Morgunblaðið - 14.12.2017, Blaðsíða 38
38 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. DESEMBER 2017
Friðriksmót
Landsbankans –
Íslandsmótið í
hraðskák – fer
fram í útibúi
Landsbankans
við Austurstræti
11 laugardaginn
16. desember nk.
Mótið hefst kl.
13 og stendur til
kl. 16:30-17:00.
Gera má ráð fyrir að flestir
sterkustu skákmenn landsins taki
þátt í mótinu og efsti keppandinn
fær titilinn Íslandsmeistari í hrað-
skák. Tímamörkin eru 3+2 og
tefldar eru þrettán umferðir.
Meðal skráðra keppenda eru
stórmeistararnir Hjörvar Steinn
Grétarsson, sem er í 27. sæti á al-
þjóðlega hraðskákstigalistanum,
Jóhann Hjartarson, sem hefur titil
að verja, og Þröstur Þórhallsson,
hraðskákmeistari Íslands árið
2015. Alls eru 100 skákmenn
skráðir til leiks.
Þetta er fjórtánda árið í röð
sem Landsbankinn og Skák-
samband Íslands standa fyrir Frið-
riksmótinu í skák, en mótið er
haldið til heiðurs Friðriki Ólafs-
syni, fyrsta stórmeistara Íslend-
inga.
Mótið er reiknað til alþjóðlegra
hraðskákstiga.
Sterkir skákmenn
taka þátt í Friðriks-
mótinu í hraðskák
Friðrik Ólafsson
Krossgátubók ársins 2018 er komin
í verslanir en bókin kemur út ár
hvert fyrir jólin. Þetta er 35. ár-
gangur bókarinnar.
Krossgátubókin er 68 síður og
eru gáturnar bæði fyrir nýliða í
fræðunum og þá sem lengra eru
komnir.
Lausnir annarrar hverrar gátu
eru aftast í bókinni. Forsíðumyndin
er að venju eftir Brian Pilkington
teiknara. Hún er af Eddu Björg-
vinsdóttur leikkonu.
Krossgátubók ársins 2018 fæst í
helstu blaðsölustöðum landsins. Út-
gefandi er sem fyrr Ó.P.-útgáfan
ehf., Dalbraut 20, Reykjavík, en að-
aleigandi hennar er Ólafur Pálsson.
Prenttækni ehf. prentaði bókina.
Krossgátubók árs-
ins 2018 komin út
BAKSVIÐ
Guðmundur Magnússon
gudmundur@mbl.is
Víða í íslenskri löggjöf er að finna
ranga, óskýra eða villandi hugtaka-
notkun þegar fjallað er um land-
fræðilegt gildissvið viðkomandi laga.
Þetta er einkum áberandi í löggjöf
sem tengist hafinu. Alvarlegustu mis-
tökin snúa að notkun hugtaksins
efnahagslögsaga, en efnahagslögsaga
er skilgreind sem svæði utan land-
helgi. Ekki er útilokað að þetta gæti
haft áhrif á úrlausn sakamála fyrir
dómstólum, yrði látið reyna á þessi
ákvæði. Ágallarnir gætu leitt til þess
að verknaðir, sem annars má telja lík-
legt að ætlunin hafi verið að væru
refsiverðir, yrðu taldir refsilausir. Þá
er ekki er unnt að útiloka að óljós
hugtakanotkun hafi átt þátt í því að
sakborningar hafi hlotið refsidóma án
þess að öll skilyrði sakfellingar hafi
verið fyrir hendi.
