Morgunblaðið - 14.12.2017, Page 62

Morgunblaðið - 14.12.2017, Page 62
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. DESEMBER 2017 Grunnsævi og fjörur við Ísland gegna veigamiklu hlutverki sem uppeld- isstöð fyrir marga okkar helstu nytja- fiska 1, 2 ,3, 4). Stofnstærð margra flat- fiska er í beinu hlutfalli við flatarmál á heppilegu búsvæði (t.d. sendinn botn á tilteknu dýpi) fyrir ungviði 5,6,7). Hið sama gildir um fleiri tegundir t.d. og ufsa og þorsk 8) þó að sambandið sé ekki eins sterkt þar sem ungviði þeirra nýtir fjölbreyttari búsvæði. Af þessum sökum hafa fjölmargir vís- indamenn hvatt til þess að varlega sé farið í að hrófla við mikilvægum bú- svæðum fyrir ungviði 6, 9, 10). Ein forsenda fyrir því að koma á vistfræðilegri nálgun við stjórn fisk- veiða er að bera kennsl á, varðveita og endurreisa mikilvæg búsvæði nytja- stofna 11). Árið 1996 voru sett lög í Bandaríkjunum til verndar haf- svæðum og botngerðum sem nauð- synlegar eru fyrir hrygningu, fæðuöfl- un og vöxt fiska fram að kynþroska. Verndun slíkra svæða er hluti af sjálf- bærri nýtingu fiskistofna 12). Í kjölfar- ið hafa mikilvæg búsvæði fyrir marg- ar nytjategundir í Norðvest- ur-Atlantshafi verið skilgreind 13). Í framtíðinni er líklegt að krafa um vist- fræðilega nálgun við stjórnun fisk- veiða verði hluti af vottun um sjálf- bæra nýtingu. Athafnir mannsins, aðrar en fisk- veiðar, geta haft áhrif á gæði og stærð búsvæða fiska, t.d. dýpkunarfram- kvæmdir, efnisnám, kalkþörunganám, stíflun áa, þang- og þarasláttur, upp- fyllingar, vegagerð, hafnargerð og bygging mannvirkja tengd þeim og sjókvíaeldi. ● Efnistaka úr sjó felst í að dæla upp sandflákum og malarhjöllum sem geta verið nauðsynleg búsvæði fisk- ungviðis, sérstaklega flatfiska og jafn- vel sandsílis. Hefur efnistaka úr sjó hér við land einkum átt sér stað í Faxaflóa. ● Þang og þarasláttur beinist að mjög mikilvægu búsvæði fyrir smá- þorsk og fleiri tegundir. Nýleg rann- sókn frá Vestur-Noregi sýndi að þorskseiðum (< 15 cm) á svæði þar sem þari hafði nýlega verið sleginn, fækkaði um 92% og staðan var óbreytt að ári liðnu14). ● Í vegagerð hefur þverun fjarða mest áhrif þegar fjörður er þveraður utarlega með fyllingum og einni brú, oftast í miðjunni. Þverun fjarðar get- ur haft áhrif á strauma inni í firðinum sem aftur getur leitt af sér breytingar í botngerð. Í flestum fjörðum er rang- sælis hringstraumur sem hverfur við þverunina og mikill straumur undir brú hefur áhrif á aðgengi eggja, lirfa og smáfisks að firðinum. Getur til- tölulega stutt þverun haft áhrif á tölu- vert mikið flatarmál af grunnsævi ef fjörðurinn er langur. ● Kalkþörungasvæði eru afar sér- stök og mikilvæg uppeldis- og bú- svæði fjölmargra fisktegunda og ann- arra lífvera. Svæðin hafa nú verið friðuð með ströndum Evrópu, nema hér við land. Kalkþörungavinnsla á sér nú þegar stað í Arnarfirði og enn frekari vinnsla er fyrirhuguð í Ísa- fjarðardjúpi. ● Aðaláhrif fiskeldis eru áhrif úr- gangs á lífríki undir sjókvíum og í næsta nágrenni. Það ræðst svo að miklu leyti af dýpi, straumum og botngerðinni sjálfri hversu víðtæk og langdregin áhrifin verða. Til viðbótar koma áhrif erfðamengunar og lyfja- gjafar (fúkkalyf, lyf gegn laxalús). Lyfjagjöf gegn laxalús hefur áhrif á öll krabbadýr, stór og smá, og getur hún þar með haft áhrif á fæðuframboð fiskungviðis. Undanfarin misseri hef- ur átt sér töluverð uppbygging á fisk- eldi í kvíum á Vestfjörðum og Aust- fjörðum og í náinni framtíð eru uppi hugmyndir um stórfellda uppbygg- ingu sjókvíaeldis á þessum svæðum. Erfitt er að meta áhrif fram- kvæmda