Morgunblaðið - 14.12.2017, Blaðsíða 44
44 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. DESEMBER 2017
Krýsuvíkursamtökin hafa opnað nýtt
áfangaheimili fyrir konur á Sjónar-
hóli í Hafnarfirði. Í framhaldi af því
hefur Lionsklúbburinn Fjölnir
ákveðið að styðja við þetta verkefni
enn frekar með því að hefja lands-
söfnun til styrktar stækkun heimilis-
ins.
Landssöfnunin fer fram með síma-
sölu og verður í boði nýr diskur sem
nefnist Það birtir. Flytjendur tónlist-
ar eru Egill Ólafsson, Sigríður
Thorlacius, Eyþór Ingi Gunnlaugs-
son, Ágústa Ósk Óskarsdóttir, Ás-
geir Óskarsson, Matthías Stefánsson
og Snorri Heimisson.
Nú njóta fimm konur meðferðar á
Sjónarhóli, en Krýsuvíkursamtökin
hafa rétt til að kaupa til viðbótar
stærri hluta af húsinu og snýst söfn-
unin um að gera það mögulegt.
Framtíðarsýn áfangaheimilisins á
þessum stað er búseta fyrir 12 konur.
Þetta er fyrsta úrræði sinnar teg-
undar á Íslandi og heita Fjölnismenn
á stuðning almennings til að þetta
geti orðið að veruleika, að því er fram
kemur í fréttatilkynningu frá Krýsu-
víkursamtökunum.
Félagsleg aðlögun
Tilgangur áfangaheimilisins er að
sameina búsetuúrræði ásamt því að
veita áframhaldandi meðferð og
stuðning eftir að hefðbundnum með-
ferðartíma lýkur á meðferðarheimili
Krýsuvíkursamtakanna í Krýsuvík.
Áfangaheimilinu er ætlað að veita
konunum félagslega aðlögun og
stuðla að mögulegri þátttöku þeirra á
atvinnumarkaði, sem er stór þáttur í
að endurheimta hæfni, sjálfsvirðingu
og gott sjálfsmat.
Krýsuvíkursamtökin hafa í þrjá
áratugi rekið kynjablandaða áfengis-
og vímuefnameðferð með ágætum
árangri. Þrátt fyrir það hallar á kon-
ur þegar þessi málaflokkur er annars
vegar. Þær virðast sækja sér seinna
meðferð og eru þar af leiðandi lengra
gengnar og mjög oft verr farnar af
völdum alkóhólisma og fíkniefna-
neyslu.
„Eitt af því sem einkennir konur
sem eru að koma úr ofneyslu vímu-
efna er að í flestum tilfellum hafa
þær verið þolendur kynferðis-, lík-
amlegs og andlegs ofbeldis í miklu
meiri mæli en karlmenn. Það segir
okkur að þær þurfi þar af leiðandi
meiri og nánast í öllum tilfellum
lengri meðferð en hefðbundinn með-
ferðartími leyfir. Það er mikilvægt að
geta boðið konum sem eru að koma
úr meðferð nægan tíma til að venjast
eðlilegu umhverfi jafnhliða því að
hafa aðgang að fólki með þekkingu
sem getur veitt þeim stuðning til að
komast aftur í tengingu við fjölskyld-
ur sínar og í mörgum tilfellum einnig
börn sín,“ segir Þórir Jensen hjá
Lionsklúbbnum Fjölni í fréttatil-
kynningunni.
Þar er jafnframt haft eftir for-
svarsmönnum Krýsuvíkursamtak-
anna að fall sé mjög algengt hjá kon-
um eftir mörg ár í neyslu vímuefna,
ofbeldi og einangrun og tengslarof
við börn, fjölskyldu, vini og samfélag-
ið.
„Þær eru í einu orði hjálparvana.
Krýsuvíkursamtökin hafa þess
vegna ákveðið að stíga fram og opna
þetta áfangaheimili fyrir konur á
Sjónarhóli í Hafnarfirði. Við vitum að
þetta er aðeins lítið skref í baráttunni
við einn illvígasta fjölskyldusjúkdóm
sem mannfólkið þekkir, alkóhólisma
og fíkniefnaneyslu, en viljum gera
okkar besta til að bæta úr því,“ segja
talsmenn samtakanna ennfremur.
Nýtt áfangaheimili í
Hafnarfirði fyrir konur
Efna til landssöfnunar til að stækka áfangaheimilið
Sjónarhóll Félagar í Lionsklúbbnum Fjölni ásamt forráðamönnum nýja
heimilisins við afhendingu heimilistækja og húsbúnaðar fyrir Sjónarhól.
Áralangt samstarf
» Krýsuvíkursamtökin hafa
verið starfandi í þrjá áratugi.
» Lionsklúbburinn Fjölnir hóf
samstarf við samtökin árið
1999, eftir að ríkið breytti vist-
heimilinu í Víðinesi fyrir áfeng-
issjúklinga í dvalarheimili fyrir
aldraða.
Árið 2016 fannst stór stofn engja-
kambjurtar, sem vex út af fyrir sig
í Vaglaskógi. Fundurinn þótti all-
sérkennilegur því um er að ræða
tegund sem
dreifir sér hægt
og oftast með
maurum. Næsta
þekkta stofn
hennar er að
finna á Hjalt-
landseyjum, um
þúsund kíló-
metra suðaustur
af Vaglaskógi.
