Morgunblaðið - 14.12.2017, Side 66

Morgunblaðið - 14.12.2017, Side 66
66 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. DESEMBER 2017 Skúli Halldórsson sh@mbl.is Landssamband smábátaeigenda hef- ur sent atvinnuvega- og nýsköp- unarráðuneytinu bréf með at- hugasemdum við tillögu starfshóps ráðuneytisins, sem er á þá leið að allar núgildandi stærðar- og vélarafls- takmarkanir skipa við veiðar verði felldar úr gildi. Í bréfinu segir að þessi niðurstaða hópsins sé sambandinu mikil von- brigði. Telur sambandið tillöguna vega að framtíð smábátaútgerðar á landinu og veiðirétti þeirra. „Hópurinn hefur með tillögu sinni ákveðið að skeyta engu um þær regl- ur sem í gildi eru og verið einn af hornsteinum að útgerð smábáta. Að skýrar reglur gildi um veiðar á grunn- slóð, hvers konar skip geti sótt á hefð- bundin veiðisvæði smábáta. Sátt hef- ur ríkt um lög um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands þar sem haft er til hliðsjónar að stærð báta takmarki sókn þeirra á veiðislóðir fjær landi.“ „Verið að skjóta okkur niður“ Axel Helgason, formaður LS, segir tillöguna ekki í samræmi við markmið núgildandi laga. „Það helsta sem við hnjótum um er að starfshópurinn leggur til að allar núgildandi stærðar- og vélartakmark- anir verði felldar úr gildi. Í því felst ekkert annað en meiri háttar breyting á okkar umhverfi, og er í raun á skjön við markmið fyrstu greinar laga um stjórn fiskveiða,“ segir Axel í samtali við 200 mílur. Samkvæmt umræddri grein er markmið laganna að verndun og hagkvæmri nýtingu nytjastofna „og tryggja með því trausta atvinnu og byggð í landinu.“ „Það að halda þessu útgerðarformi við lýði er í hag byggðanna. Að þetta sé ekki allt á hendi stærstu aðilanna,“ bætir hann við. „Og síðan segir Fiskistofa að það að heimila stærri bátum að koma að veiðum muni „að mati Fiskistofu leiða af sér bætta umgengni um auðlindina og bætta aflameðferð.“ Það eru engin rök fyrir þessu og það er bara verið að skjóta okkur niður.“ Atvinna nokkurra þúsunda Aðspurður segir hann Lands- sambandið munu kalla eftir svörum frá Fiskistofu vegna þessa. „Við munum krefjast þess að fá að vita til hvers þeir eru að vísa þarna. Hvernig umgengni um auðlindina er sjáum við á stóru skipunum? Hvaða samhengi er þar við stærð skipsins og fjarlægð frá landi? Þetta er náttúrlega sorglegt.“ Þá bendir hann á að Hafrann- sóknastofnun nefni að á nokkrum stöðum sé ljóst að engin fiskifræðileg rök séu fyrir stærðartakmörkunum. „Það má vel vera en fiskveiði- stjórnunarkerfið snýst ekki bara um fiskifræðileg rök. Þetta er atvinna nokkurra þúsunda manna og verið er að viðhalda henni til að stuðla að byggð úti um landið.“ Þá segir hann takmarkanirnar ekki heldur vera aðeins til að vernda ungviði fiska og sjávarbotninn. „Þetta snýst um að það farsvið sem smábátar hafa sé að hluta til verndað fyrir þessum stórvirku veiðarfærum. Dragnótabátar geta núna komið inn í botninn á Skagafirði og hreinsað upp fiskinn á einni og hálfri viku. Eftir það er engin línuveiði í Skagafirði, all- an veturinn. Í staðinn fyrir að heima- menn gætu veitt þar jafnt og þétt á sama tíma með valkvæðara veið- arfæri sem hróflar ekki við botn- inum.“ „Þetta er náttúrlega sorglegt“ Morgunblaðið/Ófeigur Formaður „Þetta er atvinna nokkurra þúsunda manna og verið er að viðhalda henni til að stuðla að byggð úti um landið,“ segir Axel um smábátaútgerðina. Tillaga starfshóps um niðurfellingu stærðar- og vélaraflstakmarkana skipa við veiðar hefur vakið hörð viðbrögð. Landssamband smá- bátaeigenda segir að vegið sé að framtíð smábátaútgerðar. Sjávarútvegsráðherra setti á fót haustið 2015 starfshóp um heild- arskoðun á regluverki er varðar notkun veiðarfæra, veiðisvæði og verndunarsvæði á Íslandsmiðum. Í bréfinu til ráðuneytisins upp- lýsir sambandið að það íhugi að óska eftir því við Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og land- búnaðarráðherra, að hann leggi starfshópinn niður. Segir þar að það sé álit sam- bandsins á hópurinn hafi sýnt af sér ábyrgðarleysi við verkefnið. „Þröng órökstudd sjónarmið hafa orðið ofan á í hópnum og framkallað tillögur sem eiga fátt skylt við markmið laga um stjórn fiskveiða, að stuðla að verndun og hagkvæmri nýtingu nytja- stofna og tryggja með því trausta atvinnu og byggð í landinu.“ „Þröng, órökstudd sjónarmið“
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.