á lífríkið fyrirfram. Mikil- vægt að fram fari umfangsmiklar rannsóknir á fyrirhuguðu fram- kvæmdasvæði og hugsanlegu áhrifa- svæði. Frá 1961 hafa 13 firðir við Ís- land verið þveraðir með einum eða öðrum hætti. Í flestum tilvikum fóru fram litlar eða engar rannsóknir á botngerð og lífríki þessara fjarða fyrir þverun og engar með tilliti til bú- svæða fiskungviðis, þannig að ekki er hægt að meta hugsanleg áhrif þeirra á búsvæði fiskungviðis. Á næstu árum er fyrirhugað að þvera Þorskafjörð, Djúpafjörð og Gufufjörð í Austur-Barðarstrandarsýslu vegna lagningar Vestfjarðavegar milli Bjarkalundar og Eyrar. Þar hefur Hafrannsóknastofnun einungis fram- kvæmt tvær takmarkaðar forathug- anir á lífríki þessara fjarða með tilliti til búsvæða fiskungviðis. Hafrannsóknastofnun hefur verið falið að áætla burðarþol einstakra fjarða vegna sjókvíaeldis. Burðarþolið byggist hinsvegar á straum- og súr- efnismælingum og lýtur eingöngu að mati á vatnsgæðum en fram- kvæmdaaðilum er látið eftir að fylgj- ast með áhrifum á lífríkið. Varðandi áhrif fiskeldis er hægt að hafa reynslu Norðmanna til hliðsjónar. Á fundi sem sjávarútvegsráðuneytið og Haf- rannsóknastofnunin efndu til í Reykjavík 27. september 2017 kom fram í máli dr. Geir Lasse Taranger, frá norsku Hafrannsóknastofnuninni, að í dag er laxalús helsta vandamálið í norsku eldi. Áhrif sjókvíaeldis á bú- svæði fiskungviðis hafa hins vegar lít- ið sem ekkert verið rannsökuð15). Stofnar fjarðaþorsksins í Noregi um búsvæðum fiskungviðis á grunn- sævinu við Ísland á næstu árum er ekki fyrir hendi og af þeim sökum þarf að fara enn varlegar en ella. Sterkar vísbendingar eru um að verulegur hluti ungviðis þorsks og fjölmargra annara nytjastofna alist upp inni á fjörðum og flóum hér við land. Mikilvægt er að menn geri sér grein fyrir því að beinn fjárhagslegur ávinningur er af því að vernda uppeld- issvæði nytjafiska. Heimildir: 1) Bjarni Sæmundsson, 1908 2) Guðrún Marteinsdóttir o.fl., 2000 3) Björn Gunnarsson o.fl., 2010 4) Agnar Ingólfsson, 2010 5) Seitz o.fl., 2014 6) Gibson, 1994 7) Rijnsdorp o.fl., 1992 8) Juanes, 2007 9) Le Pape, 2003 10) Stål, 2007 11) Schmitten, 1999 12) Sustainable fisheries act, 1996 13) NOAA, 2017 14) Lorentsen o.fl., 2010 15) Fisken og Havet, 2016 16) Ólafur Karvel Pálsson, 2004 Björn Gunnarsson Höskuldur Björnsson Firðir og flóar eru vagga helstu nytjastofnanna (kysttorsk) hafa verið í slæmu ásig- komulagi í mörg ár en ástæðurnar fyrir því eru óþekktar. Barentshafs- þorskurinn, sem er langmikilvægasti veiðistofn Norðmanna, elst upp úti á landgrunninu. Mikilvægt er að haga fram- kvæmdum þannig að áhrif á búsvæði smáfiska verði sem allra minnst og þar sem mikil verðmæti eru í húfi (sjá rammagrein) er eðlilegt að lágmarka vistfræðileg áhrif framkvæmda, jafn- vel þó að það leiði til verulega aukins kostnaðar. ● Við þverun fjarða þarf að gæta þess að brýr séu nægilega margar og stórar til að straumakerfi fjarðanna raskist ekki og þar með aðgengi fisk- ungviðis og náttúruleg botngerð fjarðanna. Þá ætti jafnframt að skoða aðrar leiðir, svo sem gangagerð. ● Sjókvíar þarf að staðsetja í öruggri fjarlægð frá mikilvægum bú- svæðum smáfisks, eins þang- og þara- svæðum, sandfjörum og kalkþör- ungasvæðum. Einnig er mikilvægt að hafa kvíar í útstreymi úr firði. Mjög mikilvægt að setja fram kröfur varð- andi lyfjanotkun en lyf gegn laxalús hafa neikvæð umhverfisáhrif. Efnin sem notuð eru í baráttu við lúsina eru engan veginn sértæk og hafa því haft áhrif á öll krabbadýr sem fyrir þeim verða, þar með talið, smá krabbadýr sem eru mikilvæg fæða fiskungviðis