Pawel Wàso-
wicz, grasafræð-
ingur hjá Náttúrufræðistofnun Ís-
lands, flutti fyrirlestur á Hrafna-
þingi NÍ í gær um þessa nýlegu
uppgötvun og sögu hennar. Einnig
fjallaði hann um niðurstöður ný-
legra rannsókna sem gerðar voru
til að varpa ljósi á uppruna stofns-
ins.
Hérlendis í langan tíma
Samkvæmt upplýsingum frá Pa-
wel er líklegast, samkvæmt rann-
sókninni, að tegundina hafi verið
að finna hér á landi í mjög langan
tíma. Hún hafi borist hingað á nátt-
úrulegan hátt á sínum tíma þó að
ekki sé ljóst hvernig það hafi gerst,
en ekki verið flutt inn af fólki.
Hann áætlar að í flóru Íslands
megi nú finna um 500 plöntuteg-
undir, en ný vitneskja bætist í sarp-
inn árlega. Á hverju ári bætist
plöntur í hópinn sem megi rekja til
vöruinnflutnings, landbúnaðar,
garðyrkju og aukinnar ferða-
mennsku. Hækkandi hitastig muni
trúlega á næstu árum auka líkur á
að „nýbúar“ nái fótfestu her á
landi, en slíkt geti verið áhyggju-
efni í ákveðnum tilvikum.
Ljósmynd/M. Wierzgon
Engjakambjurt Plantan hefur vaxið
út af fyrir sig í Vaglaskógi.
Óvænt engjakamb-
jurt í Vaglaskógi
Næsti þekkti stofn á Hjaltlandseyjum
Pawel
Wàsowicz
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Vegagerðin hefur áhyggjur af nýrri
tegund ljósaskilta, svokölluðum
LED-skiltum, sem í auknum mæli
hafa verið sett upp við fjölfarnar um-
ferðargötur á höfuðborgarsvæðinu
og víðar.
„Ljósaskiltin geta verið mjög
áberandi og þar af leiðandi truflandi
því tilgangur þeirra er að fanga at-
hygli vegfarenda. Víða eru skiltin við
umferðargötur þar sem hraði er
mikill og skapa því töluverða hættu,“
segir í frétt á heimasíðu Vegagerð-
arinnar.
Tekið er fram að þessi nýja teg-
und skilta fangi athygli vegfarenda
mun meira en eldri skilti gerðu.
Vegagerðin gefi umsögn
Nær öll þessara skilta eru utan
skilgreinds veghelgunarsvæðis. Í
vegalögum segir m.a.: „Byggingar,
leiðslur, auglýsingaspjöld, skurði
eða önnur mannvirki, föst eða laus,
má ekki staðsetja nær vegi en 30
metra frá miðlínu stofnvega og 15
metra frá miðlínu annarra þjóðvega
nema leyfi veghaldara komi til.“
Umrædd skilti eru af þeirri gerð
að sækja þarf um byggingarleyfi
fyrir uppsetningu þeirra til viðkom-
andi sveitarfélags. Með hliðsjón af
þeirri hættu sem getur stafað af
skiltunum telur Vegagerðin eðlilegt
að leitað sé umsagnar hennar áður
en leyfi er veitt fyrir uppsetningu
slíkra skilta. Það hefur ekki verið
gert.
Vegagerðin bendir á að í norrænni
skýrslu, sem kom út á þessu ári komi
fram að auglýsingar meðfram veg-
um, og sérlega þær sem eru meira
krefjandi eins og ljósdíóðuskiltaaug-
lýsingar, keppi um athygli bílstjóra
og hafa það mikil áhrif á bílstjóra að
umferðaröryggi skerðist.
„Vegagerðin leggst gegn uppsetn-
ingu auglýsingaskilta sem beint er
að vegfarendum og geta haft nei-
kvæð áhrif á öryggi vegfarenda,“
segir í fréttinni.
Af þessu tilefni hefur Vegagerðin
sent bréf til sveitarfélaga sem bera
ábyrgð á leyfisveitingunum til að
gera þeim grein fyrir niðurstöðum
rannsókna og afstöðu Vegagerð-
arinnar varðandi umrædd auglýs-
ingaskilti. Vegagerðin muni vænt-
anlega í kjölfarið þurfa að meta
hvort og þá hvernig bregðast eigi við
skertu umferðaröryggi á þeim stöð-
um þar sem slík skilti hafa þegar
verið sett upp.
Leggjast gegn LED-
ljósaskiltum við vegi
Vegagerðin segir skiltin vera áberandi og truflandi
Ljósmynd/Vegagerðin
Auglýsingaskilti Nýju LED-ljósaskiltin eru mjög skær og áberandi.
Ármúla 17, 108 Reykjavík, sími 552 8636, mbr.is
Allt fyrir raftækni
Hljómtæki
Cambridge Audio YOYO S
Bluetooth hátalari - 26.900 kr.
Skúlagata 20
falleg 2ja herbergja íbúð
á 9. hæð í lyftuhúsi fyrir 60 ára og
eldri við Skúlagötu 20. Stæði í bíla -
geymslu og glæsilegt útsýni.
101 Reykjavík
Þarftu að minnka við þig? Ásdís Ósk
69.7fm Verð: 42,5 Millj
Til sölu
Fél
ags
me
nn
í fé
lag
i el
dri
bor
gar
a
Ásdís Ósk Löggiltur fasteignasali - Sími:863-0402 - Asdis@husaskjol.is
1 1