent frá árinu 2013 sem
fjallar um líf Agnesar Magnúsdóttur
sem tekin var af lífi árið 1830 fyrir
morðið á Natani Ketilssyni. Var það
síðasta aftakan á Íslandi, eins og
frægt er. Vefur kvikmyndatímarits-
ins Variety greindi fyrstur frá því að
Lawrence hefði tekið að sér hlut-
verkið og að leikstjóri myndarinnar
verði Luca Guadagnino en síðasta
kvikmynd hans, Call Me by Your
Name, hefur hlotið lofsamlega dóma
og þykir líkleg til afreka á Óskars-
verðlaununum á næsta ári.
Í viðtali við Morgunblaðið í janúar
árið 2013 sagði Kent að hún hefði
dvalið í eitt ár á Íslandi sem skipti-
nemi, þá 17 ára, og að hún hefði
komið hingað síðan á tveggja til
þriggja ára fresti. Hún hefði heyrt
söguna af síðustu aftökunni á Íslandi
þegar hún dvaldi hér í fyrsta sinn og
fengið mikinn áhuga á Agnesi.
„Mér fannst athyglisvert að
Agnes var alltaf sett í bakgrunninn
og afgreidd sem vonda konan en
Natan og Friðrik voru í forgrunni.
Enginn virtist hafa áhuga á sögu
Agnesar. Mig langaði hins vegar til
að vita meira um líf hennar,“ sagði
Kent og að sig hefði langað til að
skrifa sögu Agnesar og gera hana
mannlega, mótsagnakennda og
flókna eins og fólk sé almennt og
reyna líka að útskýra af hverju
greind kona eins og hún hefði verið
viðriðin morðmál sem var klaufalegt
og illa ígrundað.
AFP
Eftirsótt Jennifer Lawrence.
Lawrence fer með
hlutverk Agnesar
Sýnd kl. 10.15
Sýnd kl. 8
Miðasala og nánari upplýsingar
5%
Sýnd kl. 4
NÝ VIÐMIÐ
Í BÍÓUPPLIFUN Á ÍSLANDI
LAUGARÁSBÍÓ KYNNIR
DOLBY ATMOS
LUXURY · LASER
Sýnd kl. 10.20 í 3D
Sýnd kl. 3, 5, 9 í 2D
Sýnd kl. 8
Sýnd kl. 6
Eyesland . Grandagarði 13 og Glæsibæ, 5. hæð . sími 510 0110 . www.eyesland.is
Frábært
verð á glerjum
Einfókus gler
Verð frá kr. 16.900,-
Margskipt gler
Verð frá kr. 41.900,-
Gleraugnaverslunin Eyesland býður mikið úrval af
gæðagleraugum fyrir krakka á góðu verði
– og þú færð frábæra þjónustu.
Verið velkomin!
Rock Star umgjarðir
kr. 11.900,-
ICQC 2018-20