Mistök við lagasetningu
Þessu er haldið fram í grein eftir
tvo lagakennara við Háskólann í
Reykjavík í Tímariti Lögréttu, sem
er samstarfsverkefni lagadeildar HR
og laganema og kemur út á næstu
dögum. Höfundarnir, dr. Bjarni Már
Magnússon dósent og Arnar Þór
Jónsson lektor, segja að markmið
greinarinnar sé að benda á mistök
sem gerð hafi verið við samningu
lagaákvæða er snerta landfræðilegt
gilidissvið löggjafar sem varðar hafið
og skyldra ákvæða er snerta íslenskt
yfirráðasvæði og lögsögu. Þeir leggja
til að hafist verði handa um að breyta
viðkomandi ákvæðum og kanna hvort
fleiri sambærileg finnist í íslenskum
lögum og reglugerðum. Þá segja þeir
nauðsynlegt að við lagasetningu sé
kerfisbundið gengið úr skugga um að
gildissvið viðkomandi löggjafar sé í
lagi. Ráðast þurfi í heildarendur-
skoðun á lögum frá 1979 um land-
helgi, aðlægt belti, efnahagslögsögu
og landgrunn. Loks þurfi að efla
þekkingu á grundvallaratriðum
þjóðaréttar meðal íslenskra lögfræð-
inga, t.d. með því að setja á laggirnar
rannsóknarstofnun á sviði þjóðarétt-
ar sem hefði m.a. ráðgjafarhlutverk
gagnvart stjórnvöldum.
Eitt fjölmargra dæma sem höfund-
arnir nefna um óskýra hugtaka-
notkun er úr lögum frá 1994 um
vernd, friðun og veiðar á villtum fugl-
um og villtum spendýrum (villi-
dýralögin). Sagt er að lögin nái til
efnahagslögsögunnar þótt augljóst sé
að þau eigi fyrst og fremst að gilda á
íslensku landsvæði. Af einhverjum
ástæðum sé ekki tekið fram skýrlega
að þau gildi á landi, innsævi, land- og
lofthelgi sem og efnahagslögsögunni.
Hugtakið efnahagslögsaga sé þar að
auki notað öðruvísi en í hinum svo-
nefndu lögsögulögum, þ.e. lögum frá
1979 um landhelgi, aðlægt belti, efna-
hagsslögu og landgrunn. Höfund-
arnir segja að nokkur fjöldi dóma hafi
fallið í refsimálum á grundvelli villi-
dýralaganna en ekki verði séð að gild-
issviðsákvæðið hafi verið nefnt í mál-
flutningi við þau tækifæri. Dómarar
hefðu þó átt að eiga frumkvæði að því
að hyggja að þessu atriði. Hugsanlegt
sé að dómþolar í málum sem varða
villidýralögin eigi rétt á endur-
upptöku mála sinna af þessum sök-
um.
Hugtök misskilin
Annað dæmi sem höfundarnir taka
er úr lögum um vaktstöð siglinga frá
2003 sem snertir m.a. tilkynningar-
skyldu skipa. Þar sé hugtakið efna-
hagslögsaga notað en ekki minnst á
innsævi og landhelgi eins og eðlilegt
væri. Höfundarnir segja að svo virð-
ist sem í þessum lögum birtist grund-
vallarmisskilningur um efnahags-
lögsöguna.
Þá er nefnt að þegar lögum um
fjárfestingar erlendra aðila í íslensk-
um atvinnurekstri var breytt 1996
hafi hugtakið efnahagslögsaga komið
í stað fiskveiðilandhelgi sem áður var
í lögunum. „Samkvæmt orðanna
hljóðan opnaði breytingin á fiskveiðar
erlendra aðila í íslenskri landhelgi og
á innsævinu,“ segja þeir, en benda á
að af lestri greinargerðarinnar með
lögunum komi ekkert fram um þá
fyrirætlan. „Hér virðist slys hafa átt
sér stað við lagasetningu,“ segja þeir
og benda á að ósamræmi sé á milli
þessa ákvæðis og annarra íslenskra
laga. Það sé óæskilegt út frá megin-
reglum réttarríkisins um stöðugleika
laga, skýrleika og innbyrðis sam-
ræmi.
Áhrif á refsiábyrgð
Í greininni kemur ennfremur fram
að í lögum frá 1996 um nytjastofna
sjávar, sem fjalla m.a. um brottkast
og vigtun afla, sé notast við hugtakið
efnahagslögsaga þar sem heppilegra
hefði verið að tala um fiskveiði-
lögsögu (eða fiskveiðilandhelgi) sem
einnig tekur til innsævisins og land-
helginnar. Höfundarnir segja að í
dómum á grundvelli laganna sé ekki
vikið að þessu atriði, en út frá hags-
munum ákærðu í slíkum málum hefði
ekki verið óréttmætt að kalla eftir
slíkri umfjöllun, þar sem refsiábyrgð
kunni að ráðast af því hvort stofn
haldi sig að hluta eða öllu leyti í efna-
hagslögsögunni. Ekki sé að sjá að
slíkt sakarmat hafi farið fram.
