Morgunblaðið - 14.12.2017, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. DESEMBER 2017
og lífið
Lindin
www.lindin.is
Lindin kristilegt útvarp • Krókhálsi 4 • 110 Reykjavík • Sími 567 1818
Sannleikurinn
Þjóðmálaþáttur á Lindinni
alla virka daga frá kl. 17:00 til 18:00
Hallur Hallsson fréttamaður rýnir
í samfélagsumræðuna og skoðar
það sem efst er á baugi, í sögulegu
samhengi og boðskap Biblíunnar.
FM 102,9
Guðmundur Magnússon
gudmundur@mbl.is
Framkvæmdir við nýtt hús Hjálp-
ræðishersins við Suðurlandsbraut
72-74 í Reykjavík hefjast í byrjun
næsta árs. Byggingarleyfi borg-
aryfirvalda var veitt í byrjun
þessa mánaðar.
Nýja byggingin, sem er nokkuð
óvenjuleg í útliti eins og myndin
sýnir, verður um 1.500 fermetrar
að stærð og að hluta til á tveimur
hæðum. Hún mun rúma mjög fjöl-
breytta starfsemi hersins, en þar
verður þó ekki gistirými eins og í
Herkastalnum í miðbænum, hinu
gamla húsnæði Hjálpræðishersins
sem selt var haustið 2016.
Í nýja húsnæðinu verður að-
alskrifstofa hersins fyrir Ísland
og Færeyjar, auk skrifstofu
Hjálpræðishersins í Reykjavík og
Hertex sem er fata- og nytja-
markaður hersins. Innandyra
verður einnig kirkjurými sem
hægt verður að stækka inn í fjöl-
nota sal sem liggur samsíða rým-
inu. Í húsinu verða tvö verkstæði,
eitt fyrir trésmíðar og annað fyrir
léttari handavinnu. Þar verður
hægt að vinna að ýmsum hugð-
arefnum fyrir fjölbreyttan hóp
fólks. Í húsnæðinu verður einnig
kaffihús auk fata- og nytjaversl-
unarinnar Hertex sem verður á
tveimur hæðum. Loks verður í
húsinu velferðarálma þar sem
finna má setustofu og viðtalsstofu.
Það eru arkitektarnir Sigríður
Magnúsdóttir og Hans-Olav And-
ersen hjá Teiknistofunni Tröð
sem hönnuðu nýbygginguna.
Hjördís Kristinsdóttir hjá Hjálp-
ræðishernum vildi minna á að
byrjað væri að safna í hinn árlega
jólapott Hjálpræðishersins og
myndu öll framlög renna til vel-
ferðarstarfs.
Til stendur að breyta Herkast-
alnum í miðbænum í hótel, en
ekki liggur fyrir hvenær fram-
kvæmdir við það hefjast. Húsið er
um 1.400 fermetrar að stærð á
þremur hæðum og friðað aldurs
síns vegna.
Hjálpræðisherinn fær nýtt hús
Framkvæmdir við bygginguna hefjast eftir áramót Skrifstofur, samkomu-
salur með kirkjurými og vinnustofur Fata- og nytjaverslun einnig í húsinu
Teikning/Teiknistofan Tröð
Hjálpræðisherinn Nýbyggingin við Suðurlandsbraut 72-74 er um 1.500 fermetrar að stærð. Hún mun setja svip á umhverfi sitt eins og gamli Herkastalinn.
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Með hertu eftirliti Embætti land-
læknis hefur ástandið hjá fólki sem
glímir við fíknivanda á morfín-
skyldum lyfjum versnað. Með breyt-
ingum á lyfjalögum 2012 og nýjum
lyfjagagnagrunni varð aðgengi að
morfínskyldum lyfjum mun takmark-
aðra, minna er ávísað af þessum lyfj-
um en áður og því minna af þeim fer í
sölu á svartan markað. Morfínskyld
lyf hafa því hækk-
að margfalt í verði
sem leiðir til þess
að innbrot og
þjófnaðir hafa
aukist. „Skjól-
stæðingar Frú
Ragnheiðar tala
mikið um hvað
efnin séu orðin
dýr og erfitt sé að
útvega sér pening fyrir þeim. Þau
þurfi því að stela meira og hefur kyn-
lífsvinna hjá hópnum aukist mikið.
