Morgunblaðið - 14.12.2017, Side 76

Morgunblaðið - 14.12.2017, Side 76
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. DESEMBER 2017 Sigurður Þorri Gunnarsson siggi@mbl.is „Síðastliðin ár hefur keppnin far- ið fram í samstarfi við Sagafilm og vegna umfangs hennar lent mikil vinna á framkvæmdastjórn SÍF við undirbúning. Af þeim sökum sá stjórnin sér ekki fært að vinna að þeim málum sem SÍF vildi beita sér fyrir; að gæta hagsmuna fram- haldsskólanema,“ segir Davíð Snær Jónsson, formaður SÍF. Áhugi fyrir keppninni hafi verið lít- ill og fjármagn til þess að halda hana af skornum skammti. Hann segir þó að eftirspurnin eftir keppni eins og þessari sé enn fyrir hendi. „Við sjáum skóla sem nær að fylla Eldborg í Hörpu árlega í sinni undankeppni,“ segir Davíð en hins vegar voru aðeins 100 miðar seldir á aðalsöngkeppnina í fyrra. „Það lá því í augum uppi að nauð- synlegt væri að gera breytingar á formi keppninnar. Hana vantaði hjarta. Nemendur þurfa að upplifa að þeir eigi aðild að sinni keppni. Kynningarefni var ábótavant og engin hliðardagskrá í boði. Það leiddi til þess að keppnin var farin að snúast of mikið um fram- leiðslugildi en ekki stökkpall fyrir upprennandi tónlistarfólk,“ segir Davíð en stjórn SÍF ákvað að aug- lýsa eftir áhugasömum aðilum í ágúst sl. sem myndu vilja taka að sér að halda keppnina. „Við feng- um nokkrar tillögur sem lagðar voru fram á aðalþingi SÍF í sept- ember. Ein tillaga var kosin og við höfum síðustu mánuði unnið að samningi við þá aðila sem ætla í samstarfi við okkur að vekja keppnina aftur til lífs. Meirihluti vinnunnar verður í höndum fram- kvæmdaaðila en almennar ákvarð- anatökur verða í höndum sér- stakrar söngkeppnisnefndar þar sem nemendur fá tækifæri til þess að móta keppnina í samráði við framkvæmdaaðila,“ segir Davíð. Hefur lengi sóst eftir að halda keppnina Umboðsmaðurinn Sindri Ást- marsson fer fyrir hópnum sem mun sjá um keppnina á næsta ári. „Ég hef í raun lengi sóst eftir þessu. Vinir mínir sáu um keppn- ina þegar hún var í hæstu hæðum á árunum 2007-2011 og ég vann eitt- hvað í kringum hana á þeim tíma. SÍF óskaði eftir hugmyndum um framkvæmd keppninnar og við vor- um með mjög metnaðarfulla áætl- un um hvernig við myndum blása lífi í þessa fornfrægu keppni sem hefur verið mikilvægur vettvangur fyrir ungt fólk á leið inn í tónlist- arbransann,“ segir Sindri sem leggur sérstaka áherslu á að keppnin sé stökkpallur fyrir ungt fólk. „Það er aðalástæða þess að ég vildi komast inn í þetta; að upp- götva ungt hæfileikafólk sem gæti átt framtíðina fyrir sér í brans- anum. Það er hægt að telja upp endalaus dæmi um fólk sem hefur vakið fyrst athygli á sér í keppn- inni. Glowie er t.d. frábært dæmi um söngkonu sem enginn hafði heyrt um og stígur sín fyrstu skref þarna. Vonandi getum við haldið áfram á sömu braut. Við ætlum að vera dugleg að tengja þetta unga fólk við reynt fólk úr bransanum hér heima og fara t.d. allir þátttak- endur í gegnum vinnuhelgi þar sem þeir fá liðsinni landsþekktra söngv- ara og annarra sem hafa allir að markmiði að kreista fram það allra besta úr hverju atriði,“ segir Sindri en erlendir gestir verða einnig við- staddir keppnina á næsta ári, m.a. Fulltrúi Simons Cowells verður á söngkeppni framhaldsskólanna Undirskrift Sindri Ástmarsson og Davíð Snær Jónsson takast í hendur. Söngkeppni framhaldsskólanna verður endurvakin á næsta ári en keppnin var ekki haldin í ár, í fyrsta skipti síðan 1990. Keppnin verður haldin á Akureyri en Samband íslenskra framhaldsskólanema, SÍF, hefur fengið utanaðkomandi aðila til þess að halda keppnina. Stefnan er að vekja keppnina aftur til lífs en síðustu ár hefur áhugi á henni verið lítill. Gert er ráð fyrir að erlendir aðilar úr tónlistarheiminum verði viðstaddir keppnina, m.a. fulltrúi frá útgáfufyrirtæki Simons Cowells.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.