Morgunblaðið - 14.12.2017, Blaðsíða 26
BAKSVIÐ
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Sífellt meiri áhugi virðist vera fyrir
handverksbjórum hér á landi. Ný
og ný brugghús skjóta reglulega
upp kollinum og endalaust virðist
vera hægt að prófa sig áfram með
bjórstíla og áferð þeirra. Sumir
þessara bjóra rata í Vínbúðirnar en
æ algengara virðist vera að þeir
séu aðeins seldir á börum og veit-
ingastöðum, enda oftast fram-
leiddir í takmörkuðu magni og í
skamman tíma.
Síðustu misseri hefur það orðið
æ algengara að íslenskir bruggarar
efni til samstarfs með erlendum
kollegum sínum. Í þessum sam-
starfsverkefnum hittast bruggarar
frá tveimur eða fleiri brugghúsum
og leiða saman hesta sína. Útkom-
an verður gjarnan forvitnileg og
oft aðeins tilraunakenndari bjór en
flestir eiga að venjast. Þessi sam-
starfsbrugg eru í daglegu tali köll-
uð „Collab“, sem er stytting á
Collaboration Brewing.
Borg brugghús reið á vaðið fyrir
um þremur árum með dönskum
kollegum sínum og síðan þá hafa
bruggarar Borgar tekið þátt í yfir
30 samstarfsbruggunum. Fæstar
þeirra hafa komið á markað á Ís-
landi. Hið unga brugghús Kex
Brewing hefur sömuleiðis tekið
samstarfsbruggun föstum tökum. Á
einu ári hafa bruggarar á þess veg-
um tekið þátt í um tíu samstarfs-
bruggunum. Nóg er fram undan í
þessum geira; Borg sendir þrjú
samstarfsbrugg frá sér í þessum
mánuði og Kexmenn voru í vikunni
vestanhafs að brugga tvo bjóra.
Eitt af bestu brugghúsunum
Þegar Morgunblaðið ræddi við
Hinrik Carl Ellertsson, bruggara
hjá Kex Brewing, í vikunni sat
hann einmitt í leigubíl í Toronto á
leið í brugghús Collective Arts.
„Það er auðvitað fáránlegur
heiður að fá að vinna með svona
stórum nöfnum í bjórheiminum,“
segir Hinrik, en fyrsti viðkomu-
staður ferðarinnar var New York.
Þar brugguðu Hinrik og félagar
með kollegum sínum í Other Half-
brugghúsinu, sem er tíunda besta
brugghús í heimi samkvæmt árleg-
um lista Ratebeer.com.
„Fólk stendur í biðröð fyrir utan
þegar þeir selja bjórana sína. Þeg-
ar við vorum þarna beið fólk í tíu
tíma og það þykir tiltölulega lítið.
Það hefur farið upp í 24 tíma bið,“
segir Hinrik.
Hinrik og félagar komu ekki
tómhentir að heiman. Þeir höfðu
með sér 50 kíló af hrútaberjum
sem notuð voru við bruggið.
„Svo komu þeir með amerísk
hindber á móti. Þetta verður ein-
Brugga bjór um allan heim
Borg brugghús og Kex Brewing hafa á skömmum tíma efnt til samstarfs við mörg af virtustu
brugghúsum heims Flytja íslenskt hráefni með sér út Hafa notast við hrútaber og harðfisk
Í Kanada Kexmennirnir Kristinn Vilbergsson og Hinrik Carl Ellertsson
með Ryan Marrow, bruggara Collective Arts, á milli sín í vikunni.
Í Noregi Hér er Árni Theodór Long, bruggari hjá Borg, að undirbúa íslensk
svið sem notuð voru í Smalahove Stout með brugghúsinu Voss.
hvers konar blanda af báðum heim-
um í formi Berliner Weisse-bjórs.
Þessi bjór er bruggaður fyrir
bjórhátíðina okkar, The Annual
Icelandic Beer Festival, sem haldin
verður á Kex Hostel í febrúar og
verður bara í boði þar. Það er nú
tilgangur þessar ferðar, að brugga
fyrir hátíðina.
Bjórinn sem við bruggum hér í
Kanada verður stór og dökkur Im-
perial Stout. Til að gera hann kom-
um við með kakónibbur frá Omnon
og salt frá Saltverki. Helmingurinn
af honum fer á dósir og kemur
heim en hinn helmingurinn fær að
þroskast á bourbon-tunnum í ár og
verður í boði á bjórhátíðinni árið
2019.“
Læra af samstarfinu
Hvernig kemur svona samstarf
til?
„Aðallega í gegnum þessar
bjórhátíðir. Við höfum hitt þessa
bruggara á hátíðum á síðustu árum
og Other Half og Collective Arts
komu á hátíðina okkar í byrjun
þessa árs. Yfir einhverjum bjórn-
um sem við drukkum varð það góð
hugmynd að við hittumst og ynn-
um saman.“
Fyrsti samstarfsbjórinn sem Kex
Brewing gerði var einmitt með
Kanadamönnunum í Collective
Arts fyrir ári. Kallaðist hann Nor-
dic Söl og var súrbjór sem innihélt
meðal annars íslenskt blóðberg og
sjávarsalt.