Meðal annara laga þar sem höf-
undarnir telja hugtakið efnahags-
lögsaga notað á rangan hátt eru lög
um hollustuhætti og mengunarvarnir
frá 1998 og lög um loftslagsmál frá
2012. Þá benda þeir Bjarni Már og
Arnar Þór á að í íslenskri þýðingu 1.
greinar Mannréttindasáttmála Evr-
ópu sé að finna þýðingarvillu. Þar sé
talað um yfirráðasvæði þar sem rétt-
ara sé að tala um lögsögu í samræmi
við ensku og frönsku útgáfu sáttmál-
ans. Þessi mistök ættu þó ekki að
þurfa að hafa afdrifaríkar afleiðingar,
þar sem íslenskir dómstólar skýri ís-
lenskan rétt til samræmis við alþjóð-
legar skuldbindingar sé þess kostur.
Mistökin séu fyrst og fremst „klunna-
leg í jafnmikilvægri löggjöf,“ segja
höfundarnir.
Gæti haft áhrif á refsiábyrgð
Tveir lagakennarar við HR segja hugtakanotkun í íslenskri löggjöf víða ranga, villandi og óskýra
Áberandi þegar fjallað er um landfræðilegt gildissvið Vekur spurningar um endurupptöku mála
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Lög Víða eru brotalamir í hugtakanotkun í lögum. Þetta er áberandi þar sem fjallað er um landfræðilegt gildissvið.
Arnar Þór
Jónsson
Bjarni Már
Magnússon
STUTT
Skipulagsstofnun hefur ákveðið
að allt að 5.000 tonna fiskeldi
Tálkna ehf. við Þorlákshöfn skuli
háð mati á umhverfisáhrifum.
Hægt er að kæra ákvörðunina til
úrskurðarnefndar.
Fram kemur í ákvörðun Skipu-
lagsstofnunar að Tálkni fyrirhugi
að reisa fiskeldisstöð á lóð suð-
vestan þéttbýlisins í Þorlákshöfn
á milli starfandi seiða- og fiskeld-
isstöðva. Svæðið sé að stærstum
hluta í gamalli fjögurra til sjö
metra djúpri námu, sem sé lítt
frágengin en að nokkru sjálfgró-
in. Stöðin sé hönnuð til að ala
laxfisk (bleikju, lax og sjóbirting).
Skipulagsstofnun segist telja að
jafnmikið eldi og fyrirhugað sé
kalli á nánara mat og greiningu
þegar horft sé til staðsetningar
og álagsþols náttúrunnar, einkum
strandsvæða, m.a. vegna óvissu
um magn næringarefna og úr-
gangs sem muni koma frá starf-
seminni.
Fiskeldi í Þorlákshöfn þarf að fara í umhverfismat
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Jólagjöf gr i l lmeistarans
L
Fjöldi grilla á Jólatilboði
Núerhægtaðgrilla
allt árið
Grillbúðin
Smiðjuvegi 2, Kópavogi - (við hliðina á Bónus) - Sími 554 0400
www.grillbudin.is Opið alla daga til jóla
15”
Spaði og
skeri fylgja
Fyrir grill og ofna
Þráðlaus kjöthitamælir
JÓLATILBOÐ
3.990
VERÐ ÁÐUR 4.990
Pítsusteinn
KjúklingastandurLED ljós á grillið
Frá Þýskalandi
Niðurfellanleg
hliðarborð
Triton 3ja brennara
JÓLATILBOÐ
54.900
VERÐ ÁÐUR 69.900
Stilltu á
tegund og steikingu
Mælirinn lætur þig vita
þegarmaturinn er tilbúinn
Fyrir grill ogofna
Fyrir grill
ogofna
Opið alla
daga til jóla
JÓLATILBOÐ
5.990
VERÐ ÁÐUR 7.990
JÓLATILBOÐ
4.990
VERÐ ÁÐUR 6.990
JÓLATILBOÐ
1.990
VERÐ ÁÐUR 2.990