Morgunblaðið - 14.12.2017, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. DESEMBER 2017
Laugavegi 170-174 · Reykjavík · sími 590 5000 · hekla.is
Eigum nokkra SKODA og Volkswagen bíla með niðurfellingu
til afhendingar til bílaleiga fyrir áramót. Árgerð 2018 af Skoda
Octavia, SKODA Superb, SKODA Fabia, Volkswagen Golf og
Volkswagen Passat.
Allar nánari upplýsingar hjá vörustjórum HEKLU
Valgeir Erlendsson í síma 590 5611 eða ve@hekla.is
Haraldur Ársælsson í síma 590 5530 eða hara@hekla.is
Nýir SKODA og Volkswagen fyrir bílaleigur.
„Þetta háir okkur á allan hátt. Ef
færðin er slæm komast hvorki
starfsmenn okkar né gestir á
svæðið með góðum hætti. Góðar
samgöngur eru lykilforsenda þess
að hægt sé að vera með rekstur,“
segir Unnar Bergþórsson, hót-
elstjóri á Hótel Húsafelli. „Ef veg-
urinn er ekki mokaður er ekki fólki
bjóðandi að ferðast um hann.“
Unnar er í hópi þeirra sem ótt-
ast að slys geti orðið. „Ef veg-
urinn fær ekki vetrarþjónustu er
það ekki spurning hvort heldur
hvenær það verður slys. Ég vil
ekki hugsa þá hugsun til enda,“
segir Unnar og bætir við: „Það
munar litlu í kostnaði að moka
alla leið. Það
ætti raunar að
vera sjálfsagt.
Húsafell er einn
stærsti vinnu-
staðurinn í
Borgarfirði.
Hingað koma
um það bil 10
þúsund manns
á mánuði í seld-
ar ferðir og einhver fjöldi þar fyrir
utan án þess að hafa bókað gist-
ingu. Nú er árið 2017 og mér
finnst að ég eigi ekki að þurfa að
standa í stappi með þetta. Þetta
er Borgarfjarðarbraut, meginleiðin
um héraðið.“
Forsenda reksturs hótelsins
HÓTELSTJÓRINN Í HÚSAFELLI
Unnar
Bergþórsson
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Ferðaþjónustan í uppsveitum Borg-
arfjarðar og sveitarfélagið Borgar-
byggð hafa mikið reynt að fá betri
vetrarþjónustu fyrir veginn upp í
Húsafell. Það hefur ekki gengið
vegna fjárskorts hjá Vegagerðinni.
Umferðin hefur stóraukist vegna
metnaðarfullrar uppbyggingar
ferðaþjónustunnar og hafa rútur og
bílaleigubílar iðulega lent í vandræð-
um og stundum legið við stórslysum.
Borgarfjarðarbraut er mokuð og
hálkuvarin fimm daga í viku frá
Borgarfjarðarbrú og upp í Reykholt.
Frá Reykholti og að Kaldadalsvega-
mótum sem eru rétt fyrir ofan Húsa-
fell er mokað tvisvar í viku, á föstu-
dögum og sunnudögum. Það er um
26 kílómetra kafli.
Framkvæmdastjórar ferðaþjón-
ustufyrirtækjanna á svæðinu og
sveitarstjóri Borgarbyggðar hafa
krafist úrbóta þannig að mokað
verði daglega frá hringveginum við
Borgarfjarðarbrú og upp í Húsafell.
Hafa áskoranir verið sendar og
fundað með samgönguráðherra.
Vegagerðin þarf auknar fjárheimild-
ir frá Alþingi til að auka vetrarþjón-
ustu en þeir fjármunir hafa ekki
fengist. Hins vegar kemur fram í
svari Vegagerðarinnar á Vestur-
landi til sveitarstjórans í fyrradag að
mótaðar hafi verið tillögur um breyt-
ingar á vetrarþjónustu þar sem tekið
er tillit til aukningar og breytinga á
umferð, meðal annars að fjölsóttum
ferðamannastöðum. Tillögurnar fela
í sér að mokað verði fimm sinnum í
viku á allri leiðinni upp í Húsafell.
Verið er að meta kostnað við tillög-
urnar fyrir landið allt. Þjónustan
verði þó ekki aukin nema fjárveit-
ingar til hennar aukist.
Umferðin margfaldast
Gríðarlegar breytingar hafa orðið
í umferð um uppsveitir Borgarfjarð-
ar vegna uppbyggingar í ferðaþjón-
ustu. Hraunfossar hafa lengi verið
vinsæll áfangastaður ferðafólks.
