Morgunblaðið - 14.12.2017, Page 52

Morgunblaðið - 14.12.2017, Page 52
52 FRÉTTIRUmhverfismál MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. DESEMBER 2017 „Ráðist verður í langtímaátak gegn einnota plasti með sérstakri áherslu á fyrirbyggjandi aðgerðir og hreinsun plasts úr umhverfi lands og stranda. Gera þarf átak í fráveitumálum í samstarfi ríkis og sveitarfélaga en veruleg þörf er á uppbyggingu í þessum mála- flokki.“ Svo segir í málefnasamningi nýrrar ríkisstjórnar Íslands, sem tók við völdum í nóvember. Íslensk stjórnvöld hafa áður kynnt aðgerðir til að draga úr plastnotkun og fyrir réttu ári kynnti umhverfisráðuneytið að- gerðaáætlun til að draga úr notkun léttra burðarplastpoka. Ráðuneytið segir að ekki séu til nákvæmar töl- ur um magn burðarplastpoka á Ís- landi en starfshópur sem starfaði fyrri hluta síðasta árs áætlaði að hver einstaklingur hérlendis notaði um 105 burðarplastpoka árlega. Stefnt er að því að fyrir árslok 2019 verði notkunin hér á landi ekki meiri en 90 plastpokar á ein- stakling á ári og að sú tala verði komin niður í 40 árið 2025. Átta konur hleyptu árvekniátaki undir yfirskriftinni Plastlaus sept- ember af stokkunum í haust en því var ætlað að vekja almenning til umhugsunar um daglega plast- notkun og leiðir til að draga úr henni. Dóra Magnúsdóttir, sem stýrði átakinu, segir að það hafi heppnast vel og stefnt sé að því að hafa plastlausan september árlega. „Mesti árangurinn af þessu átaki var víðtæk vitundarvakning sem var markmiðið. Við vildum vekja fólk af þyrnirósarsvefni og sýna fram á hve auðvelt er að breyta þessum lífsstíl,“ segir Dóra. Hægt er að sjá upplýsingar og umræður um átakið á Facebook- síðum Plastslauss septembers. Langtímaátak gegn einnota plasti  Markmiðið að draga úr plastpokanotkun  Plastlaus september á hverju ári Getty Images/Thinkstock Guðmundur Sv. Hermannsson gummi@mbl.is Það er erfitt að hugsa sér daglegt líf án plasts þótt segja megi að það hafi aðeins verið fjöldaframleitt frá því um miðja síðustu öld. Maturinn okkar er í plastumbúðum og mataráhöld eru úr plasti. Föt eru að hluta úr plastefnum, barnaleikföng, greiðslukort, húsgögn, símar, sjónvörp, tölvur, bílar, flug- vélar … En plast þekur einnig stöðugt stærri og stærri hluta af jörðinni því það er síður en svo auðvelt að losna við það. Vísindamenn í Kaliforníuháskóla birtu í sumar grein í tímaritinu Science Advances þar sem þeir áætl- uðu að um það bil 8,3 milljarðar tonna af plasti hefðu verið framleiddir frá því „plastbyltingin“ hófst um miðja síðustu öld. Helmingurinn af þessu plasti hafi verið framleiddur á síðustu 13 árum og að um það bil 30% af allri þessari framleiðslu sé enn í notkun. Þetta þýðir um leið, að um 70% af öllu plasti, 6,3 milljarðar tonna, hefur verið fargað með einhverjum hætti. Af þessum plastúrgangi hafa 9% verið endurunnin, 12% hefur verið brennt en 79% hafa verið sett í landfyllingar eða endað úti í náttúrunni. Milljón plastflöskur á mínútu Plastflaskan er algengasta tegund plastúrgangs í heiminum. Talið er að um 480 milljarðar slíkra flaskna hafi verið seldir í heiminum á síðasta ári eða sem svarar til milljón flaskna á mínútu. Innan við helmingur þessara flaskna fór í endurvinnslu og aðeins um 7% voru notuð til að búa til nýjar plastflöskur. Nýlega birtust myndir af risastór- um plasteyjum á floti í Karíbahafi. Plastúrgangur safnast fyrir í sjónum, einkum þar sem staðvindar mynda hringstrauma sem soga í sig fljótandi rusl. Fimm slíkir straumar eru í höf- unum en sá þekktasti er Norður- Kyrrahafsstraumurinn. Í öllum þess- um fimm straumum