inni á fjörðum og flóum. Þá hefur ver- ið bent á hugsanleg áhrif efnanna á rækjustofna innfjarða. ● Við þang- og þaraslátt hefur ver- ið reynt að taka tillit til endurnýjunar svæðanna og ber að halda þeirri vinnu áfram. Mat á því hve miklu af svæðum hefur verið raskað á hverjum tíma þarf að liggja fyrir en forsendan fyrir slíku mati er heildarkortlagning þess- ara svæða. ● Kalkþörungar eru mikilvæg bú- svæði fiskungviðis. Endurnýjun svæð- anna er mjög hæg og hleypur á árum og áratugum og því erfitt að réttlæta vinnslu. Skilgreining og kortlagning á grunnsævinu er aðkallandi verkefni sem er mjög skammt á veg komið hér við land. Með slíkri kortlagningu strauma, botngerða og lífríkis, væri lagður traustur grunnur að skipulagi, áhættumati, nýtingu og verndun. Kortlagning er tímafrek og kostn- aðarsöm, sérstaklega athuganir á magni seiða sem er mjög breytilegt milli ára og árstíma. Varúðarnálgun felur í sér að þegar skortur er á þekkingu á lífríkinu ber að fara varlega í að hrófla við nátt- úrulegu ástandi. Grunnþekking til að meta áhrif fjölmargra fyrirhugaðra framkvæmda á hugsanlega mikilvæg- Ljósmynd/Erlendur Bogason, kafari Mikilvæg búsvæði Þorskseiði á fyrsta ári á kalkþörungasvæði. Uppeldissvæði fiska eru fjöl- breytt og ólík eftir fiskteg- undum. Sumar tegundir alast nær eingöngu upp á grunnslóð, t.d. flestar flatfiskategundir og ufsi meðan aðrar tegundir finn- ast bæði á grunnslóð og dýpra vatni t.d. ýsa og þorskur. Á grunnslóð halda þorskseiði sig gjarnan í marhálmi og þara- skógum meðan skarkolaseiði eru einkum á sendnum botni. Í Svíþjóð hefur verið reynt að meta efnahagslegt mikilvægi grunnævis10 en vesturströnd Svíþjóðar var kortlögð með til- liti til ólíkra botngerða og flat- armál mikilvægra búsvæða þar áætlað. Í rannsókninni var með- al annars lagt mat á framlegð uppeldissvæða og hve háðar tegundirnar eru ákveðinni botngerð. Þorskur sýndi eins og hér við land tryggð við svæði sem einkenndust af marhálmi og þaraskógi en fannst síður á sendnum botni. Niðurstöðurnar bentu til að skarkoli væri fyrstu 2 árin mjög háður sendnum botni á grunnsævi. Var metið að hver ferkílómetri af sendnum botni á 0-10 m dýpi við vest- urströnd Svíþjóðar gæfi af sér 3,7-4,5 milljarða króna (300-360 milljónir SEK) í aflaverðmæti á 55 árum (~ 70 milljónir á ári). Séu þessar tölur settar í sam- hengi gæti 1 km2 svarað til ~10 km af sendinni strönd. Við þver- un Gilsfjarðar var áætlað að um 4,4 % af sendnum leirum á Ís- landi hefðu lent innan fyll- ingar4 og farið forgörðum. Ef gert er ráð fyrir að jafnstórt bú- svæði skarkolaungviðis hafi horfið, gæti það þýtt samsvar- andi minnkun í afla tegund- arinnar og þar með útflutnings- verðmæti upp á 100 milljón krónur á ári. Mikilvægasti nytjafiskur Ís- lendinga, þorskurinn, elst upp við fjölbreytilegri skilyrði en t.d. skarkolinn þannig að erf- iðara er að tengja nýliðun við ákveðin búsvæði. Hér þarf að grípa til varúðarnálgunar og haga öllum framkvæmdum þannig að áhrif þeirra verði lág- mörkuð. Eitt prósent minnkun í nýliðun þorsks þýðir um 1 millj- arðs samdrátt í útflutnings- verðmæti á ári. Uppeldis- svæði fiska Mikilvægt er að haga framkvæmdum þannig að áhrif á búsvæði smáfiska verði sem allra minnst og þar sem mikil verðmæti eru í húfi er eðlilegt að lág- marka vistfræðileg áhrif framkvæmda, jafnvel þótt það leiði til verulega aukins kostnaðar. Höfundar eru starfsmenn Hafrannsóknastofnunar. Við tökum út og þjónustum kæli- og loftræstikerfi Stangarhyl 1A • 110 Reykjavík • Sími 587 8890 • rafstjorn.is
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.