Hert eftirlit með lyfjaávísunum hefur
því aukið allskonar annan vanda í
staðinn og eru einstaklingarnir mun
verr staddir en þau voru áður,“ segir
Íris Gunnarsdóttir lyfjafræðingur og
sjálfboðaliði í Frú Ragnheiði, ska-
ðaminnkunarverkefni Rauða kross-
ins í Reykjavík. Hún gerir þetta að
umfjöllunarefni í grein í nýjasta tölu-
blaði Tímarits um lyfjafræði.
Erfiðara að komast í meðferð
Íris segir erfiðara aðgengi að efn-
unum útiloki ekki vandann, fíknin sé
enn til staðar. „Þau eru mörg sem
langar til að komast í meðferð en bið-
listar eru langir. Það er búið að loka á
aðgengið að lyfjunum en ekki opna á
meira aðgengi í meðferð. Það hefði
mátt hugsa málið aðeins lengra og
láta þetta haldast í hendur.“
Íris bendir á að þau fari einnig að
nota önnur ólögleg efni sem séu jafn-
vel hættulegri en læknalyfin og að
auki er meira af efnum smyglað inn.
Íris tekur fram í greininni að hún
sé ekki að mæla með því að allir fái
uppáskrifuð sterk verkjalyf svo að
þau komist meira í umferð fyrir þá
sem eru háðir þeim. „En skaðinn sem
hlýst af notkun vímuefna er að öllum
líkindum að aukast með minnkuðu
framboði og þar af leiðandi leitar fólk
á önnur mið, svo sem í ólögleg vímu-
efni sem geta verið mun hættulegri.“
Hún bendir á að skaðaminnkandi
viðhaldmeðferð og sérútbúið neyslu-
rými gæti verið lausn á þessum
vanda. Einstaklingar sem eru háðir
lyfjum gætu verið með einhvers kon-
ar lyfseðla fyrir vissu magni af lyfjum
á dag og komið í neyslurýmið og
fengið þar sinn skammt afhentan af
heilbrigðisstarfsmanni. „Þannig
þyrftu þeir ekki að fjármagna efnin á
skaðlegan hátt og leita eftir efnum á
götunni, heldur jafnvel borgað sann-
gjarnt verð fyrir skammtinn, neytt
hans á öruggum stað og mögulega
byrjað í niðurtröppun á lyfjunum,“
segir Íris. „Það eru fleiri leiðir í boði
en bara sú að herða aðgengi að lyfjum
og vímuefnum sem geta verið misnot-
uð þar sem svarti markaðurinn mun
alltaf finna leiðir til að fylla upp í gatið
og þær lausnir eru oft ekki betri fyrir
samfélagið. Til að draga úr misnotk-
un á lyfjum og vímuefnum þurfa allir
í heilbrigðis- og velferðarkerfinu að
leggjast á eitt og auka úrræði fyrir
einstaklinga sem nota efnin,“ skrifar
Íris í grein sinni.
Segir erfiðara aðgengi
ekki leysa vandann
Læknadóp hefur hækkað margfalt í verði Eykur glæpi
Morgunblaðið/Ófeigur
Frú Ragnheiður Skaðaminnkunarverkefnið býður m.a. upp á hreinar nálar.
Íris Gunnarsdóttir
Neyslurými fyrir fólk sem
sprautar fíkniefnum í æð eru
komin upp í mörgum borgum
Evrópu og víðar. Þar á meðal
á stöðum sem eru á stærð
við höfuðborgarsvæðið. Engu
minni þörf er hér á landi fyrir
neyslurými, segir Þórir Guð-
mundsson, forstöðumaður
Rauða krossins í Reykjavík.
