Morgunblaðið - 14.12.2017, Side 30

Morgunblaðið - 14.12.2017, Side 30
30 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. DESEMBER 2017 BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Metfjöldi ferðamanna hefur lagt leið sína til Ísraels í ár. Fyrstu ellefu mánuði ársins komu rúmlega 3,5 milljónir ferðamanna til landsins með flugi eða landleiðina. Það er til dæmis um 55% meira en árið 2007. Eli Gertner er leiðsögumaður í Ísrael. Hann sýndi blaðamanni Morgunblaðsins og öðrum gestum ferðamálaráðuneytis Ísraels og WOW Air nokkra helstu sögustaði landsins fyrr í mánuðinum. Þegar hópur- inn var nýkominn til Tel Aviv frá Jerúsalem, með viðkomu í Dauða- hafinu, hafði Donald Trump, forseti Banda- ríkjanna, boðað að sendiráð Bandaríkjanna í Ísrael yrði flutt frá Tel Aviv til Jerú- salem. Var þeirri ákvörðun víða mót- mælt. Engar tímasetningar hafa verið gefnar út varðandi flutninginn. Gertner sagði aðspurður í síma- viðtali síðastliðið þriðjudagskvöld að engin merki væru um afbókanir vegna þessa. Hafði hann þá ráðfært sig við ferðaþjónustuaðila sem skoð- uðu bókanir þrjá mánuði fram í tím- ann. Hann vísaði síðan á opinber gögn um fjölda ferðamanna. Benda þau til að aldrei hafi jafn margir ferðamenn komið til Ísraels og í ár. Gertner segir það hafa haft mark- tæk áhrif á ferðamannastrauminn þegar átök brutust út á Gaza 2014. Fengu atvinnuleysisbætur „Sumir leiðsögumenn fengu þá at- vinnuleysisbætur. Það var mun minni vinna í boði en vanalega. Nú hefur þetta jafnað sig. Ferðamönn- um fer fjölgandi þrátt fyrir yfirlýs- ingar Trumps. Við höfum ekki orðið vör við neinar afbókanir. Sjálfur hef ég fengið pantanir fram í júní. Það lítur út fyrir að ferðamenn séu að koma til Ísraels. Ferðamönnum mun fjölga árið 2018. Vandamálið er að við höfum ekki næg hótelherbergi á háannatíma.“ Gertner útskýrir svo að flestir ferðamenn komi á tímabilinu frá miðjum mars og fram í byrjun júní. Þá er meðal annars páskahátíðin og margt að sjá fyrir kristna menn. Sumarfrí yfir veturinn Hann segir haustið líka háanna- tíma. Margir ferðamenn komi til landsins á tímabilinu frá október til desember. Þá komi meðal annars ferðamenn frá Suður-Ameríku og Afríku sem eru í sumarfríi yfir vetrarmánuðina í Ísrael. Gertner bendir á að í þessum hópi séu gyð- ingar sem búa á öðrum tímabeltum. Hann segir skort á hótelum standa vexti ferðaþjónustunnar í landinu fyrir þrifum. „Við þurfum að byggja fleiri hótel. Rætt er um að við getum að óbreyttu með góðu móti tekið við fjórum milljónum ferðamanna á ári. Við erum að nálgast það. Haldi ferðamönnum áfram að fjölga á næsta ári munum við ná upp í há- markið. Það verður áskorun. Það skortir ekki aðeins hótel í Ísrael,“ segir Gertner og nefnir til dæmis að það skorti bílastæði og aðra innviði fyrir ferðaþjónustu í bæjum eins og Nasaret. Umferðarteppur séu á há- annatíma. „Við vonum að nýja lestarlínan milli Tel Aviv og Jerúsalem leysi hluta vandans. Ætlunin er að taka hana í notkun á næsta ári. Færri ferðamenn munu þá koma með hóp- ferðabifreiðum til Jerúsalem,“ segir Gertner og bætir því við að áætlað sé að ferðin muni taka 27 mínútur. Gertner segir meðal annars til skoð- unar að opna ný hótel í norðurhluta landsins til að mæta brýnni þörf fyrir gistingu. Meðalverðið 21.000 Við þá uppbyggingu þurfi að tryggja að gæði haldist í hendur við verð. Fjallað var um þetta í dag- blaðinu Haaretz í vikunni. Vitnað var til skýrslu World Economic For- um um að Ísrael væri í 94. sæti hvað varðar samkeppnishæfni ferðaþjón- ustu. Meðalverð á hótelgistingu var sagt um 21 þúsund krónur. Gertner segir stjórnvöld hyggjast veita fleiri leyfi til hótelbygginga. „Ein áskorunin er að fá leyfi. Því getur fylgt töluverð skriffinnska. Ferðamálaráðuneytið stefnir að því að taka á móti átta milljónum ferða- manna á ári. Það mun taka um ára- tug að ná því markmiði,“ segir Gertner. Hann segir jafnframt stefnt að því að opna nýjan alþjóða- flugvöll í Eliat, hafnarborg við Rauðahafið í suðurhluta Ísraels. Ben Gurion-flugvöllur er nú stærsti flug- völlur landsins. Flugfélagið WOW Air hefur nýverið hafið flug þangað. Samkvæmt ársskýrslu flugvallarins fóru tæplega 18 milljónir farþega um völlinn í fyrra. Þar af voru um 17,34 milljónir vegna alþjóðaflugs. Það var um 10,64% aukning frá 2015. Til samanburðar fóru 8,15 millj- ónir farþega um Keflavíkurflugvöll fyrstu 11 mánuði ársins. Yfirlýsing Trumps hafði lítil áhrif  Leiðsögumaður í Ísrael segir engin merki um afbókanir vegna yfirlýsinga Trumps um Jerúsalem  Ísraelsmenn ætla að meira en tvöfalda fjölda ferðamanna  Það kallar á uppbyggingu innviða Morgunblaðið/Baldur Dauðahafið Myndin er tekin við sólarupprás á að giska klukkan 6.25 að morgni þriðjudagsins 5. desember. Fáir ferðamenn voru þá á ferli á ströndinni. Eli Gertner Áskorun Takmarkaður aðgangur að vatni er áskorun fyrir ferðaþjónustu við Dauðahafið í Ísrael. Dauðahafið minnkar að flatarmáli ár frá ári. Vaxandi atvinnugrein Ferðaþjónustan í Ísrael hefur vaxið að umfangi á síðustu árum. Ráðuneyti ferðamála hyggst ríflega tvöfalda fjölda gesta. Á floti Dauðahafið hefur aðdráttarafl fyrir ferðamenn í Ísrael. Gestir fljóta á hafinu vegna hás seltustigs. Stórir saltkristallar eru á botninum. 2,80 2016 3,55 Fjöldi ferðamanna í Ísrael 2007 til 2017 Fjöldi ferðamanna í Ísrael í janúar til nóvember Þúsundir Heimild: 3,5 3,0 2,5 2,0 1,5 1,0 0,5 0 4 3 2 1 0 milljónir milljónir ’07 ’08 ’09 ’10 ’11 ’12 ’13 ’14 ’15 ’16 Ísrael Ísland 2007 2.296 485 2008 3.028 502 2009 2.740 494 2010 3.444 489 2011 3.362 566 2012 3.520 673 2013 3.540 807 2014 3.251 999 2015 3.109 1.289 2016 3.070 1.792 *Heimildir: Ferðamálastofa og hagstofan í Ísrael 2016 2.804 2017 3.555 Breyting 2016-2017 Fjöldi, þúsundir 751 % 26,8% 2017
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.