Lengi var það hins vegar svo að litla
veitinga- og gistiþjónustu var að
hafa fyrir ofan Reykholt. Á þessu
hefur orðið gjörbreyting á síðustu
árum, eins og Kristján Guðmunds-
son, forstöðumaður Markaðsstofu
Vesturlands, bendir á.
Komið er fínasta hótel í Húsafelli
og veitingastaður við Hraunfossa,
auk ýmiskonar þjónustu svo sem
veitingahúss í Brúarási og hótels Ár
á Kirkjubóli. Þá hefur Fosshótel
Reykholt verið byggt upp. Þar fyrir
utan hafa verið byggð upp vinsæl og
öflug afþreyingarfyrirtæki. Ber
fyrst að nefna íshellinn í Langjökli,
Into the Glacier, vélsleðaferðir
Mountaineers of Iceland í Langjökli,
þjónustu The Cave í Víðgelmi og nú
síðast baðstaðinn Kraumu við Deild-
artunguhver. „Þetta er orðinn al-
vöru ferðamannastaður,“ segir
Kristján og vísar til uppsveitanna í
heild.
Rútufyrirtæki sem bjóða dags-
ferðir út frá Reykjavík hafa fylgt
þessu eftir með því að bjóða dag-
legar ferðir í Húsafell alla daga árs-
ins. Fjögur fyrirtæki eru með heils-
ársþjónustu og fleiri aka bara á
sumrin. Þá fer fjöldi erlendra ferða-
manna daglega uppeftir á bílaleigu-
bílum til að gista eða kaupa afþrey-
ingu. Fjöldi starfsfólk fer daglega á
milli. Þar fyrir utan nota íbúar svæð-
isins veginn allt árið, meðal annars
til að aka börnum til og frá skóla og
leikskóla.
Vilja mokstur þegar ófært er
„Það er erfitt að vera búinn að
fjárfesta mikið og geta svo ekki
komið starfsfólki og gestum á stað-
inn,“ segir Kristján Guðmundsson.
Viðmælendur benda á að núverandi
fyrirkomulag, að moka aðeins á
föstudögum og sunnudögum, miðist
við að fólk komist í sumarbústaðina
sína um helgar. Margir gera það enn
en þörfin er orðin allt önnur með
uppbyggingu ferðaþjónustunnar.
Ef það gerir ofankomu og skaf-
renning á mánudegi er vegurinn
ekki mokaður fyrr en á föstudegi,
samkvæmt reglunum. Ruðnings-
tækin fara um á mokstursdögunum,
með tönnina uppi ef enginn snjór er.
„Það er ekki boðlegt að fólk þurfi að
skipuleggja ferð sína upp í Borgar-
fjörð yfir helgi. Auðvitað á að moka
þegar ófært er og hálkuverja. Ég
held að það hljóti að verða niðurstað-
an,“ segir Snorri Jóhannesson á
Augastöðum sem rekur veitingahús-
ið við Hraunfossa.
Sigurður Skarphéðinsson, fram-
kvæmdastjóri íshellisins, Into the
Galcier, segist fá fjölda gesta á
hverjum degi. Vegurinn sé stundum
hættulegur. Nefnir að starfsmanna-
bíll hafi farið út af í slabbi í fyrravet-
ur. Sem betur fer hafi ekki orðið slys
á fólki. Í næstsíðustu viku hafi orðið
vandræði, þurft hafi að losa bíla
gesta og starfsfólks.
Þjónusta fylgir ekki uppbyggingu
Vegurinn í Húsafell aðeins mokaður um helgar þótt ferðaþjónustan dragi að sér fjölda gesta og starfs-
fólks alla daga vetrarins Vegagerðin undirbýr nýjar reglur en vantar fjármuni til að auka þjónustu
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Náttúruundur Hraunfossar eru sérstakt náttúruundur og draga að fjölda ferðamanna. Þangað komu 3.350 gestir í
janúar sl., nærri þrisvar sinnum fleiri en í sama mánuði árið 2016. Talan verður enn hærri í janúar á næsta ári.
Borgarfjörður
» Yfir 100 manns vinna við
ferðaþjónustu í vetur í 20 fyr-
irtækjum frá Deildartungu og
upp í Húsafell.
» Umferðin um Borgarfjarð-
arbraut hefur margfaldast á
stuttum tíma vegna uppbygg-
ingarinnar.
» Ferðamenn sem leggja leið
sína um Vesturland eru orðnir
mun fleiri en komu til Íslands
allt árið 2012.