Lengi hefur verið rætt um
að setja upp neyslurými fyrir
fólk í fíkniefnaneyslu hér en
það er ekki komið lengra en á
umræðustig. „Við teljum að
það sé mikil þörf fyrir
neyslurými en hið opinbera
þarf að standa fyrir því. Við
höfum átt samtal og flestir
sem við tölum við eru já-
kvæðir og skilja þörfina á
þessu en það hefur ekkert
farið lengra. Við teljum tví-
mælalaust þörf á að fólk í
neyslu geti verið í öruggu
umhverfi, líka til þess að
fækka dauðsföllum vegna of-
skömmtunar,“ segir Þórir.
Mikil þörf
NEYSLURÝMI
Ríkið var í Héraðsdómi Reykjavíkur í
gær sýknað af kæru Aldísar Hilmars-
dóttur, áður yfirmanns fíkniefna-
deildar lögreglunnar á höfuðborgar-
svæðinu. Fór hún fram á ógildingu á
tilfærslu í starfi og vildi 2,3 milljóna
króna bætur vegna eineltis sem hún
taldi sig hafa orðið fyrir af hálfu Sig-
ríðar Bjarkar Guðjónsdóttir lögreglu-
stjóra, sem færði Aldísi til í starfi. Það
taldi Aldís illa dulbúna brottvikningu.
Sigríður hefur sagt að deildin hafi
verið óstarfhæf undir stjórn Aldísar,
sem hafnar því. Sigríður sagði fyrir
dómi að fjöldi kvartana hefði komið
frá undirmönnum Aldísar um
frammistöðu hennar sem yfirmanns.
Hefðu nokkrir lögreglufulltrúar hót-
að henni vantrausti en Sigríður hlíft
henni við slíku. Þá sagði hún Aldísi
hafa afneitað ástandinu í deildinni eft-
ir að ásakanir um spillingarmál komu
upp.
Bæði Friðrik Smári Björgvinsson
yfirlögregluþjónn og Jón H.B.
Snorrason, áður aðstoðarlögreglu-
stjóri, sögðu við aðalmeðferð að Aldís
hefði verið yfirburðastarfsmaður.
Aðrir lögreglufulltrúar sem gáfu
skýrslu fyrir dómi sögðu hana hafa
skort hæfni í samskiptum.
Ríkið sýkn-
að í máli
Aldísar
Brottvikning stend-
ur og engar bætur
Ennþá vantar starfsfólk á um þriðj-
ung leikskóla í Reykjavík. Þetta
kemur fram í nýrri könnun sem gerð
var meðal stjórnenda í skóla- og frí-
stundastarfi borgarinnar í byrjun
mánaðarins. Alls vantar ríflega þrjá-
tíu starfsmenn á 22 leikskóla í borg-
inni en 40 eru fullmannaðir. Staðan
er betri en í síðasta mánuði.
Í byrjun mánaðarins voru enn 12
leikskólar sem höfðu opið í skemmri
tíma en vant er. Síðan í haust hafa 23
leikskólar af 62 þurft að grípa til ein-
hverra skerðinga á þjónustu vegna
skorts á starfsfólki.
Staðan er betri í grunnskólum og
frístundastarfi Reykjavíkurborgar
að því er fram kemur á heimasíðu
borgarinnar. Nú vantar 4 kennara, 6
stuðningsfulltrúa, 9 skólaliða og 2
mötuneytisstarfsmenn í 34 grunn-
skóla borgarinnar. Hins vegar vant-
ar 70 starfsmenn í hálf störf á frí-
stundaheimili og í sértækar
félagsmiðstöðvar. 44 börn bíða enn
eftir því að komast inn á frístunda-
heimili í Reykjavík. hdm@mbl.is
Ríflega 30 starfs-
menn vantar enn
Morgunblaðið/Ásdís
Á leikskóla Ennþá vantar starfs-
fólk á 22 leikskóla í Reykjavík.