er mun meira magn af örplasti en í öðrum hlutum hafsins. Þetta örplast virðist hanga undir yfirborði sjávar og er stundum líkt við súpu. Áform eru nú um það á vegum stofnunarinnar Ocean Clea- nup, að hreinsa Norður-Kyrrahafs- strauminn og á að hefjast handa við það á næsta ári. Hvatt til sjálfbærs lífsstíls Mengun af völdum plastúrgangs var meðal annars til umræðu á um- hverfisþingi Sameinuðu þjóðanna, sem haldið var í Naíróbí í Kenía í síð- ustu viku. Í yfirlýsingu þingsins er því heitið að reyna að koma böndum á plast- og efnamengun hverskonar og hvetja til sjálfbærs lífsstíls, eins og það er orðað. „Mengun styttir líf milljóna manna ár hvert,“ sagði m.a. í yfirlýsingu þingsins, sem Jón Geir Pétursson, skrifstofustjóri í umhverfisráðuneyt- inu, sótti fyrir hönd Íslands. „Á hverju ári fleygjum við 4,8 til 12,7 milljónum tonna af plasti í sjóinn og hendum yfir 40 milljónum tonna af raftækjum.“ Ibrahim Thiaw, varaforseti þings- ins, sagði við AFP-fréttastofuna, að gera yrði raunhæfar áætlanir um breytingar á framleiðslu og neyslu á vörum. Í því fælist skýr stefna ríkja að banna til dæmis notkun plast- innkaupapoka og drykkjarröra úr plasti. Þá yrði að uppfæra og end- urnýta farsíma í mun meiri mæli en gert væri nú í stað þess að kaupa stöð- ugt nýja á nokkurra ára fresti. Breska blaðið Financial Times seg- ir að ályktun umhverfisþingsins sé gagnleg eins langt og hún nái. Þótt hún sé óljóst orðuð og ekki skuldbind- andi myndi hún ákveðinn ramma sem ríkisstjórnir geti starfað innan. Nú segist Umhverfisstofnun Sameinuðu þjóð- anna hafa fengið samtals um 2,5 til- kynningar frá ríkisstjórnum, borgum, fyrirtækjum og einstaklingum þar sem því er heitið að draga úr mengun með ýmsum hætti. Þessi loforð, sem eru ekki bindandi, snúast m.a. um að banna notkun plastpoka, endurvinna meira, draga úr loftmengun og stuðla að grænum ferðamáta. Sem lítið dæmi ná nefna, að yfirvöld á dönsku eyjunni Sámsey í Kattegat, þar sem um 3.700 manns búa, hafa ákveðið að banna notkun innkaupaplastpoka í versl- unum þar frá og með næsta febrúar. AFP Plasti þakin strönd Plastrusl á Omoa-strönd í Hondúras í haust. Víða eru strendur við Karíbahaf þaktar plastúrgangi og öðru rusli, sem hent hefur verið í sjóinn og borist þangað með straumum. 6,3 milljarðar tonna af plastúrgangi  Miklu magni af plasti hent í sjóinn  Plastsúpa berst með hafstraumum 1:1 Hafstraumar hafa smalað plasti og ýmsu öðru rusli í gríðarstóra fláka sem hringsnúast á Kyrrahafi, Atlantshafi og Indlandshafi 8,3 milljarðar tonna af plasti hafaverið framleidd frá upphafi 6,3 milljarðar tonna af plastihafa endað sem úrgangur 79% hafa veriðurðuð eða eru úti í náttúrunni 12% hefur verið brennt 9% hafa farið í endurvinnslu 1.000.000 plastflöskur eru seldar á hverri mínútu, eða 20.000 á hverri sekúndu 480 milljarðar voru seldar árið 2016 þar af 110 milljarðar af Coca-Cola Innan við 50% fara í endurvinnslu 7% enda sem nýjarplastflöskur fugla við Norðursjó eru með plast í maganum 94% 70 milljónumplastpoka er hent hér á landi á hverju ári, eða 1.120 tonnum af pokum 105 burðarplastpoka notarhver Íslendingur árlega 25 mínútur eru meðal not-kunartími hvers plastpoka 450 ár tekur niðurbrotplastpoka í náttúrunni 70% af sorpi í hafinu í Evrópu eru plast 70% af því eru plastpokar 3,4 milljónir tonna af plastpokum eru framleidd- ar í ESB árlega Árið 2050 gæti magn af plasti og fiski í heimshöfunum orðið jafn mikið 20502014 1:5 H ei m ild ir : b bc .c om , u nr ic .o rg , s ci en ce m ag .o rg o g w ef or um .o rg
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.