Síðan þá hafa bruggarar Kex
gert eitthvað um tíu samstarfs-
bjóra. Meðal þeirra brugghúsa sem
þeir hafa heimsótt og unnið með
eru hið sænska Brewski, Warpigs í
Kaupmannahöfn, Brus, Omnipollos
hatt, Alefarm í Danmörku, Surly í
Minnesota og 18th Street frá Chi-
cago.
„Maður lærir fullt af þessu og
hittir margt skemmtilegt fólk,“
segir Hinrik þegar hann er spurð-
ur um tilganginn með þessum sam-
starfsverkefnum.
„Í grunninn er þetta til að læra
eitthvað nýtt. Venjulega koma
þarna fram tillögur að bjór sem
mann hefur lengi langað að prófa
að gera. Þetta er í raun gott fyrir
alla til að halda sér á tánum, En
svo verður þetta líka fljótt grunnur
að vinskap. Ég á orðið mjög fína
vini í gegnum þessi samstarfsverk-
efni.“
Hornsteinn menningarinnar
Undir þetta tekur Árni Theodór
Long, bruggmeistari hjá Borg
brugghúsi.
„Samstarfsbrugganir eru þáttur
í handverksbjóramenningunni og
má jafnvel segja hornsteinn. Þetta
eru tækifæri til að kynnist brugg-
urum frá öðrum brugghúsum og
deila reynslu af hráefnum og
vinnslu. Þetta er því vettvangur
sem undirstrikar þessa samkennd
sem ríkir í þessu umhverfi,“ segir
Árni.
Hann segir það jafnframt hluta
af þessum menningarbræðingi að
vinna með hráefni sem tengist öðru
hvoru brugghúsinu og því land-
svæði sem það tilheyrir.
„Þá höfum við gjarnan tekið með
okkur íslensk hráefni á borð við
blóðberg, beitilyng, íslensk ber og
taðreykt malt og notað í samstarfs-
brugganir erlendis. Þetta eru hrá-
efni sem við höfum notað talsvert
og þekkjum inn á og þá er gaman
að kynna þau og eiginleika þeirra
erlendis.“
Það hefur sömuleiðis vakið at-
hygli að samstarfsbjórar Borgar
skarta afar litríkum miðum á flösk-
unum. Segir Árni að sú stefna hafi
verið mörkuð að fá bæði þekkt og
efnilegt myndlistarfólk til að
spreyta sig á þessum vettvangi og
túlki viðkomandi ýmist tilefni, nafn
eða bjórinn sjálfan með teikningum
sínum.
26 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. DESEMBER 2017
Nýjasta viðbótin í samstarfs-
bruggunum Íslendinga og er-
lendra kollega þeirra er bjórinn
Hölökynkölökyn, sem
kom í Vínbúðirnar í
síðustu viku. Um er að
ræða kirsuberjasúrbjór
sem Borg brugghús
gerði með hinu
finnska brugghúsi
Mallaskosken Panimo.
Síðar í þessum mán-
uði er von á Midt om
natten, sem Borg
gerði með Flying
Couch Brewing frá
Kaupmannahöfn.
Vísar nafnið í
fræga kvikmynd
og tónlist Kim Lar-
sen í henni.
Mörg þessara
samstarfsverkefna
eiga það einmitt
sameiginlegt að
bera áhugaverð
nöfn, annaðhvort
furðuleg eða óþjál,
eða þá að þau vísa í
frægt fólk eða viðburði. Miðar á
flöskum eru gjarnan mjög æpandi
og hráefnin oft æði sérstök.
Þannig hafa bruggarar í Borg not-
að harðfisk og svið í sína bjóra.
Alls hafa bruggarar Borgar
bruggað yfir 30 samstarfsbjóra,
þar af 19 á erlendri grundu. Af
þeim sem gerðir voru erlendis má
nefna Blóðberg með kanadíska
brugghúsinu Four Winds, 14-2
með Nörrebro Bryghus og Mango
vanilla raspberry milk-
shake DIPA með hinu
norska Bådin. Með
hinu hollenska Loc var
gerður bjórinn Þrum-
ari, með Sori frá Eist-
landi var gerður Refur
í rúginum,
með Crow Bar í Nor-
egi var gerður Eyja-
fjallajökull og Koju-
fyllerí varð til í
samstarfi við Pa-
nimo Hiisi í Finn-
landi. Að síðustu
er vert að minnast
á Smalahove Sto-
ut, sem gerður var
með Voss í Noregi,
en við gerð hans
var notast við
bæði íslenska og
norska sviða-
kjamma.
Samstarfsbjórar
Kex Brewing bera
ekki síður áhugaverð nöfn, til að
mynda Less Is Never More sem
gerður var með Warpigs, Rein-
deer Pils sem gerður var með To
Öl og Brus og – síðast en ekki
síst – Skyr & bláber sem gerður
var með Brewski og inniheldur
einmitt þau hráefni sem nafnið
vísar til.
Hafa notað sviðakjamma,
harðfisk og skyr í pottana
FJÖLBREYTT HRÁEFNI NOTUÐ VIÐ SAMSTARFSBRUGGUN
Minnum á
teiknisamkeppni
Skólamjólkurdagsins
fyrir 4.bekkinga
Hægt er að skila inn myndum fram
að jólafríi til Mjólkursamsölunnar,
Bitruhálsi 1, 110 Reykjavík.
Mjólk er
góð!Nánari upplýsingar á www.ms.is