Morgunblaðið - 14.12.2017, Blaðsíða 78
Ljósmynd/Birta Rán
Sálarrík Tónlistarkonan Una reiðir
fram hvern smellinn af öðrum.
Snú snú Jóhanna Axelsdóttir túlkar gömlu konuna sem langar í snú-snú í myndbandi lagsins.
Sigurður Þorri Gunnarsson
siggi@mbl.is
„Þetta átti að verða voða djúpt, ég
er ekkert viss um um hvað það
fjallar. Þetta átti að vera lag sem
fjallar um samband sem endaði
illa,“ segir Una þegar hún er
spurð út í yrkisefni nýja lagsins
en það virðist ekki hafa endað
þannig. „Þegar við vorum að vinna
myndbandið við lagið sagði leik-
stjórinn að hann sæi fyrir sér að
lagið fjallaði um gamla konu sem
langaði í snú-snú svo við gerðum
það,“ segir Una hlæjandi og segir
að hver og einn megi bara leggja
sína merkingu í texta lagsins.
Lagið er djass- og sálarskotið en
Una hefur verið að gæla við þann
stíl lengi. Lagið er upptaktur að
nýrri plötu sem hún ætlar að gefa
út á næsta ári. „Ég gaf út plötu
2014 sem var svona unglingaplata
en nú ætla ég að gera fullorðins-
plötu,“ segir Una en hún samdi öll
lögin á plötuna sína árið 2014 þeg-
ar hún var unglingur en nýja plat-
an verður einungis með nýju efni.
Hægt er að hlusta á nýja lagið á
YouTube og Spotify. Una heldur
einnig úti facebooksíðu undir
nafninu Una Stef.
Lag um konu sem
langar í snú-snú
Tónlistarkonan Una Stefánsdóttir hefur verið viðloðandi tónlist frá blautu barns-
beini. Í sumar sendi hún frá sér sálarsmellinn The one sem naut mikilla vinsælda
í útvarpi. Nú hefur Una sent frá sér nýtt lágstemmdara lag sem smellpassar inn í
vetrarrökkrið. Hún vinnur einnig að útgáfu nýrrar plötu á næsta ári.
78
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. DESEMBER 2017
Hágæða
umhverfisvænar
hreinsivörur
fyrir bílinn þinn
Glansandi
flottur
Fást í betri byggingavöruverslunum, matvöruverslunum og bensínstöðvum.
Íslensk hönnun og smíði síðan 1924
ERNA
Skipholti 3 – Sími 552 0775 – erna.is
GULL- OG SILFURSMIÐJA
Fallega jólaskeiðin
frá ERNU
Smíðuð á Íslandi úr 925 sterling silfri
Hönnuð af Ragnhildi Sif
Reynisdóttur gullsmið og hönnuði
Verð 21.500,-
Sigurður Þorri Gunnarsson
siggi@mbl.is
„Þetta er fyrsta lagið þar sem ég
sem texta og laglínu alveg sjálf,
svo talaði ég við góðan vin og
samstarfsfélaga, hann Pálma Sig-
urhjartarson, og hann hjálpaði
mér að finna út úr hljómunum,“
segir Karítas Harpa um nýja lag-
ið en hún samdi það fyrir um
mánuði. „Ég hef yfirleitt verið
feimin við að semja lög og þetta
var eiginlega fyrst einhverskonar
spaug, að gera jólalag, en svo
kom þetta lag bara til mín á hálf-
tíma og ég hugsaði, nú er að
hrökkva eða stökkva,“ segir Kar-
ítas um tilurð lagsins. „Kona sem
er mér mjög kær hefur ekki verið
í neinum samskiptum við sitt
næstelsta barn í næstum því
fimmtán ár núna og ég veit að
jólin eru henni mjög erfið. Jólin
eru það hjá þeim sem hafa misst
einhvern eða eru ekki í sam-
skiptum við fólk. Þegar þú heyrir
lagið fyrst heldur fólk kannski að
þetta sé lag um elskhuga en það
þarf ekkert að vera. Lagið er
frekar um söknuð sem sumir
upplifa um jólin,“ segir Karítas
þegar hún er spurð um texta
lagsins. Karítas sendi einnig frá
sér myndband við lagið og er það
nú aðgengilegt á YouTube.
Myndbandið er persónulegt en
hún og þriggja ára sonur hennar,
Ómar Elí Fannarsson, leika aðal-
hlutverkið í því. Hún klippti
myndbandið sjálf og er þetta
frumraun hennar í mynd-
bandagerð. Hægt er að fylgjast
með Karítas á Facebook og
hlusta á nýja lagið á Spotify.
Mæðgin Karítas og sonur hennar, Ómar Elí Fannarsson þriggja ára, leika
aðalhlutverkin í myndbandinu við lagið Um jólin.
Það sakna allir
einhvers um jólin
Karítas Harpa spratt fram á sjónarsviðið í upphafi ársins þegar hún sigraði í
söngvarakeppninni The Voice í Sjónvarpi Símans. Síðan þá hefur hún verið iðin
að koma fram á tónleikum og gefa út allskonar tónlist og sendir hún nú frá sér
nýtt jólalag, Um jólin.